Mynd
Orðið á götunni: Forseti ASÍ gerir þá sjálfsögðu kröfu að bankar velti ekki bankaskatti út í verðlagið – Jóhannes útskýrari vælir áfram
Sérstakur bankaskattur er hækkaður núna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um sex milljarða króna. Þetta er sjálfsögð og eðlileg tillaga í ljósi ofboðslegs hagnaðar banka og fjármálafyrirtækja hin síðari ár. En þessi skattur gerir ekki sitt gagn ef bankarnir ná að velta honum umsvifalaust út í verðlagið þannig að fólk og fyrirtæki þurfi að borga brúsann.