Krítíkleysi og ónæmi fyrir staðreyndum
EyjanHvers vegna segir biskupinn yfir Íslandi að það sé sorglegt að þjóðfélagið sé þannig að lögreglan þurfi á hríðskotabyssum að halda? Höfum við einhver dæmi úr sögu Íslands um að lögregluaðgerðir hefðu veri betur heppnaðar ef byssum hefði verið beitt? Þurfti byssur í búsáhaldabyltingunni? Hvaða gagn gerðu byssurnar þegar geðveikur maður var skotinn í Árbænum Lesa meira
Jack Bruce 1943-2014
EyjanJack Bruce var bassaleikari, söngvari og lagahöfundur í þeirri sögufrægu hljómsveit Cream. Sjaldan hafa jafn stórir og ráðríkir karakterar mæst í einu bandi og í Cream – Bruce, Eric Clapton og Ginger Baker. Enda entist það ekki lengi. Hljómsveitin starfaði frá 1966-1968. Jack Bruce er dáinn, 71 árs að aldri. Hann leit reyndar á sig Lesa meira
Icesave-klúður – hörð afstaða Sigmundar
EyjanMaður leggur við hlustir þegar Andri Geir Arinbjarnarson skrifar. Hann er óháður hagsmunaklíkunum hér heima og á ekki heldur neinna slíkra hagsmuna að gæta að hann þurfi að vera að endurskoða söguna. Greining Andra á efnahagsmálum er yfirleitt mjög glögg og hann hlífir engum. Andri skrifar hér á Eyjuna í dag um Icesave sem ennþá Lesa meira
Almannatengsl 101 – lögreglan í búsáhaldabyltingunni
EyjanUmræðan um vélbyssuvæðingu lögreglunnar heldur áfram að vera á furðulegum nótum. Ráðamenn halda áfram að svara í einhvers konar hálfkæringi, eins og þetta sé nú ekkert mál. Staðreyndin er hins vegar sú að margt fólk upplifir þetta öðruvísi. Því finnst þetta vera grundvallarmál í okkar fámenna og friðsama landi þar sem vopnum er afar sjaldan Lesa meira
Alvarleg bilun í vélarrúmi kapítalismans
EyjanÍ nýju hefti Der Spiegel er fjallað um það hvernig kapítalisminn hefur farið af hjörunum. Við lifum tíma þegar kapítalistar eru í raun verstu óvinir kapítalismans. Einn helsti vandi kapítalismans í dag – og sumum þeim sem mest auðgast er kannski skítsama um þetta – er að auðurinn er ekki að dreifast um hin ýmsu Lesa meira
Dæmi um litla stjórnvisku
EyjanSérkennilegt er það stóra byssumálið sem gaus upp í þessari viku. Þarna er ljóslifandi dæmi um hvernig mál, sem þarf í sjálfu sér ekki að vera svo stórt, blæs upp vegna þess að stjórnsýslan gerir hverja vitleysuna á fætur annarri. Þegar DV birtir fréttina um lögregluna og byssurnar vill enginn eða getur enginn gefið skýr Lesa meira
Ýmsir möguleikar – ef við leyfum ekki öllu að fara í háaloft
EyjanFlugbraut í Reykjavík sem löngu var búið að ákveða að yrði aflögð, fór allt í einu að heita Neyðarbraut með stóru N-i – einungis í áróðursskyni. Við horfum upp á það hvernig innanlandsflugið er að veslast upp á sama tíma og ferðamönnum fjölgar stöðugt. Verðið á farmiðum er hryllilega dýrt. Það er eitthvað í ólagi Lesa meira
Mikil andstaða við sölu áfengis í matvörubúðum
EyjanÞað er alveg ljóst að það er býsna fámennur hópur sem brennur í andanum vegna sölu áfengis í matvöruverslunum. Skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag sýnir að tveir þriðjuhlutar aðspurðra eru á móti því að svo verði. En eins og segir, þetta er ekki mjög ofarlega í huga fólks – ólíkt til dæmis heilbrigði-, mennta- og atvinnumálum Lesa meira
Líka á Íslandi
EyjanÍ gær birtist hér pistill um hvernig glæpatíðni hefur farið lækkandi á Vesturlöndum. Þessi þróun er semsagt alþjóðleg, sömu sögu er að segja frá Íslandi. Í fyrra birtust þessar tölur í frétt Ríkisútvarpsins. Umferðarslysum hafði fjölgað, en glæpum hafði fækkað. Í pistlinum í gær var vitnað í úttekt tímaritsins Economist. Þar var hvatt til þess Lesa meira
Öfug áhrif Farages – tryggir hann veru Breta í Evrópusambandinu?
EyjanNý skoðanakönnun sýnir að fylgi við veru Bretlands í Evrópusambandinu hefur tekið óvænt stökk. 56 prósent Breta vilja vera áfram í ESB samkvæmt könnuninni, það er hæsta hlutfall síðan 1991. Þetta eru merkileg tíðindi, og skýringin virðist helst vera ein – framsókn Ukip, flokksins sem er harðastur á móti aðildinni að ESB. Foringi Ukip er Lesa meira