fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024

Silfuregils

Dauði Salek samkomulagsins

Dauði Salek samkomulagsins

Eyjan
01.11.2016

Það verður forvitnilegt að sjá viðbrögð þingmanna við hinni gríðarlegu launahækkun sem Kjararáð skammtaði þeim, ráðherrum og forseta Íslands. Í þessu sambandið er rifjað upp að stutt er síðan æðstu embættismenn ríkisins fengu mikla launahækkun hjá Kjararáði – fóru upp í tvær milljónir á mánuði sumir hverjir. Og þetta er önnur stór launahækkun til stjórnmálamanna Lesa meira

„Við skulum bíða með að birta þetta fram yfir kosningar, það verður allt vitlaust“

„Við skulum bíða með að birta þetta fram yfir kosningar, það verður allt vitlaust“

Eyjan
31.10.2016

Ætli meðlimir í Kjararáði hafi hugsað: „Við skulum bíða með að birta þetta fram yfir kosningar, það verður allt vitlaust.“ Er það ekki? Er tilviljun að úrskurður þar sem laun stjórnmálamanna stórhækka birtist daginn eftir kosningar? Því víst er að þetta hefði valdið ólgu og óánægju á kjördegi. Er jafnvel hugsanlegt að fleiri hefðu kosið Lesa meira

Ófriðlegt á Framsóknarheimilinu

Ófriðlegt á Framsóknarheimilinu

Eyjan
31.10.2016

Líklega hugsa aðrir flokkar sig tvisvar um áður en þeir fara í samstarf með Framsóknarflokki þegar birtist frétt sem var svona framsett á  mbl.is en kemur úr Fréttablaðinu.     Vigdís Hauksdóttir var á sömu nótum á Facebook strax eftir kosningar.     Svo birtist Sigurður Hannesson, einn helsti stuðningsmaður Sigmundar Davíðs, og setur fram Lesa meira

Þrír helstu möguleikarnir á myndun ríkisstjórnar

Þrír helstu möguleikarnir á myndun ríkisstjórnar

Eyjan
31.10.2016

Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð og Viðreisn: Afar naumur meirihluti og gæti fengið harða mótspyrnu í þinginu. Þyrfti að byggjast upp á því að mjög góður agi væri í liðinu og málefnasamningurinn nákvæmur, enginn þingmaður má ganga úr skaftinu. Björt framtíð gæti fengið menntamálin og umhverfismálin, Viðreisn aftur fjármálaráðuneytið og viðskiptaráðuneytið. Björt framtíð átti viðræðum vinstra megin fyrir Lesa meira

Ekki einhlítt að flokkar veslist upp í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn

Ekki einhlítt að flokkar veslist upp í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn

Eyjan
31.10.2016

Það er endurtekið út um allt að flokkar sem fari í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn lendi í gríðarlegum vandræðum. Að Sjálfstæðisflokkurinn éti þá einhvern veginn upp, nærist á þeim. Það kann þó að vera að þetta sé kenning sem stenst ekki alveg nánari skoðun. Þetta er sérstaklega rætt í tengslum við hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna og Lesa meira

Hrun Samfylkingarinnar og hliðstæðan frá Grikklandi

Hrun Samfylkingarinnar og hliðstæðan frá Grikklandi

Eyjan
30.10.2016

Hvað gerir flokkur sem er með 30 prósenta fylgi í kosningum 2009, 12,9 prósent í kosningum 2013, en 5,7 prósent í kosningum 2016? Þetta er staðan hjá Samfylkingunni. Annað eins hrun er óþekkt í sögu íslenskra stjórnmála. Flokkurinn nær inn þremur þingmönnum, þar af eru tveir þingmenn í landsbyggðarkjördæmum sem líklega fara inn vegna persónulegra Lesa meira

Tíminn þegar Framsókn þótti tæk í vinstri stjórn

Tíminn þegar Framsókn þótti tæk í vinstri stjórn

Eyjan
30.10.2016

Eitt sinn var það svo að vinstri stjórnir á Íslandi voru myndaðar með aðkomu Framsóknarflokksins. Það var oftar að kratar væru ekki með – þeir unnu með Sjálfstæðisflokknum. En leiðtogar Framsóknar, Ólafur Jóhannesson og Steingrímur Hermannsson, stukku fimlega milli hægri og vinstri stjórna. Ef við förum lengra aftur var reyndar hugmyndin sú að Alþýðuflokkurinn og Lesa meira

Bjarni Ben eða Kata Jak?

Bjarni Ben eða Kata Jak?

Eyjan
30.10.2016

Um það er deilt á samskiptamiðlum hvaða flokksformaður fái stjórnarmyndunarumboð. Reyndar virkar þetta þannig að ef úrslitin eru nokkuð skýr, og ljóst hverjir starfa saman, þarf ekki sérstakan atbeina forseta. En sú virðist ekki vera raunin í þetta skipti – það er líklegt að komi til kasta Guðna Th. Jóhannessonar. Stjórnarmyndun gæti jafnvel tekið margar Lesa meira

Kjörsóknin sem áhrifavaldur í kosningunum – önnur ríkisstjórnarmynstur

Kjörsóknin sem áhrifavaldur í kosningunum – önnur ríkisstjórnarmynstur

Eyjan
28.10.2016

Sjálfstæðismenn eru í sókn þegar styttist óðfluga í að kjörstaðir opni. Nú eru teikn á lofti um að flokkurinn nái kjörfylginu frá því 2013, það eru viðunnandi úrslit fyrir flokkinn eftir lakt gengi í skoðanakönnunum lengi á þessu kjörtímabili. Hann gæti jafnvel bætt við sig frá 2013 – sem myndi teljast sigur. Ríkisstjórnin fellur vegna Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af