Mynd

Orðið á götunni: Meirihlutamyndun í Reykjavík flóknari en af er látið – enn getur allt gerst – fjórði lélegasti árangur Sjálfstæðisflokksins í sögunni

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefur þegar lýst því yfir að hún verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur þótt enginn meirihluti hafi verið myndaður enn. Hún þreytist ekki á að státa af miklum sigri flokksins í borginni og að listinn eigi nú alls kostar. En hve mikill sigur var þetta?