100 ára stórleikari – í frábæru atriði Kubricks
EyjanLeikarinn Kirk Douglas er 100 ára í dag. Ferill hans er ótrúlega magnaður, en reis hæst á seinni hluta sjötta áratugarins og fyrri hluta þess sjöunda. Hér er hann í magnaðri senu úr bestu kvikmynd Stanleys Kubrick, að öðrum ólöstuðum, Paths of Glory. Myndin gerist í fyrri heimstyrjöld. Douglas er liðsforingi sem gengur langa leið Lesa meira
Ekki íslenska
EyjanÚr lesskilningsverkefni Pisa-prófsins. Það er kannski ekki furða að nemendur hafi ekki skilið það. Maður gerir það varla sjálfur. Þetta er ekki íslenska, heldur hrá þýðing úr erlendu máli, líkast til ensku.
„Gæti stefnt í annað hrun“
EyjanErum við komin þangað? Þetta er forsíða Morgunblaðsins í dag. Fyrir íslenska neytendur er styrking krónunnar náttúrlega visst gleðiefni. Kaupmátturinn vex eftir langt skeið þar sem hann var slakur. Það er annað mál með útgerðina og ferðaþjónustuna sem hafa lifað afskaplega góða daga undanfarið. Verður verkefni næstu ríkisstjórnar að reyna að kalla fram gengisfellingu? Og Lesa meira
Frelsa oss frá illu
EyjanBesta greinin í fjölmiðlunum daginn sem fréttir berast um að Donald Trump hafi skipað þekktan loftslagsafneitara sem yfirmann umhverfisstofnunar Bandaríkjanna er eftir Þóri Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprest. Hún birtist í Fréttablaðinu. Þórir lætur í ljósi miklar áhyggjur af þróun heimsmála: Eitt af því, sem nú virðist geta leitt til mikillar hættu á alþjóðavettvangi, er afleiðingar forsetakosninganna í Lesa meira
Vægðarlaus innrás enskunnar
EyjanEitt lykilatriði varðandi íslenskt menntakerfi er að nemendur, börn og unglingar, hrærast nú mikið til í veruleika sem er á ensku. Tölvuleikir eru á ensku, efnið á YouTube er á ensku, efnið á Netflix og slíkum veitum er á ensku, mikið af því sem er að finna á samskiptamiðlunum er á ensku. Þegar kennslustundum í Lesa meira
Guðni Th. og fyrirmyndin frá Kristjáni Eldjárn
EyjanGuðni Th. Jóhannesson er nýbúinn að gefa út bók um fyrstu forseta lýðveldisins, fram að Ólafi Ragnari Grímssyni. Manni sýnist að Guðni horfi helst til hins Kristjáns Eldjárn um fyrirmynd að því hvernig hann gegnir embættinu – þótt auðvitað séu aðrir tímar. Það er ekki leiðum að líkjast, Kristján var ástsæll forseti, naut hylli og Lesa meira
Besti vinur minn Pawel á tvö áhugamál
EyjanTexti til lesenda Dodda – bókar sannleikans, eftir Þórdísi Gísladóttur og Hildi Knútsdóttur. Um hana verður fjallað í Kiljunni á næstunni – ásamt fleiri barna- og ungmennabókum. Samt er ekki víst að öll börn skilji tilvísunina. Þessi bók er ALLS EKKI þannig. Hún fjallar um líf mitt. Ég er fjórtán ára og á mér aðallega Lesa meira
Vill VG láta kjósa upp á nýtt?
EyjanVinstri græn eru mjög brennd af vistinni í ríkisstjórninni 2009 til 2013 þegar flokkurinn lagðist í hjaðningavíg – þau eru meira að segja rifjuð upp í bók sem kom út á þessu ári, Villiköttunum eftir Jón Torfason. Nokkrir af þeim sem létu ófriðlegast létu sig hverfa úr flokknum og á síðasta kjörtímabili virtist Katrín Jakobsdóttir Lesa meira
EES virkar vel fyrir Norðmenn, en þeir þurfa að borga, taka upp reglurnar og eru ekki í herberginu þegar ákvarðanir eru teknar
EyjanBretar verða að skilja að það er engin leið til að þeir geti fengið aðild að sameiginlega markaðnum án þess að borga í sjóði Evrópusambandsins og undirgangast ýmsar reglur þess. Þetta segir Börge Brende, utanríkisráðherra Noregs, en hann hitti í dag kollega sinn breskan, Boris Johnson, og David Davis sem fer með málefni úrsagnar Bretlands Lesa meira
Kreppa Evrópusambandsins er langt í frá búin
EyjanMenn varpa öndinni léttar yfir því að hægriöfgamaðurinn Norbert Hofer tapaði forsetakosningum í Austurríki. Tala jafnvel um þetta eins og það sé til marks um að vindáttin í stjórnmálunum sé að breytast. En það er langt í frá. Sömu helgi tapar Matteo Renzi, einn skásti stjórmálamaður Evrópu, þjóðaratkvæðagreiðslu og segir af sér. Ítalía er eitt Lesa meira