fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024

Úkraína

Krefjast greiðslu eftir að hafa verið kvaddir í herinn – Myndband

Krefjast greiðslu eftir að hafa verið kvaddir í herinn – Myndband

Fréttir
07.10.2022

Hópur karlmanna, frá Omsk í suðvesturhluta Rússlands, hefur krafið stjórnvöld um greiðslu til handa þeim sem hafa verið kvaddir í herinn að undanförnu. Í myndbandi, sem var birt á vef SOTA, segjast mennirnir hafa skilið fjölskyldur sínar eftir heima til að sinna herkvaðningunni. Einn þeirra ávarpar staðaryfirvöld og segir: „Við erum með spurningu – í fyrsta lagi, fá Lesa meira

Vísar því á bug að 700.000 Rússar hafi flúið land

Vísar því á bug að 700.000 Rússar hafi flúið land

Fréttir
07.10.2022

Dmitry Peskov, talsmaður Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, vísar því á bug að 700.000 Rússar hafi flúði land eftir að Pútín tilkynnti um herkvaðningu 300.000 manna sem eiga að fara á vígvöllinn í Úkraínu. The Guardian segir að á fréttamannafundi í gær hafi Peskov sagt að hann hafi ekki nákvæmar tölur um hversu margir hafi yfirgefið Rússland síðan tilkynnt var um herkvaðninguna en hafi þvertekið fyrir að Lesa meira

Rússar eru sagðir vera stærstu vopnabirgjar Úkraínumanna

Rússar eru sagðir vera stærstu vopnabirgjar Úkraínumanna

Fréttir
07.10.2022

Á síðustu vikum hafa rússneskar hersveitir neyðst til að skilja mikið magn skriðdreka og annarra vopna eftir á flótta sínum undan úkraínskum hersveitum. Þegar litið er yfir allt stríðið í heild þá eru Rússar efstir á blaði yfir þá sem hafa „útvegað“ úkraínska hernum þungavopn. Wall Street Journal skýrir frá þessu.

Evrópuríki senda enn fleiri hergögn til Úkraínu

Evrópuríki senda enn fleiri hergögn til Úkraínu

Fréttir
07.10.2022

Emmanuel Macron, Frakklandsforseti, segir að Evrópuríki muni senda enn fleiri hergögn til Úkraínu til notkunar í stríðinu við Rússa. Hann sagði þetta á fundi í Prag í Tékklandi. Meðal vopnanna verða fleiri stórskotaliðsbyssur. Macron sagði að verið væri að vinna úr nokkrum beiðnum Úkraínumanna um ákveðin vopn, þar á meðal stórskotaliðsbyssur. Í síðustu viku tilkynntu Rússar um innlimun fjögurra úkraínskra Lesa meira

Örvænting grípur um sig í Kherson – Embættismaður sagði varnarmálaráðherranum að skjóta sjálfan sig

Örvænting grípur um sig í Kherson – Embættismaður sagði varnarmálaráðherranum að skjóta sjálfan sig

Fréttir
07.10.2022

Örvænting virðist hafa gripið um sig á þeim svæðum sem Rússar hafa á valdi sínu í Úkraínu. Ástæðan er sókn úkraínska hersins sem hefur hrakið þann rússneska frá mörgum bæjum og borgum og náð stórum landsvæðum úr klóm Rússa. Í Kherson er Úkraínumaðurnn Kirill Stremousov einn af æðstu embættismönnunum í leppstjórn Rússa. Hann er greinilega óttasleginn og ósáttur við Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, því Lesa meira

Bandaríkin gefa Úkraínu 55 milljónir dollara til að halda hita á þjóðinni

Bandaríkin gefa Úkraínu 55 milljónir dollara til að halda hita á þjóðinni

Fréttir
07.10.2022

Bandaríski alþjóðaþróunarsjóðurinn, USAID, hefur ákveðið að fjárfesta fyrir 55 milljónir dollara í Úkraínu. Fjármagnið fer til fjárfestinga í hitaveitum til að þetta stríðshrjáða land geti undirbúið sig undir hina köldu vetrarmánuði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjóðnum. Peningarnir fara í útbúnað sem á að tryggja húshitun víða í landinu. Munu sjö milljónir Úkraínubúa, í 19 Lesa meira

Segir endurheimt Krím nú mögulega

Segir endurheimt Krím nú mögulega

Fréttir
07.10.2022

Möguleikarnir á að Úkraínumenn geti endurheimt Krím, sem Rússar hernámu og innlimuðu árið 2014, eru nú til staðar og ekki hægt að afskrifa þá. Þetta er mat embættismanns hjá bandaríska hernum. Hann sagði augljóst að Rússar hafi ekki lengur getu né vilja til að verja lykilsvæði sín og ef Úkraínumönnum takist að endurheimta Kherson þá sé raunverulegur Lesa meira

Biden varar við ragnarökum – Segir hættuna ekki hafa verið meiri síðan í Kúbudeilunni

Biden varar við ragnarökum – Segir hættuna ekki hafa verið meiri síðan í Kúbudeilunni

Fréttir
07.10.2022

Hættan á „kjarnorku-ragnarökum“ er nú sú mesta síðan í Kúbudeilunni 1962. Þetta sagði Joe Biden, Bandaríkjaforseti í gærkvöldi. Tilefnið var að rússneskir embættismenn hafa rætt opinberlega um möguleikann á beitingu kjarnorkuvopna í Úkraínu í kjölfar ósigra rússneska hersins. „Við höfum ekki staðið frammi fyrir möguleikanum á slíkum ragnarökum síðan á tíma Kennedy og Kúbudeilunnar,“ sagði hann í gærkvöldi á samkomu Demókrata í New York. Hvíta húsið Lesa meira

Hverjir gætu skorað Pútín á hólm og hversu líklegt er að til valdaráns komi?

Hverjir gætu skorað Pútín á hólm og hversu líklegt er að til valdaráns komi?

Fréttir
07.10.2022

„Jafnvel þótt undirmenn Pútíns komist að þeirri niðurstöðu að þeir vilji losna við hann, þá verður erfitt að koma honum frá völdum. Engar valdaránstilraunir hafa verið gerðar í Moskvu frá hruni Sovétríkjanna.“ Þetta segir Sergey Radchenko, prófessor við Henry A Kissinger Center for Global Affairs og Johns Hpkins School of Advanced International Studies í grein í Foreign Affairs. Radchenko fæddist í Rússlandi en býr í Bandaríkjunum. Hann segir að ef til valdaráns komi verði enginn skortur á mönnum Lesa meira

Ótrúleg stund þegar rússneskir hermenn gáfust upp og yfirgáfu skriðdreka sinn – Myndband

Ótrúleg stund þegar rússneskir hermenn gáfust upp og yfirgáfu skriðdreka sinn – Myndband

Fréttir
07.10.2022

Á upptöku, sem er hægt að horfa á hér fyrir neðan, sést þegar rússneskum BMP-2 skriðdreka er ekið út úr trjáþyrpingu og stöðvaður fyrir framan úkraínska hermenn. Hvítir fánar, merki um uppgjöf, blakta á skriðdrekanum. Áhöfnin sést síðan gefast upp fyrir úkraínsk hermönnunum. Að sögn breskra fjölmiðla var myndbandið tekið í Kherson í suðurhluta Úkraínu. Þegar áhöfn skriðdrekans Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af