Rússar flytja allar orustuþotur sínar frá Krím
FréttirNýlega urðu miklar sprengingar á Saki herflugvellinum á Krímskaga. Nokkrum dögum síðar urðu miklar sprengingar í skotfærageymslum á skaganum og einnig í spennistöð. Vestrænir sérfræðingar telja að Úkraínumenn hafi gert árásir á þessa staði en þeir hafa ekki staðfest það. Nú hafa þessar árásir orðið til þess að Rússar hafa flutt tíu orustuþotur frá Krímskaga. Lesa meira
Segja að Rússar hafi misst „tugi þúsunda hermanna“
FréttirSú ákvörðun Vladímír Pútíns, Rússlandsforseta, að bæta 137.000 hermönnum við rússneska herinn mun líklega ekki auka bardagagetu hersins í Úkraínu mikið. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu breska varnarmálaráðuneytisins, um stöðu stríðsins, frá í gær. Einnig kemur fram að það sé mat ráðuneytisins að Rússar hafi misst „tugi þúsunda hermanna“ á þeim rúmu sex mánuðum sem stríðið hefur Lesa meira
Telur að Pútín muni lýsa yfir stríði – „Ein klikkuð ákvörðun ofan á aðra“
FréttirFréttir hafa borist af því að Rússar eigi í erfiðleikum með að fá nægilega marga hermenn til að senda á vígvöllinn í Úkraínu. Vladímír Pútín, forseti, hefur ekki lýst yfir stríði á hendur Úkraínu og heldur fast við að um „sérstaka hernaðaraðgerð“ sé að ræða. Af þeim sökum geta hermenn neitað að fara til Úkraínu að berjast Lesa meira
Tvöföld fjármálakreppa að skella á Rússlandi
FréttirNýjar spár sýna að mikill samdráttur hefur orðið í rússnesku efnahagslífi eftir innrásina í Úkraínu. Rússneskur almenningur horfist í augu við efnahagslega niðursveiflu sem jafngildir tvöfaldri fjármálakreppunni sem skall á 2008. Ástæðan er efnahagslegar refsiaðgerðir sem ESB og Bandaríkin hafa beitt Rússa vegna innrásarinnar. Nýjar spár frá Economist Intelligence Unit (EIU) sýnir að verg þjóðarframleiðsla Rússlands getur skroppið saman Lesa meira
Söfnuðu peningum svo Úkraínumenn gætu keypt dróna – Nú hafa þeir keypt svolítið enn betra
FréttirÚkraínskir sjálfboðaliðar efndu til fjársöfnunar fyrr á árinu svo her landsins gæti keypt þrjá Bayraktar dróna. Þeir áttu að fara til flughersins. Á nokkrum dögum söfnuðust sem svarar til um 2,5 milljarða íslenskra króna meðal Úkraínumanna um allan heim. Peningarnir dugðu til að kaupa fjóra dróna en fyrirtækið sem framleiðir drónana, Baykar, tilkynnti þá að það myndi gefa Úkraínumönnum Lesa meira
Svört spá um stríðið í Úkraínu
FréttirÍ gær voru sex mánuðir liðnir síðan rússneski herinn réðst inn í Úkraínu. Rússar ætluðu að sigra úkraínska herinn á skömmum tíma, ná höfuðborginni Kyiv á sitt vald auk stærsta hluta landsins, bola Volodomyr Zelenskyy, forseta, og stjórn hans frá völdum og „afnasistavæða“ landið eins og Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, sagði. En Rússar hafa ekki náð Lesa meira
Zelenskyy ávarpaði þjóð sína í nótt – „Fáninn okkar er orðinn alþjóðlegt tákn hugrekkis“
FréttirVolodomyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, sendi að vanda frá sér ávarp til úkraínsku þjóðarinnar í nótt. Ávarpaði var með aðeins öðru sniði en venjulega því í dag er þjóðhátíðardagur Úkraínu, sjálfstæðisdagurinn, og einnig eru nákvæmlega sex mánuðir síðan Rússar réðust inn í landið. Zelenskyy eyddi miklum tíma í að fara yfir gang stríðsins í ávarpi næturinnar. „Fáninn okkar er Lesa meira
Rússneskur ferðamaður kom upp um staðsetningu rússneskra loftvarnaflauga
FréttirÞað eina sem hann ætlaði sér var að eiga minningu um fríið á Krímskaga. Af þeim sökum stillti hann sér upp á sundskýlunni einni saman og lét taka myndir af sér með tvo stóra vörubíla á bak við sig. Á þeim eru fjögur löng rör í felulitum. Hann birti myndirnar síðan á Vkontakte, sem er rússneska Lesa meira
Sérfræðingur segir að sprengjutilræðið í Moskvu sé þungt högg fyrir Pútín
FréttirEins og fram hefur komið þá lést Darya Dugina, 29 ára dóttir Alexander Dugin, í sprengjutilræði í Moskvu á laugardagskvöldið. Sprengju hafði verið komið fyrir undir bíl sem hún ók en talið er að hún hafi verið ætluð föður hennar. Faðir hennar er talinn einn helsti hugmyndasmiðurinn á bak við innrás Rússa í Úkraínu en hann er öfgasinnaður þjóðernissinni og Lesa meira
Rússneskur hermaður lýsir upplifun sinni af innrásinni – „Við vorum eins og villimenn“
FréttirPavel Filatyev er á flótta. Ástæðan er að hann var áður liðsmaður rússneska hersins en nú hefur hann gefið út bók, dagbók, um stríðið og er hún vægast sagt gagnrýnin í garð Vladímír Pútíns, Rússlandsforseta, og rússneska hersins. Fáir rússneskir hermenn hafa tjáð sig um stríðið en Filatyev er einn fárra sem hefur þorað því. The Guardian segir að í bókinni Lesa meira