Telja að spá um endurreisn farþegaflugs rætist ekki vegna strangra aðgerða á landamærunum
EyjanBæði Isavia og Icelandair telja hættu á að spár um endurreisn farþegaflugs muni ekki rætast hér á landi vegna strangra aðgerða á landamærunum. Fréttablaðið skýrir frá þessu. Fram kemur að samkvæmt nýrri spá IATA, Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, sé gert ráð fyrir að farþegaflug innan Evrópu aukist um 75% og á milli Evrópu og Norður-Ameríku um 65% miðað við tölur ársins 2019. „Það Lesa meira
Handteknir með bílinn fullan af mat frá KFC
PressanTveir meintir meðlimir glæpagengis voru handteknir á sunnudaginn þegar þeir voru að reyna að komast til Auckland á Nýja-Sjálandi. Strangar sóttvarnaaðgerðir eru í gildi í borginni og eru veitingastaðir meðal annars lokaðir. Fólk á að halda sig heima og aðeins fyrirtæki, sem eru talin veita bráðnauðsynlega þjónustu, eru opin. Annars staðar í landinu eru sóttvarnaaðgerðir ekki eins harðar og mega veitingastaðir, Lesa meira
Sænski sóttvarnalæknirinn telur að ferðatakmarkanir muni verða í gildi í Svíþjóð í mörg ár
PressanAnders Tegnell, sóttvarnalæknir í Svíþjóð, telur að ferðatakmarkanir muni gild í Svíþjóð í mörg ár til viðbótar, það er að segja að fólk verði að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá að koma inn í landið. „Ég held að við munum sjá bólusetningarvottorð í tengslum við ferðalög í mörg ár. Þetta er krafa sem gæti varað árum saman,“ sagði hann Lesa meira
Segir að Þjóðverjar verði að búa sig undir sóttvarnaaðgerðir í vetur vegna slælegrar þátttöku í bólusetningu
PressanSíðasti vetur kemst líklegast í sögubækurnar í Þýskalandi og víðar fyrir að vera einn sá leiðinlegasti í sögunni. Ástæðan er sóttvarnaaðgerðir vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar en þær settu svo sannarlega mark sitt á daglegt líf. En Þjóðverjar verða að búa sig undir hertar sóttvarnaaðgerðir þegar vetrar. Þetta sagði Christian Drosten, yfirfarsóttafræðingur Charité háskólasjúkrahússins í Berlín, fyrir helgi. Ástæðan er slæleg þátttaka Þjóðverja í bólusetningu Lesa meira
Vaxandi áhyggjur af framboði á kaffibaunum
PressanVaxandi áhyggjur eru af framboði á kaffibaunum eftir að víetnömsk stjórnvöld gripu til takmarkana á ferðum fólks vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Það var gert til að reyna að draga úr útbreiðslu Deltaafbrigðis veirunnar. The Guardian segir að flutningskeðjur hafi rofnað eftir að Víetnam, sem er annar stærsti útflytjandi kaffis í heiminum, herti sóttvarnaaðgerðir i höfuðborginni Ho Chi Minh City og setti á ákveðnar takmarkanir á sumum Lesa meira
Ríkisstjórinn í Texas er smitaður af kórónuveirunni – Andstæðingur sóttvarnaaðgerða
PressanGreg Abbott, ríkisstjóri í Texas, er smitaður af kórónuveirunni og er nú í einangrun. Embætti hans skýrði frá þessu í gærkvöldi. Abbott, sem er Repúblikani, var bólusettur gegn veirunni á síðasta ári. Hann er sagður við góða heilsu og sýni engin einkenni smits. Eiginkona hans greindist ekki með smit og þeim sem hafa umgengist Abbott að undanförnu hefur verið tilkynnt Lesa meira
Hvað gerðist í Bretlandi? Af hverju fækkaði smitum þegar sóttvarnaaðgerðum var aflétt?
PressanÞað kom líklega flestum ef ekki öllum á óvart að í kjölfar þess að bresk stjórnvöld afléttum sóttvarnaaðgerðum þann 19. júlí, deginum sem Boris Johnson forsætisráðherra hefur nefnt Freedom Day, hefur kórónuveirusmitum fækkað í landinu. Flestir höfðu búist við að smitum myndi fjölga og svartsýnustu spár hljóðuðu upp á 200.000 smit á dag innan ekki svo langs tíma. Sajid Javid, heilbrigðisráðherra, studdi afléttingu sóttvarnaaðgerðanna en sagði að smitin gætu orðið Lesa meira
Vilja opna Nýja-Sjáland fyrir útlendingum vegna skorts á vinnuafli
PressanVegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar hafa landamæri Nýja-Sjálands verið lokuð til að halda veirunni fjarri. En nú standa landsmenn frammi fyrir nýjum vanda vegna þessa. Eftir 18 mánaða lokun landamæranna er farið að bera á skorti á vinnuafli því útlendingar hafa ekki getað komið til landsins til að vinna. Jacinda Ardern, forsætisráðherra, sæti því miklum þrýstingi þessa dagana Lesa meira
Hörður segir að nú sé nóg komið – Taka þurfi völdin af sóttvarnalækni
Fréttir„Áfram heldur fárið. Þrátt fyrir að sumir fjölmiðlar og sóttvarnayfirvöld reyni að telja okkur ítrekað trú um annað, þá er ekki nokkurt neyðarástand í gangi. Það hlýtur því raunar að vera orðið lögfræðilegt vafamál hvort sóttvarnalæknir hafi enn umboð til þess að grípa til aðgerða á borð við þær að skikka reglulega með valdboði þúsundir fullfrískra bólusettra einstaklinga, með Lesa meira
Mörg fyrirtæki grípa til eigin ráðstafana vegna kórónuveirufaraldursins
FréttirMargir atvinnurekendur eru farnir að grípa til sóttvarnaaðgerða á vinnustöðum umfram þær sem krafa er gerð um í reglugerð heilbrigðisráðherra. Hafa þeir áhyggjur af að smitrakningarteymið geti ekki sinnt öllum sem þarf að sinna og kalla eftir leiðbeiningum til fyrirtækja. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. „Þótt samkomutakmörkunin sé miklu rýmri en hún var í tíð fyrri bylgna faraldursins Lesa meira