Þorsteinn Pálsson skrifar: Daði Már sækir vatnið yfir bæjarlækinn
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra birti í síðustu viku mikilvæga skýrslu erlendra óháðra hagfræðinga um krónuna og evruna.
Hlutverk þeirra var ekki að segja Íslendingum hvað þeim er fyrir bestu. Tilgangurinn var að fá faglegt óháð álit á helstu álitaefnum þegar við tökum afstöðu um tvo kosti.