Segir neysluviðmið ríkisins ömurlega hræsni – Sjáðu hvað Katrín sagði í stjórnarandstöðu
EyjanEyjan birti í gær frétt um uppfærð neysluviðmið ríkisins, en sú uppfærsla var sú áttunda í röðinni frá 2011. Vakti fréttin mikla athygli, enda fæstir sem vilja falla innan þeirra viðmiða, ekki síst þegar haft er í huga að húsnæðisverð er ekki reiknað inn í þau. Sjá nánar: Sjáðu upphæðina sem þú átt að geta Lesa meira
Oddný varar við frjálshyggjuáætlun ríkisstjórnarinnar – „Það er verið að búa í haginn“
EyjanOddný G. Harðardóttir, þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir við Eyjuna að henni lítist illa á aðgerðir núverandi ríkisstjórnar í efnahagsmálum, þar sem verið sé að færa einkaaðilum það sem ætti að vera á höndum ríkisins. Hún skrifaði í kvöld færslu á Facebook þar sem hún taldi upp nokkur atriði þar sem henni þykir full geyst Lesa meira
Slagur framundan hjá VG: Sendiherrasonur og lögreglumaður keppast um gjaldkerastöðuna
EyjanTveir hafa lýst yfir framboði til embættis gjaldkera hjá Vinstri grænum, hvers landsfundur fer fram 18.-20. október. Una Hildardóttir, sem gegnt hefur gjaldkeraembættinu síðastliðin fjögur ár, hyggst söðla um og bjóða sig fram til ritara að þessu sinni, en núverandi ritari, Elín Oddný Sigurðardóttir, hyggst ekki gefa kost á sér aftur. Fær Una samkeppni frá Lesa meira
Sendiherrasonur valinn til forystu í VG
EyjanRagnar Auðun Árnason var kosinn nýr formaður VG í Reykjavík í gærkvöldi, á aðalfundi félagsins. Ragnar, sem er 24 ára stjórnmálafræðingur, leysir Steinar Harðarson af hólmi, en Ragnar er fyrrverandi talsmaður Ungra Vinstri Grænna. Þá má geta þess að faðir Ragnars er Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Finnlandi og fyrrverandi þingmaður og þingflokksformaður VG. Lesa meira
Hegðun umhverfisráðherra sögð glæfraleg en ekki lífshættuleg: „Sýnir ekki gott fordæmi“
EyjanLíkt og Eyjan greindi frá í gær þá sjósetti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, sérstakt GPS flothylki sem nota má til að fylgjast með plastrusli í sjónum. Guðmundur kastaði flothylkinu í sjóinn af dekkinu á varðskipinu Þór, með því að stíga upp á brúnina. Guðmundur var ekki klæddur neinum öryggisbúnaði, hvorki með hjálm né í björgunarvesti Lesa meira
Kolbrún: „Illa komið fyrir flokki sem á tyllidögum hjalar hvað mest um umhverfisvernd“
EyjanJón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, baðst undan því í Silfrinu á sunnudaginn að hann og Sjálfstæðisflokkurinn væru sagðir á móti umhverfisvernd. Tilefnið var gagnrýni Jóns á framgang umhverfisráðherra vegna friðlýsinga hans, sem Jón telur fara gegn lögum. Jón sagðist við það tækifæri vera mikill náttúruverndarsinni, en vildi að farið væri eftir því samkomulagi sem fyrir lægi. Lesa meira
Kísilver PCC þarf fimm milljarða til viðbótar – „I told you so“ segir fyrrverandi umhverfisráðherra
Eyjan„Mikið hryggir þetta mig , og mikið er hundfúlt að segja I told you so, en við þessu varaði ég og gott fólk í litlum flokki á þingi sem hét Björt Framtíð. Kísilmálver á Bakka er, og var alveg frá byrjun vond hugmynd. Keyrð áfram af fólki til að koma eitthvað um þúsund atkvæðum í Lesa meira
Jón hótar stjórnarslitum vegna umhverfisráðherra: „Verklag hans samræmist ekki lögunum“
Eyjan„Ég get ekki séð að við þingmenn Sjálfstæðisflokksins getum stutt stjórnarsamstarf sem fer fram með þessum hætti. Það er best að gera grein fyrir því strax,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi samgönguráðherra í niðurlaginu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Tilefnið er aðferðarfræði umhverfisráðherra, Guðmundar I. Guðbrandssonar, VG, varðandi friðlýsingar og verklag Lesa meira
Kolbrún um þá sem sitja að kjötkötlunum í Reykjavík: „Stökkva gjarnan fram með einhverjar vanhugsaðar bombur“
EyjanKolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, segir framgang Lífar Magneudóttur borgarfulltrúa VG í gær, um að minnka eða hætta alfarið framboði á kjöti í mötuneytum Reykjavíkurborgar, vera vanhugsaðan. Það sé ekki í fyrsta skipti sem sá meirihluti er situr nú að kjötkötlunum fari sínu fram án umræðu eða samtals við borgarbúa: „Að henda inn svona sprengju Lesa meira
Ögmundur reiður út í Katrínu og stefnusvik VG: „Ömurlegra og alvarlegra en orð fá lýst“
EyjanÖgmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra VG, gagnrýnir forystu flokksins harðlega í grein sem hann birtir á heimasíðu sinni. Hann fullyrðir að Bandaríkjaher sé að snúa aftur í þeirra boði, en sem kunnugt er þá hyggst Bandaríkjaher og NATO standa að 14 milljarða króna uppbyggingu hér á landi á næstu árum, þó svo Ísland teljist Lesa meira