Fyrrum ráðherra í Danmörku sem varð síðar einn af framkvæmdastjórum Evrópusambandins óttast mjög að aukin áhrif gervigreindar verði til þess að almenningur verði hreinlega heimskari á meðan hin vel stæða elíta sem eigi og stýri tækninni passi sig á því að örva heilastarfsemina.
Margrethe Vestager var leiðtogi miðjuflokksins Radikale Venstre frá 2007-2014 þegar hún sagði skilið við dönsk stjórnmál og tók sæti í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Hún var kjörin á þing 2001 en hafði áður en það var gegnt embætti mennta- og kirkjumálaráðherra. Hún var síðan efnahagsmála- og innanríkisráðherra frá 2011-2014 auk þess að vera varaforsætisráðherra. Hún var síðan framkvæmdastjóri samkeppnismála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins frá 2014-2024 en frá 2019 var hún einnig varaforseti framkvæmdastjórnarinnar vegna stafrænivæðingu Evrópu.
Gervigreind og heimska
Í fréttaskýringarþættinum Deadline á DR, danska ríkissjónvarpinu, er rætt við Vestager meðal annars um gervigreind. Í myndbandi þar sem birt er brot úr þættinum segir hún það vera hreinlega forkastanlegt að lítið sem ekkert hafi verið rætt um áhrif tæknivæðingarinnar og þá sérstaklega gervigreindar í kosningabaráttunni fyrir þingkosningar sem fram fóru í Danmörku fyrr á árinu:
„Þetta hefði alveg eins getað verið á sjöunda áratug síðustu aldar.“
Hún segir að danskt samfélag verði að svara því hvað gera skuli við gervigreind. Það verði að svara því hvernig gervigreindin geti bætt samfélagið en einnig hver óæskileg áhrif hennar geti orðið og hvernig þjóðfélagið geti verndað sig gegn þeim.
Vestager segist óttast mjög að fámenn elíta muni fleyta rjómann og uppskera vel af auknum áhrifum gervigreindar en mikill meirihluti manna verði hreinlega heimskari.
Heilinn
Þótt Westager sé aðallega að ræða sitt heimaland í þessu samhengi má án efa heimfæra viðvörunarorð hennar yfir á megnið af mannkyninu.
Hún óttast mjög að allur almenningur verði hreinlega fóður fyrir tæknina og endi sem fórnarlömb forheimskunnar:
„Ef þú hefur ekkert viðnám til að þroska heilann.“
Er þar Westager að vísa til þess þegar t.d. fólk þarf að læra eitthvað nýtt eins og t.d. margföldunartöfluna eða að handskrifa.
„Ef þú hefur ekkert viðnám þá verður þú bókstaflega heimskari af því heilinn þinn þroskast ekki.“
Hún óttast það mjög að þegar sé til staðar gervigreind sem leysi öll verkefni fyrir fólk endi það hreinlega heimskari fyrir vikið. Þeir aðilar sem eigi og ráði yfir þessari tækni passi sig hins vegar á því að láta ekki sig og sínar fjölskyldur verða fyrir þessum skaða:
„Þeir senda börnin sín í ballet, skák og út að rækta garðana af því þeir vita hvers lags hæfni fólk þarf að búa yfir í samfélagi þar sem gervigreind er komin í fullan gang.“