Sigmundur Ernir skrifar: Vestræn heimild til þjóðarmorðs
EyjanFastir pennarGasaströndin er helvíti á jörðu. Gereyðingarstefna ísraelskra stjórnvalda á þessu þéttbýlasta svæði heims gerir það að verkum að saklausir borgarar eru stráfelldir, innikróaðir í rústum og húsaleifum, þar á meðal þúsundir barna á þúsundir ofan. Einu gildir þótt almennir íbúar Gasa eigi enga sök á glæpaverkum Hamasliða, sem ber auðvitað að fordæma eins og önnur Lesa meira
Ákæra fyrrum forseta Bólivíu fyrir þjóðarmorð
PressanAllt frá því að forsetakosningar fóru fram í Bólivíu á síðasta ári hafa þungar ásakanir dunið á Jeanine Anez fyrrum forseta landsins. Á föstudaginn ákærðu saksóknarar hana fyrir þjóðarmorð og aðra glæpi. Í skjölum frá ríkissaksóknara landsins kemur fram að Anez er talin bera ábyrgð á dauða rúmlega 20 stjórnarandstæðinga fyrir tveimur árum. Ef hún verður sakfelld á hún 10 Lesa meira
„Þetta er þjóðarmorð. Þeir skjóta meira að segja á skugga.“
PressanFrá því að herinn í Mjanmar rændi völdum þann 1. febrúar hafa hermenn drepið rúmlega 700 óbreytta borgara sem hafa mótmælt valdaráninu. Á föstudaginn er talið að hermenn hafi drepið rúmlega 80 manns í Bago en samtökin Assistance Association for Political Prisoners telja að mun fleiri hafi verið drepnir. Fjölmiðlar í Mjanmar segja að óvissuna um fjölda látinna megi rekja til þess að Lesa meira
Flugvél var skotin niður og í kjölfarið voru 800.000 manns myrtir á 100 dögum
PressanÍ gær var aldarfjórðungur liðin síðan hræðileg atburðarás hófst í Afríkuríkinu Rúanda. Kannski má þó segja að atburaðrásin hafi hafist deginum áður. Þá var flugvél skotin niður þegar hún var að lenda í Rúanda. Um borð í henni var Juvenal Habyarimanas forseti landsins. Hann var af ættflokki Hútúa. Þetta vakti mikla reiði meðal Hútúa sem Lesa meira