Mynd
Foreldri fatlaðs barns neitað um frekari skattaafslátt - Eyddi háum fjárhæðum í að laga heimilið að þörfum barnsins
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu foreldris fatlaðs barns sem fór fram á að verða veittur frekari frádráttur frá tekjuskatti en ríkisskattstjóri hafði þegar samþykkt. Hafði foreldrið ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir á heimili sínu og barnsins.