Knattspyrnufélag ÍA og Dean Martin hafa komist að samkomulagi um að Dean láti af störfum hjá félaginu eftir leik ÍA og Breiðabliks sem fram fer þann 4. júlí næstkomandi.
Dean mun nú taka við nýju og spennandi starfi hjá Al Nahdha, sem leikur í efstu deild í Óman.
Dean hefur undanfarin misseri gegnt mikilvægu hlutverki hjá félaginu sem annar tveggja aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, ásamt Aron Ými, auk þess að sinna styrktarþjálfun innan félagsins.
„Dean hefur verið afar metnaðarfullur og faglegur í sínum störfum hjá félaginu og þökkum við honum kærlega fyrir hans framlag til ÍA í bili," segir á vef ÍA.