fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024

Úkraína

Vígvellirnir í Úkraínu eru að frjósa en skothríðin heldur áfram

Vígvellirnir í Úkraínu eru að frjósa en skothríðin heldur áfram

Fréttir
15.12.2022

Nú eru tæpir 300 dagar síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Þeir sóttu hratt fram fyrstu dagana og náðu stórum landsvæðum á sitt vald en síðan hægði á sókninni og síðustu mánuði hafa Úkraínumenn verið með frumkvæðið á vígvellinum. Þeir hafa hrakið Rússa frá herteknum svæðum og valdið þeim miklu tjóni. Nú er veturinn genginn Lesa meira

Segja að allt sé að molna hjá Pútín

Segja að allt sé að molna hjá Pútín

Fréttir
15.12.2022

Samkvæmt því sem breska varnarmálaráðuneytið sagði í gær í daglegri stöðuuppfærslu sinni um gang stríðsins í Úkraínu þá er allt að molna hjá Vladímír Pútín, Rússlandsforseta. Ekki aðeins á vígvellinum heldur einnig á heimavelli þar sem fólk er farið að missa trúna á stríðsrekstrinum. Ráðuneytið bendir á að rússneski þjóðernissinninn og fyrrum leyniþjónustumaður Igor Girkin tali um vanda við áætlun Lesa meira

Pútín tjáði sig um hugsanlegar friðarviðræður – „Allir verða að vera sammála um þann raunveruleika sem nú er uppi“

Pútín tjáði sig um hugsanlegar friðarviðræður – „Allir verða að vera sammála um þann raunveruleika sem nú er uppi“

Fréttir
14.12.2022

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, ræddi við fréttamenn á föstudaginn og kom þá meðal annars inn á möguleikann á friðarviðræðum við Úkraínumenn. „Friðarviðræður í heild, já, þær verða væntanlega erfiðar og tímafrekar. En á einn eða annan hátt verða allir hlutaðeigandi að vera sammála um þann raunveruleika sem nú er uppi,“ sagði Pútín. The Guardian skýrir frá þessu. Fyrr í Lesa meira

Úkraínumenn sagðir hafa skemmt mikilvæga brú – Gerir birgðaflutninga Rússa erfiða

Úkraínumenn sagðir hafa skemmt mikilvæga brú – Gerir birgðaflutninga Rússa erfiða

Fréttir
14.12.2022

Svo virðist vera sem Úkraínumenn hafi skemmt mjög mikilvæga brú nærri borginni Melitopol í suðurhluta Úkraínu. Brúin er yfir ána Molochna, á milli Melitopol og þopsins Kostyantynivka. Sprengjuárás var gerð á hana í fyrrinótt og er hún hrunin að hluta. The Guardian segir að á myndbandi, sem var birt á Internetinu, sjáist að tveir brúarstólpar hafi skemmst og hluti af brúargólfinu hafi Lesa meira

Sérð þú eitthvað athugavert við þessa nýju mynd af Pútín? – „Það er eitthvað mikið að.“

Sérð þú eitthvað athugavert við þessa nýju mynd af Pútín? – „Það er eitthvað mikið að.“

Fréttir
14.12.2022

Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu hafa margar ljósmyndir af Vladímír Pútín, forseta, vakið athygli utan Rússlands og hafa margir þóst getað lesið eitt og annað úr þeim. Nú er það sama uppi á teningnum vegna ljósmyndar frá 8. desember. Þá heiðraði Pútín 12 rússneska hermenn, sem hann sagði vera „rússneskar hetjur“, með heiðursmerkinu „Rússnesk hetja“ en Lesa meira

Rússnesk nýnasistasamtök óska eftir upplýsingum um NATO-ríki – Óttast að þau ráðist á Eystrasaltsríkin

Rússnesk nýnasistasamtök óska eftir upplýsingum um NATO-ríki – Óttast að þau ráðist á Eystrasaltsríkin

Fréttir
14.12.2022

Nýnasistahreyfing, sem hefur tengsl við ráðamenn í Kreml, hefur beðið félaga sína um upplýsingar um gæslu og annað á landamærum Rússlands við Eystrasaltsríkin þrjú. Þetta hefur vakið áhyggjur um hvort rússneskir öfgahægrisamtök séu að undirbúa árás á NATO-ríki. The Guardian skýrir frá þessu og segir að á hinni opinberu Telegramrás „Task Force Rusich“ hafi félagar verið beðnir um nákvæmar upplýsingar um landamærastöðvar og Lesa meira

Segir dulinn boðskap felast í ummælum Stoltenberg

Segir dulinn boðskap felast í ummælum Stoltenberg

Fréttir
13.12.2022

„Ég óttast að stríðið í Úkraínu fari úr böndunum og breiðist út og verði að stórstyrjöld á milli NATO og Rússlands. Þetta er mjög alvarlega staða og það eru örlagatímar í Evrópu og þar með fyrir Noreg. Ef þetta fer úr böndunum, getur þetta endað skelfilega.” Þetta sagði Jens Stoltenberg í spjallþættinum „Lindmo“ hjá Norska ríkisútvarpinu NRK á föstudaginn. Hér fyrir Lesa meira

Rússar sagðir notað 40 ára gömul skotfæri

Rússar sagðir notað 40 ára gömul skotfæri

Fréttir
13.12.2022

Háttsettur bandarískur embættismaður sagði í gær að Rússar séu farnir að nota 40 ára gömul skotfæri í Úkraínu. Þessi skotfæri eru að hans sögn ónákvæm. Sky News skýrir frá þessu og segir að embættismaðurinn hafi sagt að Rússar hafi dregið þessi gömlu skotfæri upp úr birgðageymslum sínum. Það bendi til þess að þeir séu tilbúnir til að Lesa meira

Rússar beina kröftum sínum að ákveðnu skotmarki og það getur komið sér vel fyrir Úkraínumenn

Rússar beina kröftum sínum að ákveðnu skotmarki og það getur komið sér vel fyrir Úkraínumenn

Fréttir
13.12.2022

Harðir bardagar hafa geisað um langa hríð í og við bæinn Bakhmut í austurhluta Úkraínu. Samkvæmt fréttum erlendra miðla þá beinir rússneski herinn megninu af kröftum sínum að Bakhmut. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði nýlega að Rússar hafi jafnað Bakhmut við jörðu og breytt bænum í rústir einar. Allt að 90% af þeim 72.000, sem bjuggu þar fyrir Lesa meira

Stoltenberg óttast að stórstyrjöld brjótist út á milli NATO og Rússlands

Stoltenberg óttast að stórstyrjöld brjótist út á milli NATO og Rússlands

Fréttir
12.12.2022

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, kom fram í spjallþættinum, „Lindmo“ í Norska ríkisútvarpinu NRK á föstudaginn. Þar ræddi hann um hvernig Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hefur breyst í gegnum tíðina.  Hann var einnig spurður hvað hann óttast mest í vetur. „Ég óttast að stríðið í Úkraínu fari úr böndunum og breiðist út og verði að stórstyrjöld á milli NATO og Rússlands. Þetta er mjög alvarlega staða og Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af