Hver myrti litlu stúlkuna? Líkið fannst í undirgöngum nærri Stokkhólmi
PressanÞann 21. desember 2002 fannst lítil stúlka, kornabarn, í undirgöngum í Brunna í Upplands-Bro norðan við Stokkhólm. Það var 22 stiga frost þetta kvöld. Stúlkan var vafinn í hvítt koddaver. Hún var látin þegar að var komið. Málið vakti gríðarlega athygli í Svíþjóð. Margar spurningar leituðu á fólk. Hver gat gert svona lagað? Af hverju? Lesa meira
Tveimur hundum sigað á Elinu þegar hún var í útreiðartúr – Hesturinn illa bitinn
PressanÁ sunnudaginn lenti 16 ára stúlka í hræðilegri lífsreynslu þegar hún fór í útreiðartúr. Þegar hún reið framhjá knattspyrnuvelli slepptu tveir menn, sem þar voru, hundum sínum lausum og siguðu þeim á hest stúlkunnar og hana sjálfa. Hesturinn var bitinn illa en stúlkan slapp ómeidd. Þegar Elin Ildegran, sem býr í Solna í Svíþjóð, fór Lesa meira
Hvað er á seyði innan sænska hersins? Leynileg samtök til rannsóknar – Hvert er markmið þeirra?
PressanÍ tvö ár hefur sænska öryggislögreglan, Säpo, unnið að rannsókn á leynilegum samtökum sem talin eru starfa innan sænska hersins og utan hans. Rannsóknin hefur verið mjög leynileg og það var fyrst í síðustu viku sem fjölmiðlar komust á snoðir um hana. Ekki er ljóst hvaða markmið samtökin hafa eða hvaða afleiðingar starfsemi þeirra hefur Lesa meira
Grafalvarlegt ástand á Arlandaflugvellinum í Stokkhólmi – Glæpagengi stýra hluta starfseminnar
PressanÍ nýrri leynilegri lögregluskýrslu, sem sænska dagblaðið Expressen hefur komist yfir, kemur fram að mikil öryggisvandamál séu á Arlandaflugvellinum í Stokkhólmi. Í skýrslunni kemur fram að skipulögð glæpasamtök á borð við Hells Angels hafi mikil ítök á vellinum og stýri hluta starfsemi hans. Fram kemur að „margir aðilar sem tengjast glæpagengjum“ séu í mikilvægum störfum Lesa meira
Tveir skotnir til bana við skóla í Stokkhólmi
PressanTveir voru skotnir til bana við skóla í Upplands-Bro, norðvestan við Stokkhólm, á fyrsta tímanum í nótt. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins. Samkvæmt frétt Aftonbladet var tilkynnt um skothvelli klukkan 00.24. Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir mann, sem hafði verið skotinn, nærri skóla. Nokkur hundruð metrum þar frá fundu lögreglumenn annan mann Lesa meira
Lögreglumennirnir voru sendir til að kanna af hverju maðurinn hafði ekki mætt til vinnu – „Hvern fjandann sáum við?“
PressanSnemma á síðasta ári voru lögreglumennirnir Hampus og Fredrik á vakt í Bjärred í Svíþjóð. Þeir voru sendir að ákveðnu húsi þar sem þeir áttu að knýja dyra til að kanna ástandið á heimilinu því húsbóndinn hafði ekki skilað sér til vinnu þennan dag en það var mjög ólíkt honum. Enginn kom til dyra og Lesa meira
Sænskir lögreglumenn kíktu undir bíl – Þá var hringt í sprengjuna
PressanÞann 12. janúar uppgötvaði bíleigandi að eitthvað dularfullt var undir bíl hans þar sem honum var lagt á stæði í Hässelholm í Svíþjóð. Eigandinn tilkynnti lögreglunni um þetta og var svæðið girt af, íbúðarhús í nágrenninu voru rýmd og sprengjusérfræðingar fengnir á staðinn. Þegar lögreglumenn gengu að bílnum til að rannsaka hann og kíktu undir Lesa meira
Unglingur myrtur í Svíþjóð
PressanUnglingspiltur fannst látinn í skógi í Märsta í Stokkhólmi í gærkvöldi. Lögreglan telur að hann hafi verið myrtur. Tilkynnt var um líkfund í skóginum um klukkan 19 í gærkvöldi og var stórt svæði girt af og lokað fyrir allri umferð í kjölfarið vegna rannsóknar lögreglunnar. Aftonbladet skýrir frá þessu. Blaðið segist hafa heimildir fyrir að Lesa meira
Svíþjóð – Dæmdur fyrir að myrða eiginkonu sína – Hún vildi „lifa frjáls eins og sænsk kona“
Pressan48 ára karlmaður var í gær dæmdur í 18 ára fangelsi og vísað til heimalands síns frá Svíþjóð að afplánun lokinni. Það var undirréttur í Vänersborg, norðan við Gautaborg, sem kvað upp dóm yfir manninum, sem er frá Afganistan, í gær. Hann var sakfelldur fyrir að hafa myrt 35 ára eiginkonu sína. Sænska ríkisútvarpið skýrir Lesa meira
Hvar er Agnes? Dularfullt hvarf 17 ára stúlku
PressanAgnes, 17 ára, hvarf frá heimili sínu aðfaranótt 26. janúar. Sídegis þann dag sást til hennar í verslunarmiðstöð en upptaka úr eftirlitsmyndavélum sýnir að hún var í verslunarmiðstöðinni. Síðan er ekkert vitað um hana eða hvar hún getur verið. Lögreglan óttast að hún hafi ekki látið sig hverfa af sjálfsdáðum. Agnes býr í Mora í Lesa meira