Sögufræg treyja seld fyrir 1,4 milljarða
PressanTreyjan, sem Michael Jordan, klæddist í fyrsta leiknum í úrslitaleikjaröð NBA-deildarinnar árið 1998 seldist fyrir sem svarar til 1,4 milljarða íslenskra króna á uppboði í gær. Það var uppboðshúsið Sotheby‘s sem seldi treyjuna. Höfðu sérfræðingar þess reiknað með að um 5 milljónir dollara myndu fást fyrir hana en það var greinilegt vanmat því hún seldist á rúmlega 10 milljónir Lesa meira
Úr Hitlers selt á 150 milljónir – Segja söluna viðbjóðslega
PressanNýlega var úr, af tegundinni Huber, selt á uppboði hjá bandaríska uppboðsfyrirtækinu Alexander Historical Auctions í Maryland. Hakakross og upphafsstafir Hitlers eru á úrinu. 1,1 milljón dollara, sem svarar til um 150 milljóna íslenskra króna, fékkst fyrir úrið. Það er töluvert undir væntingum. BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að leiðtogar gyðinga hafi gagnrýnt söluna á úrinu. 34 leiðtogar gyðinga skrifuðu opið bréf Lesa meira
IKEA-stóll seldur fyrir 2,3 milljónir
PressanNýlega var svokallaður Cavelli-stóll frá IKEA seldur fyrir sem svarar til um 2,3 milljóna íslenskra króna á uppboði í Svíþjóð. Stólinn er frá 1959 og greinilega þyngdar sinnar virði í gulli miðað við það verð sem kaupandinn var reiðubúinn til að greiða fyrir hann. Þetta er bólstraður tréstóll en aðeins nokkur eintök eru til í heiminum. Expressen skýrir frá Lesa meira
Gömlu garðstytturnar voru ekki það sem talið var
PressanÍ 15 ár höfðu tvær gamlar styttur prýtt garð einn i Sudbury í Suffolk á Englandi. Eigandinn keypti þær á uppboði og kom þeim fyrir í garðinum. Talið var að um eftirlíkingar af fornum egypskum styttum væri að ræða. En nýlega var nýju ljósi varpað á uppruna styttnanna og seldust þær í kjölfarið á sem svarar til um 35 milljóna Lesa meira
Eftirlíking af Monu Lisu seld á rúmlega 420 milljónir
Pressan„Þetta er klikkun. Þetta er metverð fyrir eftirlíkingu af Monu Lisu,“ sagði talskona Christie‘s uppboðshússins á föstudaginn þegar eftirlíking af málverki Leonardo da Vinci af Monu Lisu seldist fyrir sem svarar til rúmlega 420 milljóna íslenskra króna. Áratugum saman reyndi Raymond Hekking að sannfæra heimsbyggðina um að málverkið, sem hann keypti í franskri fornmunaverslun 1953, væri hið upprunalega málverk og að það sem hangir í Louvre safninu sé falsað. Lesa meira
Sögufræg mynt seldist fyrir metfé
PressanSjaldgæf og sögufræg bandarísk gullmynt, sem er þekkt sem 1933 Double Eagle, var í gær seld á uppboði í New York og fékkst metverð fyrir þessa litlu mynt. Hún seldist á 18,9 milljónir dollara en það svarar til um 2,3 milljarða íslenskra króna. Myntin er því dýrasta mynt sögunnar. Söluverðið er ekki slæmt þegar haft er í huga að þegar Lesa meira
Diskur seldist á 700 milljónir – „Ég játa mistök mín“
PressanÞegar myndin, sem fylgir þessari frétt, er skoðuð er erfitt að ímynda sér að diskurinn, eða fatið, sem á henni sést sé 700 milljóna króna virði. En það er staðreynd og því vissara fyrir eiganda þess að meðhöndla það af ítrustu varkárni. Diskurinn var seldur á uppboði hjá danska uppboðshúsinu Bruun Rasmussen á miðvikudaginn og seldist á 35,5 Lesa meira
Merkilegur og sögulegur íslenskur fáni á uppboði í Danmörku
FréttirDanska uppboðshúsið Bruun Rasmussen er nú með merkan og sögulegan íslenskan fána á uppboði. Því lýkur þann 07. júní en nú þegar er hægt að bjóða í fánann á netinu. Ekki kemur fram í uppboðslýsingu hver seljandinn er. Fáninn er 131×188 cm og er áritaður af Sveini Björnssyni, fyrsta forseta lýðveldisins, en hann staðfesti einmitt lög númer 34/1944 um notkun Lesa meira
Kínverskur stóll seldist á 35 milljónir
PressanÞað er greinilega mikill áhugi á gömlum kínverskum stólum ef marka má niðurstöðu uppboðs hjá danska uppboðsfyrirtækinu Brunn Rasmussen í vikunni. Þá seldist kínverskur stóll á 1,7 milljónir danskra króna, það svarar til um 35 milljóna íslenskra króna. Reiknað hafði verið með að fyrir stólinn myndu fást 15-20.000 danskar krónur, 300.000 til 400.000 íslenskar krónur. Lesa meira
Gleraugu Gandhi á uppboði – Gætu selst á 2,6 milljónir
PressanMahatma Gandhi er heimsþekktur fyrir hlut sinn í baráttunni fyrir sjálfstæði Indlands frá Bretlandi. Hann á marga aðdáendur víða um heim og nú geta þeir farið að kíkja í veskið til að kanna hvort þeir eigi næga peninga til að kaupa gleraugu Gandhi sem lést 1948. Gleraugun verða boðin upp þann 21. ágúst hjá East Bristol Auctions í Bretlandi að sögn Sky. Gleraugun voru Lesa meira