Mynd
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
Sem röksemd gegn aðild Íslands að ESB heyrist stundum að hún gæti skaðað tengsl Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnar og öryggismála. Þetta virðist vera byggt á því sjónarmiði að aðild að ESB og NATO fari ekki saman. Aukin þátttaka Íslands í samstarfi á vettvangi ESB á þessum sviðum trufli tengslin við Bandaríkin.