Áfram Ísland
EyjanHér halda allir með Íslandi. Kannski býst maður ekki við sigri í kvöld, en þetta er allt mjög frækilegt. Uppstilling: Sigurveig.
Icelandairíska
EyjanVið fjölskyldan höfum þóst taka eftir því á ferðum okkar til og frá landinu að þróast hefur ákveðin útgáfa af íslenskri ensku sem við köllum icelandairísku. Hana má heyra í auglýsingum og sjá í ýmiss konar kynningarefni. Icelandairískan er borin fram skýrt, með nokkuð hörðum framburði, þetta er enska með íslenskum hljómi. Þegar orðið Iceland Lesa meira
Úrslit kosninganna
EyjanÚrslitin í kosningunum í gær voru ekki sérlega óvænt, en það er samt ýmislegt sem maður staldrar við. Guðni Th. Jóhannesson er öruggur sigurvegari, en honum tókst samt að missa stóran hluta fylgisins sem hann hafði í skoðanakönnunum í kosningabaráttunni. Hann endar í 38,9 prósentum (samkvæmt tölum klukkan 7.22) – var með yfir 60 prósent Lesa meira
Nú talar Guðni líkt og Ólafur Ragnar og Sigmundur Davíð
EyjanÞað verð ég að segja eins og er, þetta er heldur klént svar hjá verðandi forseta Íslands – og furðu líkt því sem maður er að heyra úr munni Ólafs Ragnars Grímssonar og Sigmundar Davíðs. Það kemur á óvart að Guðni tali með svo yfirborðslegum hætti. Að í svona risavöxnu máli sem varðar samtíð og Lesa meira
Úrslit sem sundra í allar áttir
EyjanÞjóðaratkvæðagreiðslan breska fer í rauninni eins illa og hún gæti farið. David Cameron efnir til hennar vegna innanflokksátaka í Íhaldsflokknum og vegna ógnar frá sjálfstæðisflokknum UKIP. Svo þarf að efna loforðið um atkvæðagreiðsluna – og þá sundrast Bretland gjörsamlega. David Cameron lyppast niður og fer frá völdum. Pólitísk arfleið hans er að engu orðin. Hann Lesa meira
Gerum betur! Áfram Ísland!
EyjanÞað er orðin til frásögn, sem maður heyrir bergmála hjá öllum erlendum íþróttafréttamönnum, um þjóðina sem fjárfesti í fótbolta. Litla landið sem lætur ekkert aftra sér. Gervigras, góður vinnumórall og metnaður – „Við gætum öll lært mikið af þeim,“ þráast þeir hér í EM-stofunum. Þetta skrifar Fríða Garðarsdóttir á Facebook í framhaldi af hinni miklu Lesa meira
Leikurinn í Nice, heiðursborgarinn Albert og hefndin fyrir Icesave
EyjanNú er maður farinn að lesa að leikur Íslands og Englands í Nice á mánudaginn verði hefnd fyrir Icesave. Og jafnvel þorskastríðin líka. Jú, það var óhjákvæmilegt að þetta yrði nefnt. Er ekki hægt að finna eitthvað fleira til að hefna fyrir? Innrás Breta 5. maí 1940, þegar sagt er að Íslendingum hafi verið kippt Lesa meira
Ævintýri landsliðsins – snilldarleikur Gumma Ben
EyjanÞetta er eins og ævintýri. Ég var svartsýnn fyrir leikinn, eins og endranær. Sonur minn var bjartsýnn – hann er það að eðlisfari. Gott hvað hann hefur haft oftar rétt fyrir sér í þessari keppni en ég. En æðið á Íslandi er slíkt að meira að segja systir mín er komin til Parísar að horfa Lesa meira
Óáhugaverðar kosningar – en sannarlega ekki þær fyrstu
EyjanVinur minn einn, glöggur á pólitík, sagði að hann hefði ekki upplifað óáhugaverðari og minna spennandi kosningar á Íslandi en forsetakosningarnar á laugardaginn. Það kann að vera rétt – en ég fór að hugsa, þær eru fleiri kosningarnar sem hafa ekki verið sérlega áhugaverðar. Ég held ég hafi notað atkvæði mitt fyrst í forsetakosningum 1980, þá Lesa meira
Úrslitin réðust í apríl
EyjanÞað eru forsetakosningar eftir fimm daga en kosningabaráttan virkar eins og hálfgert mjálm. Það auðvitað engin spenna í þessu – og það er enginn kraftur heldur. Úrslitin eru líka svo gott sem ráðin; þau hafa eiginlega verið það síðan í apríl þegar fór af stað röð atburða. 1. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lenti í vandræðum vegna Lesa meira