fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024

Úkraína

Segist vera bjartsýn á gengi úkraínska hersins á vígvellinum

Segist vera bjartsýn á gengi úkraínska hersins á vígvellinum

Fréttir
03.10.2022

Úkraínska þingkonan Lesia Vasylenko segist vera „hóflega bjartsýn“ hvað varðar stöðuna á vígvellinum í Úkraínu og að fremstu víglínurnar líti „ágætlega út“. Þetta sagði hún í samtali við Sky News. „Ég er frekar bjartsýn og þrátt fyrir að Pútín reyni að beina athyglinni frá góðum árangri úkraínska hersins í austri þá sækir hann enn fram þar,“ sagði hún og bætti Lesa meira

Hyllir sókn Úkraínumanna

Hyllir sókn Úkraínumanna

Fréttir
03.10.2022

„Þetta er mikilvægt. Við erum mjög ánægð með það sem við sjáum núna,“ sagði Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, um árangur úkraínska hersins í Donetsk um helgina en þá náði hann bænum Lyman á sitt vald. Það að ná bænum úr höndum Rússa er talið mesta afrek úkraínska hersins síðan hann sótti hratt fram í Kharkiv fyrir um mánuði síðan. Missir Lyman var mikið áfall fyrir Lesa meira

Segja að 60.000 rússneskir hermenn hafi fallið í stríðinu

Segja að 60.000 rússneskir hermenn hafi fallið í stríðinu

Fréttir
03.10.2022

Úkraínska varnarmálaráðuneytið sendi í gær frá sér mat á tapi Rússa í stríðinu. Telur ráðuneytið að 60.110 rússneskir hermenn hafi fallið í stríðinu til þessa. 2.377 rússneskir skriðdrekar hafa verið eyðilagðir í stríðinu að sögn ráðuneytisins. Það er mikilvægt að taka þessum upplýsingum ráðuneytisins með ákveðnum fyrirvara því það hefur áður verið gagnrýnt fyrir að Lesa meira

Rússar deila góðum ráðum til að komast hjá herþjónustu

Rússar deila góðum ráðum til að komast hjá herþjónustu

Fréttir
03.10.2022

Í kjölfar tilkynningar Vladímír Pútín, Rússlandsforseta, um herkvaðningu 300.000 karla, sem eiga að fara á vígvöllinn í Úkraínu, spruttu nýir hópar upp á Internetinu þar sem Rússar veita hver öðrum góð ráð um hvernig á að flýja eða komast hjá því að vera kallaður í herinn. Þessu til viðbótar hafa mörg þúsund manns mótmælt herkvaðningunni Lesa meira

Segja það ákvörðun Pútíns að hörfa frá Lyman

Segja það ákvörðun Pútíns að hörfa frá Lyman

Fréttir
03.10.2022

Það var ákvörðun Vladímír Pútíns, Rússlandsforseta, að draga rússneskar hersveitir frá bænum Lyman í Donetsk en úkraínskir hermenn náðu honum á sitt vald á laugardaginn. Þetta kemur fram í greiningu bandarísku hugveitunnar Institute for the Study of War (ISW). Ukrainian forces inflicted another significant operational defeat on #Russia and liberated #Lyman, Donetsk Oblast, on October 1. Read our latest campaign assessment w/ @criticalthreats: https://t.co/6XH3Kfp9EN pic.twitter.com/Egsm0APaJH — ISW (@TheStudyofWar) Lesa meira

Lifandi grafík sýnir landvinninga Úkraínumanna síðustu 10 daga

Lifandi grafík sýnir landvinninga Úkraínumanna síðustu 10 daga

Fréttir
03.10.2022

Óháði hvítrússneski miðillinn Nexta hefur birt lifandi grafík sem sýnir hvernig sókn úkraínska hersins hefur gengið fyrir sig síðustu tíu daga. Hér fyrir neðan er hægt að sjá þetta fróðlega myndband. The offensive of the Armed Forces of #Ukraine in the last 10 days. pic.twitter.com/pLusDDMlKZ — NEXTA (@nexta_tv) October 2, 2022

Hræðsla hjá rússnesku elítunni – „Enginn veit hvað á að gerast næst“

Hræðsla hjá rússnesku elítunni – „Enginn veit hvað á að gerast næst“

Fréttir
03.10.2022

Fjölmenni var samankomið í Moskvu á föstudaginn þegar Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, tilkynnti um innlimun Luhansk, Donetsk, Kherson og Zaporizjzja í Rússland. Í ræðu sinni vísaði hann til niðurstaðna atkvæðagreiðslna í búa í héruðunum en þær kosningar eru að mati meirihluta alþjóðasamfélagsins marklausar og innlimun héraðanna ólögleg samkvæmt alþjóðalögum. En margir þeirra sem tilheyra hinni pólitísku elítu í Moskvu eru hræddir vegna þróunar mála í Úkraínu og vegna þess að Lesa meira

Danir, Norðmenn og Þjóðverjar gefa Úkraínumönnum vopn fyrir 12 milljarða

Danir, Norðmenn og Þjóðverjar gefa Úkraínumönnum vopn fyrir 12 milljarða

Fréttir
03.10.2022

Í gær var tilkynnt að Danir, Norðmenn og Þjóðverjar muni greiða Slóvakíu sem svarar til um 12 milljarða íslenskra króna fyrir að framleiða vopn fyrir úkraínska herinn. Þetta eru fallbyssur af gerðinni Zuzana-2 en Úkraínumenn hafa mikla þörf fyrir fleiri stórskotaliðsvopn. Danska ríkisútvarpið segir að þegar Matin Bødskov, varnarmálaráðherra Danmerkur, tilkynnti þetta í gær hafi hann sagt að Lesa meira

Hæðnisleg skilaboð úkraínska hersins til Rússa – „Viljið þið endurtaka þetta?“

Hæðnisleg skilaboð úkraínska hersins til Rússa – „Viljið þið endurtaka þetta?“

Fréttir
03.10.2022

„Við þökkum „varnarmálaráðuneytinu“ fyrir góða samvinnu við skipulagningu „Izyum 2.0“ æfingarinnar. Nær allar rússneskar hersveitir í Lyman voru fluttar til, annað hvort í líkpokum eða teknar höndum. Við erum með eina spurningu fyrir ykkur: Viljið þið endurtaka þetta?“ Eitthvað á þessa leið hljóðar hæðnisleg færsla úkraínska varnarmálaráðuneytisins á Twitter í kjölfar sigurs úkraínska hersins yfir þeim rússneska í bænum Lyman í Donetsk. Lesa meira

Biden segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna innlimun úkraínskra svæða í Rússland

Biden segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna innlimun úkraínskra svæða í Rússland

Fréttir
30.09.2022

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, flutti ræðu í nótt að íslenskum tíma þar sem hann sagði að Bandaríkin muni „aldrei, aldrei, aldrei“ viðurkenna tilraunir Rússa til að innlima úkraínsk landsvæði í Rússland. BBC skýrir frá þessu. Í gærkvöldi skrifaði Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, undir skjöl sem ryðja veginn fyrir að Rússar geti innlimað úkraínsk landsvæði í Rússland. Þetta Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af