Zelenskyy fékk góðar fréttir um gang stríðsins
FréttirÁ fundi með yfirmönnum hers og leyniþjónustu í gær fékk Volodomyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, góðar fréttir af vígvellinum. Hann skýrði frá þessu í myndbandsávarpi sínu í gærkvöldi. Hann fékk upplýsingar um að úkraínskir hermenn hafi náð tveimur svæðum í suðurhluta landsins á sitt vald og tveimur í austurhluta þess. Hann sagði ekki hvaða svæði sé um að Lesa meira
Hér endar stríðið segja Rússar
FréttirNú eru rúmir sex mánuðir síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Ekki er að sjá að stríðinu sé að fara að ljúka og enginn veit hvenær því lýkur. En Rússar segja liggja ljóst fyrir hvernig því lýkur. Dmitry Peskov, talsmaður stjórnarinnar í Kreml, sagði í gær á rússnesku sjónvarpsstöðinni Rossiya-1 að „öllum átökum ljúki með því að það Lesa meira
Sérfræðingur segir að þetta sé að gerast í Kherson núna
FréttirGagnsókn úkraínska hersins gegn þeim rússneska hófst í Kherson á mánudaginn. Litlar fréttir hafa borist af hvernig sóknin gengur en þó skýrði Washington Post frá því í gær að hart væri barist og mannfall Úkraínumanna væri töluvert. Eru Úkraínumenn sagðir hafa brotist í gegnum varnarlínur Rússa á nokkrum stöðum. Rússneska herliðið er sagt fámennara en Lesa meira
Rússneskt olíufélag bað um að stríðsrekstrinum í Úkraínu yrði hætt – Framkvæmdastjóri þess „datt“ út um glugga í morgun
FréttirRavil Maganov, forstjóri rússneska olíufélagsins Lukoil, er látinn eftir að hafa „dottið“ út um glugga á sjúkrahúsi. Lík hans fannst fyrir neðan gluggann í morgun. Lukoil er næst stærsta rússneska olíufélagið. Áður en Vesturlönd gripu til refsiaðgerða gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu var fyrirtækið næst stærsta olíufélagið á hlutabréfamörkuðum heimsins. Fljótlega eftir að Rússar réðust inn Lesa meira
Segir að í næstu viku verði komin vísbending um hvort sókn Úkraínumanna í Kherson skili árangri
FréttirEftir margra mánaða undirbúning létu Úkraínumenn til skara skríða á mánudaginn og hófu sókn gegn rússneska innrásarliðinu í Kherson í suðurhluta landsins. Rússar náðu héraðinu Kherson og samnefndri borg á sitt vald í mars. En nú hyggjast Úkraínumenn hrekja þá þaðan og ná héraðinu aftur á sitt vald. Volodomyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, hvatti fyrr í vikunni rússneska hermenn til að Lesa meira
Hershöfðingi segir að Pútín hafi vanmetið þetta og annað atriði veldur honum áhyggjum
FréttirVladímír Pútín, Rússlandsforseti, reiknaði ekki með að stríðið í Úkraínu myndi vara í rúmlega hálft ár. Þetta er mat Eirik Kristoffersen, æðsta yfirmanns norska hersins. Hann segir að eitt sé það sem Pútín hafi svo sannarlega vanmetið. „Ég held að forsetinn og nánasta samstarfsfólk hans hafi vanmetið samstöðu Vesturlanda,“ sagði hann í samtali við Dagbladet. Í Lesa meira
Varahéraðsstjórinn í Kherson er flúinn undan sókn Úkraínumanna – Sókn sem hann segir vonlausa
FréttirKirill Stemousov, sem er varahéraðsstjóri í Kherson, er flúinn undan sókn Úkraínumanna í héraðinu. Það hlýtur að teljast athyglisvert í ljósi þess að hann segir sóknina vonlausa. Stemousov er leppur Rússa því hann var settur í embættið af rússneska innrásarliðinu. Hann er Úkraínumaður en telst til aðskilnaðarsinna sem vilja að Úkraína lúti rússneskum yfirráðum. Hann er mjög virkur á Lesa meira
Nánir bandamenn Rússa eru farnir að láta óánægju sína í ljós
FréttirMerkin verða sífellt skýrari og það er eiginlega bara hægt að lesa þau á einn hátt. Fyrrum nánir bandamenn Rússlands og Vladímírs Pútíns hafa fengið nóg. Þeir eru taugaóstyrkir og nú eru þeir byrjaði að láta óánægju sína í ljós. „Rússland stendur að mörgu leyti verr en það gerði áður en ráðist var inn í Lesa meira
Geta Úkraínumenn náð Kherson aftur?
FréttirÁ mánudaginn hófst gagnsókn Úkraínumanna gegn rússneska innrásarliðinu í Kherson. Rússar hafa haft héraðið Kherson og samnefnda borg, sem er höfuðstaður héraðsins, á sínu valdi frá því á fyrstu dögum innrásarinnar. Úkraínumenn höfðu lengi boðað að þeir myndu gera gagnsókn í héraðinu til að ná því öllu á sitt vald og nú er hún hafin. En geta þeir Lesa meira
Úkraínumenn sagðir hafa komist nokkuð áleiðis í Kherson
FréttirBreska varnarmálaráðuneytið birti daglega stöðuskýrslu sína yfir gang stríðsins í Úkraínu fyrir stundu. Í henni kemur fram að úkraínskar hersveitir hafi haldið uppi árásum á rússneskar hersveitir í suðurhluta landsins síðan á mánudaginn. Hafi Úkraínumönnum tekist að sækja fram og færa víglínuna aftur um töluverðar vegalengdir á nokkrum stöðum. Hafi þeir nýtt sér að varnarlínur Lesa meira