Söguleg ljósmynd – með skírskotun til nútimans
EyjanGunnar Smári Egilsson dró upp þessa gömlu mynd og setti á Facebook. Hún er tekin af einum snjallasta blaðaljósmyndara þjóðarinnar, Gunnari V. Andréssyni. Sviðið er landsfundur Sjálfstæðisflokksins 1981. Þá hafði Gunnar Thoroddsen, þáverandi varaformaður, klofið Sjálfstæðisflokkinn og myndað ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Alþýðubandalagi. Pálmi Jónsson sem stendur og klappar ekki við hlið hans var líka Lesa meira
Píratar í vandræðum vegna femínisma
EyjanÞá er fundin þriðja vefsíðan þar sem frambjóðendur Pírata fara algjörlega á skjön við femínisma og það sem femínistum er heilagt. Nú er það frambjóðandinn sem er í efsta sæti í Reykjavík norður, áður var það frambjóðandinn sem er í efsta sæti í Reykjavíku suður, þetta er semsagt ekki bara bundið við þann sem er Lesa meira
Bjarni fékk samúð – og Hanna Birna fór að líta út eins og plottari
EyjanÞað er skrítið hvernig hlutir þróast í pólitík. Einn leikur getur haft þær afleiðingar að allt færist upp á næsta borð – svo notuð sé líking úr tölvuleikjum. Og skyndilega geta hlutirnir litið allt öðruvísi út. Í gærkvöldi og morgun virtist nánast einboðið að Bjarni Benediktsson myndi segja af sér sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Manni fannst Lesa meira
Að gefa Framsókn tækifæri til að efna loforðin
EyjanSumir segja að vandamál Sjálfstæðisflokksins sé ekki Bjarni Ben heldur Framsóknarflokkurinn. Framsóknarflokkurinn hefur einfaldlega náð eyrum kjósenda með Icesave og loforðum um skuldaniðurfellingu. Og hann stendur saman, það verður ekki vart við nein innanflokksátök, og formaðurinn virkar með sjálfstraust í lagi. Það virkar ekki einu sinni þótt hinir flokkarnir hamri á því að kosningaloforð Framsóknar Lesa meira
Vegið úr launsátri
EyjanVegið úr launsátri er klassískt nafn á spennusögu á Íslandi. Og ætli megi ekki segja að þetta sé að koma fyrir Bjarna Benediktsson, það er verið að vega hann úr launsátri. Hann er ekki vinsæll og hann fælir líklega atkvæði frá Sjálfstæðisflokknum fremur en hitt – í gær sýndi hann reyndar á sér hlið í Lesa meira
Hjaðningarvíg í Sjálfstæðisflokknum – segir Bjarni af sér eftir að hafa fengið 79 prósent á landsfundi?
EyjanEr ekki ljóst að formaður stjórnmálaflokks sem segist íhuga afsögn rétt fyrir kosningar, hlýtur að láta verða af því að segja af sér? Annars væri hann varla að ljá máls á þessu? Með þessu er hann að gefa vangaveltum byr undir vængi, þær verða varla stöðvaðar úr þessu. Annar möguleiki er auðvitað sá að hann Lesa meira
Skipulagsmistök í hinum hýra Hafnarfirði
EyjanÉg fer stundum í Hafnarfjörð og skoða mig um í gömlu hverfunum þar. Sumar göturnar eru með þeim fegurstu á Íslandi, þar ríkir kyrrð og samræmi. Það er gaman að fara upp á Hamarinn og í skemmtigarðinn Hellisgerði. Í Strandgötunni má svo finna perlur eins og Bæjarbíó – sem hýsir Kvikmyndasafn Íslands – og kaffihúsið Lesa meira
Hjálpar ekki Sjálfstæðisflokknum – eða er verið að knýja á um formannsskipti?
EyjanÞað fer ekki framhjá neinum sem les Viðskiptablaðið að það er fremur hallt undir Sjálfstæðisflokkinn. Ritstjórar blaðsins eru yfirleitt sjálfstæðismenn, sem og eigendur þess. Viðskiptablaðið birtir á morgun könnun þar sem er spurt hvort fólk vildi fremur kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Hanna Birna væri formaður en Bjarni Benediktsson. Það kemur svosem ekki mikið á óvart að Lesa meira
Margir þingmenn í hættu – margt nýtt fólk á leiðinni á þing (sem átti ekki endilega von á því)
EyjanStöð 2 fer í talnaleik með kannanir MMR og útdeilir þingsætum eftir þeim. Auðvitað er þetta hálfgerður samkvæmisleikur, en þetta gefur sterkar vísbendingar. Til dæmis um að mikil skörð verða líklega höggvin í þinglið Samfylkingarinnar. Þar eru flestir sitjandi þingmenn áfram í framboði, og þeir mega margir búast við því að þurfa að leita sér Lesa meira
Saga ASÍ, Gilitrutt, Frjálsar hendur og Búsáhaldabyltingin
EyjanEfni Kiljunnar í kvöld er mjög fjölbreytt. Við fræðumst um nýútkomna sögu Alþýðusambands Íslands eftir Sumarliða R. Ísleifsson. Þetta er mikið verk, í tveimur bindum, ríkulega myndskreytt. Við einblínum á fyrsta bindið þar sem segir frá kjörum alþýðu á fyrri hluta síðustu aldar. Bernd Ogrodnik og Kristín María Ingimarsdóttir segja frá afar fallegri barnabók sem Lesa meira