Afgerandi forskot Biden í nýrri skoðanakönnun
EyjanJoe Biden hefur vind í seglin þessa dagana miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar um fylgi forsetaframbjóðendanna. Samkvæmt könnuninni hyggjast 51% kjósenda kjósa Biden en 41% Donald Trump, sitjandi forseta. Könnunin var gerð af Ipsos fyrir Reuters og sýna niðurstöðurnar mesta forskot Biden á Trump í heilan mánuð. Könnunin var gerð 2. og 3. október, það er að segja eftir að kjósendur fengu vitneskju Lesa meira
Katrín Jakobsdóttir er sá ráðherra sem flestir treysta
EyjanKatrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, er sá ráðherra sem flestir treysta og er óhætt að segja að hún beri höfuð og herðar yfir aðra ráðherra hvað þetta varðar. 18,5% segjast bera mest traust til hennar en þar á eftir kemur Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sem nýtur trausts 10,8% og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sem nýtur trausts 10,7%. Lesa meira
Vinstri græn og Miðflokkurinn tapa fylgi – 40% styðja ríkisstjórnina
EyjanSamkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið í lok síðustu viku þá tapa Vinstri græn og Miðflokkurinn fylgi. Fylgi ríkisstjórnarinnar mælist 40,8% og hefur ekki verið svo lítið síðan í janúar á þessu ári þegar það mældist rúmlega 35%. Það er fylgi Vinstri grænna sem dregur fylgi ríkisstjórnarinnar niður. Flokkurinn hefur yfirleitt mælst með Lesa meira
Borgarstjórnarmeirihlutinn bætir við sig fylgi – Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi
EyjanSamkvæmt nýrri skoðanakönnun þá bæta flokkarnir, sem mynda meirihluta í borgarstjórn, við sig fylgi. Þeir mælast með um 58% fylgi og myndu bæta við sig þremur borgarfulltrúum ef kosið yrði núna. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mesta fylgið en tapar fylgi miðað við síðustu kosningar. Fréttablaðið skýrir frá þessu og vísar í könnun sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir blaðið. Lesa meira
Miðflokkurinn þurrkast út af þingi samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar
EyjanÓhætt er að segja að áhrifa Klaustursmálsins gæti þegar fylgi stjórnmálaflokka er annars vegar því samkvæmt nýrri könnun myndi Miðflokkurinn þurrkast út af þingi ef kosið væri í dag og fengi aðeins um þriðjung þess fylgis sem hann fékk í síðustu kosningum. Könnun var gerð 3. og 4. desember af Zenter fyrir Fréttablaðið og frettabladid.is. Lesa meira