Litlar álögur á hótelgistingu
EyjanÁ vefnum Túristi.is birtast merkilegar upplýsingar um gistináttagjald á hótelum í erlendum borgum – til dæmis í borgum sem Icelandair flýgur til. Við höfum semsagt mörg lent í því að borga þetta gjald þegar við förum til útlanda. Þarna eru borgir eins og Amsterdam, Barcelona, Berlín, New York, París, Seattle og Toronto. Gjaldið er misjafnlega Lesa meira
Ráðherraembætti eru ekki svona merkileg
EyjanÓlöf Nordal er mæt kona. Valið á henni í ráðherraembætti er samt ekki styrkleikamerki fyrir Sjálfstæðisflokkinn, heldur þvert á móti. Það þurfti að fara Fjallabaksleið til að koma í veg fyrir að Ragnheiður Ríkharðsdóttir yrði ráðherra. Varla finnst nein skýring á því önnur en að Ragnheiður hefur verið höll undir aðild að Evrópusambandinu. Annars er Lesa meira
Vægast sagt umdeildur náttúrupassi
EyjanÞað verður að segjast eins og er – náttúrupassinn er að fá hrikalega vond viðbrögð. Ýmislegt kemur til. Fólk les fréttir um að það megi ekki vera á Þingvöllum án þess að borga. Og svo velta menn fyrir sér stjórnsýslunni í kringum þetta. Verður hún ekki rándýr? Hvað kostar eftirlitið með því að allir hafi Lesa meira
Breytingar á ríkisstjórninni?
EyjanMenn velta því fyrir sér hvort verði meiri breytingar á ráðherraskipan í dag en að einfaldlega verði settur sjálfstæðismaður í embætti innanríkisráðherra. Innanríkisráðuneytið er ekki nema hálft núna frá því sem var – dómsmálaráðuneytið var sett í forsætisráðuneytið þegar vandræði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fóru að ágerast. Það var heldur vandræðalegur gjörningur og varla ætlunin að Lesa meira
Nauðsyn að hægriflokkar og kratar nái saman gegn öfgum
EyjanÞað eru mjög skuggaleg tíðindi að ríkisstjórnin í Svíþjóð hafi fallið fyrir tilstuðlan hægriöfgaflokksins Svíþjóðardemókrata. Nú hefur verið boðað til kosninga 22. mars – þangað til verður í Svíþjóð veik bráðabirgðastjórn. Hægri og miðflokkar ætla saman í kosningabandalag, eins og áður. Ef þeir komast til valda verður það Svíþjóðardemókrötum að þakka. Svíþjóðardemókratarnir fengu 12,9 í Lesa meira
Tvíhöfði: Reykjavíkurflugvöllur er fallegastur
EyjanÞað verður að segjast eins og er, hér eru fyrrverandi borgarstjóri, Jón Gnarr, og félagi hans, Sigurjón Kjartansson í essinu sínu. Þetta er Tvíhöfði í Hlaðvarpi Kjarnans. Spurt er: Hver er fallegasti staður á Íslandi? Og svar hlustenda sem hringja inn er á einn veg: Reykjavíkurflugvöllur.
Orð að sönnu, Gyrðir, Ástarmeistarinn, 1864, Simmasjoppa
EyjanÍ Kiljunni á miðvikudagskvöld fjöllum við um stórvirki Jóns Friðjónssonar prófessors sem nefnist Orð að sönnu. Þetta er stórt yfirlitsrit um íslenska málshætti og orðskviði. Gyrðir Elíasson er í viðtali í þættinum, en hann sendir frá sér tvær bækur með frumsömdu efni nú fyrir jólin, smásagnasafnið Koparakur og Lugnafiska sem er safn af smáprósum. Oddný Lesa meira
Stjórfelld lækkun á framlögum til RÚV
EyjanMaður er dálítið hugsi yfir því sem er að ganga yfir Ríkisútvarpið. Ár eftir ár hefur verið mikil óvissa um rekstur þess, það hefur verið niðurskurður og uppsagnir. Álagið á starfsfólk vegna þessa hefur verið mikið. Fjöldi fólks hefur misst vinnuna, aðrir hafa bætt við sig störfum til að fylla upp í skörð. Nú hefur Lesa meira
Þjóðarsátt – um hvað?
EyjanÞorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, talar um „ístöðuleysi í launaþróun á opinberum markaði“ í viðtali við Rúv. Þetta er býsna ófyrirleitið í ljósi þess að laun hafa hækkað mest hjá forstjórum. Græðgi og sjálftaka í forstjóraveldinu virðist eiga sér lítil takmörk – og það er reyndar alþjóðleg þróun. Hvarvetna eykst ójöfnuður. Þorsteinn vill fá „þjóðarsátt“. Lesa meira
Málamiðlun
EyjanÉg hef alltaf haft mikla trú á málamiðlunum. Það er oft mjög ósanngjarnt ef einn málsaðili fær öllum sínum kröfum framgengt – slíkt getur valdið sárindum sem endast lengi. Við höfum mýmörg dæmi um það. Nú er deilt um hvort flýta eigi klukkunni. Þorsteinn Sæmundsson, stjörnufræðingur og ritstjóri Almanaks Háskólans, kemur einmitt inn á þetta Lesa meira