„Allt í einu er öll þjóðin orðin að sérfræðingum í tveggja metra reglum og sóttvörnum“
Svarthöfði hefði haldið að tveir metrar gætu ekki orðið tilefni til rökræðu, en annað er nú komið á daginn. Vesalings þríeykið neyddist til að leggjast undir feld og hugsa sinn gang bróðurpart vikunnar enda tókst því á einum fundi að rugla svo hressilega í landanum að margir töldu jafnvel fært að halda fermingarveislur að nýju. Lesa meira
Af hverju þarf að kenna einhverjum um faraldurinn ? „Er það til of mikils mælt að fólk hætti að væla“
FréttirSvarthöfði hefur fylgst mikið með umræðunni í þjóðfélaginu síðustu daga. Það er eitt mál sem hefur verið á vörum landsmanna hvað mest. Það er að sjálfsögðu spurningin um það hverjum eigi að kenna um faraldurinn. Er þetta íþróttafólki að kenna eða er þetta tónlistarfólki og djömmurum að kenna? Er þetta túristunum að kenna? Er þetta Lesa meira
Ja-ja ding dong
Jæja nú er það svart. Eins og 2020 hafi ekki lagt nægar áskoranir fyrir Svarthöfða heldur þarf núna að ráðast með beinum hætti á geðheilsuna. Útbrunninn bandarískur leikari ákvað að blása lífi í glæður ferils síns með því að gera kvikmynd um óskabarn Evrópu, Eurovision, og ekki nóg með það heldur þurfti hann að setja Lesa meira
Setjum þingmenn í skólabúninga
Á dauða sínum átti Svarthöfði von frekar en að klæðaburður þingmanna yrði honum eitthvert hjartans máls. En þar sem málið virðist sífellt dúkka aftur upp í umræðu í pontu á Alþingi þá hreinlega getur Svarthöfði ekki setið á sér lengur. Fyrir skömmu var klæðaburður þingmanna til umræðu, ekki bara í stuttum skotum í ræðum þingmanna Lesa meira
Ógeðslega pínlegt – „Karlanginn“
Bwahahahaha“, svo hló Svarthöfði og svelgdist á morgunkaffinu þegar það kom á daginn að fjármálaráðuneytið hafi komið í veg fyrir að Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor fengi starf sem ritstjóri einhvers drepleiðinlegs norræns blaðsnepils. Hann var víst of pólitískur, eða að minnsta kosti samkvæmt Wikipedia-síðu hans. Vat ðe fokk? Þetta er svo dásamlegt mál í alla Lesa meira
Hvað næst, hænsnastígar?
Hversu hallærislegar og bjánalegar þurfa ákvarðanir borgarstjórnar að vera til þess að jafnvel lögreglan hundsi þær með öllu? Þessu var svarað á dögunum þegar fulltrúi lögreglunnar á samfélagsmiðlinum Twitter sagði lögreglu ekki sekta ökumenn sem ækju eftir nýjustu göngugötum miðborgarinnar. Svarthöfði skildi þessa ákvörðun lögreglu vel. Fyrir það fyrsta hefur Laugavegur í gegnum áratugina verið Lesa meira
Vanþakklátur ráðherra
Eftirfarandi er pistill Svarthöfða sem birtist í helgarblaði DV sem kom út á föstudag Heilbrigðisráðherra náði að skíta upp á bak í vikunni þegar hún móðgaði Kára fokkins Stefánsson í beinni útsendingu á upplýsingafundi almannavarnateymis ríkislögreglustjóra. Hvílíkt klúður. Hún fór með svakalega dramatíska ræðu, skreytta blúndum og pífum, þar sem hún þakkaði þríeykinu fræga, samfélaginu Lesa meira
Þið eruð bölvaðir plebbar!
Hvað er að frétta?“ hugsaði Svarthöfði í síðustu viku þegar Ekki-Júrógleðin svonefnda hófst á RÚV. Hvers konar gúrkutíð er í gangi í samfélaginu okkar þegar við erum farin að halda upp á að það sé ekki Eurovision-keppni? Þarna fékk þjóðin að kjósa um hvaða lag hefði fengið 12 stig frá Íslandi, hefði Eurovision-keppnin verið haldin, Lesa meira
Smábörnin á Alþingi
Svarthöfði átti ekki orð, ekki eitt aukatekið orð, eftir þingfund á þriðjudag þar sem alþingismenn beruðu, fyrir allra augum, þann sandkassaleik sem fer fram á „hæstvirtu“ Alþingi. Svo virðist sem einhugur hafi ríkt í velferðarnefnd um að kippa hlutabótaleiðinni í liðinn svo ekki væri lengur hægt að misnota hana með þeim hætti sem frá hefur Lesa meira
Látið þingmennina mína vera !
Nú getur Svarthöfði ekki setið á sér lengur. Hvaða uppþot er þetta vegna ósköp lítilvægra launahækkana hjá okkar æðstu ráðamönnum? Má ekkert lengur? Er afbrýðin og hatrið gegn þeim sem hafa það aðeins betra en við orðin þetta mikil? Það myndi ekki hvarfla að Svarthöfða að gegna þingstörfum nema hann fengi fyrir það vænar fúlgur Lesa meira