Máli vísað frá
EyjanÍ vetur skrifaði ég litla færslu þar sem ég nefndi mál Egils Einarssonar sem kallaður er Gilzenegger. Ég sagði að best væri að hafa ekki alltof mörg orð um málið, það yrði varla gert út um það í fjölmiðlum. Nú hefur málinu verið vísað frá, það er enn á huldu hvers vegna sú er niðurstaðan. Lesa meira
Hverfandi forsetakosningar
EyjanÍ Vesturheimi hitti ég mann af íslenskum ættum, fæddan í Kanada, bónda og skáld. Hefði ég átt að stinga upp á forseta fyrir Ísland þá hefði þessi maður orðið fyrir valinu. Hann er leiðtogi í sínu byggðarlagi vegna innri styrks, visku og rósemi. En það er nánast eins og forsetakosningarnar séu að hverfa. Maður verður Lesa meira
Frosti: Grískt bókhald í Vaðlaheiðargöngum
EyjanFrosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur skrifar meitlaða grein um Vaðlaheiðargöng sem Alþingi samþykkti að bora nú í vikunni, þar segir meðal annars: „Einhverjir þingmenn og örfáir vinir þeirra hafa þá lífskoðun að það taki heilum níu mínútum of langan tíma að aka Víkurskarð. Þrátt fyrir að leitun sé að fallegra útsýni en ber fyrir augu í þessar Lesa meira
Slappt á sautjándanum
EyjanÞað verður að segjast eins og er að hátíðarhöld 17. júní, á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, hafa verið fremur döpur í nokkuð mörg ár. Það er líkt og fjörið sé miklu meira á menningarnótt eða á Gay Pride – kannski eru þetta hinir raunverulegu þjóðhátíðardagar núorðið? En þetta þarf auðvitað ekki að vera svona – sautjándinn Lesa meira
Kosið aftur í Grikklandi á sunnudag
EyjanÞegar örfáir dagar eru til þingkosninganna í Grikklandi, kosninga númer tvö á stuttum tíma, bendir flest til þess að hægriflokkurinn Nýtt lýðræði sé að auka fylgi sitt. Þetta er flokkurinn sem var við völd frá 2004-2009, á tímanum þegar kom í ljós að gríska hagkerfið var ósjálfbært. Nú er eitt slagorð flokksins „drakman er dauði“ Lesa meira
Við þurfum fjölbreyttara efnahagslíf
EyjanÁ árum áður var oft talað um að einhæfni íslensks efnahagslífs væri vandamál. Frasinn var að þyrfti að skjóta fleiri stoðum undir það. Svo urðu Íslendingar snögglega fjármálaþjóð – töldu sig besta í heimi í þeirri starfsemi. Það er eftirminnilegt að árið 2007, þegar tilkynnt var um mikinn niðurskurð í fiskveiðum haggaðist íslenska hlutabréfavísitalan ekki. Lesa meira
Sukk í Sparisjóði Keflavíkur
EyjanÞað eru liðin hátt í fjögur ár frá hruni – og það er farið að fenna yfir ýmislegt. Eitt af því sem maður var farinn að gleyma eru hinar skelfilegu lýsingar á því hvernig Sparisjóði Keflavíkur var stjórnað. Ríkisútvarpið rifjaði þetta upp í gærkvöldi – og maður spyr sig: Hvers vegna í ósköpunum er ekki Lesa meira
Snjóhengjur
EyjanÍ erlendum fjölmiðlum er mikið fjallað um hversu vel gangi á Íslandi miðað við lönd sem hafa lent í efnahagskreppum. Íslandi er haldið á lofti eins og fyrirmynd annarra þjóða. En það kannski eitt og annað sem er ekki tekið með í reikninginn. Það eru til dæmis gjaldeyrishöftin. Sá grunur verður æ áleitnari að innan Lesa meira
Kröfur um þjóðaratkvæði í Bretlandi
EyjanÞeim Bretum sem vilja ganga úr Evrópusambandinu fjölgar stöðugt – enda þótt ólíklegt sé að ríkisstjórn Íhaldsflokksins vilji fara þá leið. En á aftari bekkjum þinghússins í Westminster eru stjórnarliðar sem vilja láta á þetta reyna í þjoðaratkvæðagreiðslu – hin ráðandi öfl í Íhaldsflokknum reyna að hafa þessi andstöðuöfl góð en slík þjóðaratkvæðagreiðsla færi væntanlega Lesa meira