Mynd

Kristrún Frostadóttir: Hverjir vilja ekki leyfa þjóðinni að sjá samning? – Hverra hagsmuna gæta þeir?

Það kostar mikla peninga að vera með litla og óstöðuga mynt eins og krónuna. Innganga í Evrópusambandið myndi strax, jafnvel áður en við tækjum upp evru, minnka þann kostnað. Það hefði mikil áhrif til hagsbóta fyrir neytendur og samkeppni að ganga inn í ESB. Samkeppni myndi aukast í dagvöru, eldsneytissölu, tryggingamarkaði og lánamarkaði.