fbpx
Sunnudagur 21.júlí 2024

Rússland

„Rússar eru farnir að sýna veikleikamerki“ – Segir Úkraínumenn vera með sterkt tromp á hendi

„Rússar eru farnir að sýna veikleikamerki“ – Segir Úkraínumenn vera með sterkt tromp á hendi

Fréttir
07.09.2022

„Við sjáum að Rússar eru byrjaðir að sýna veikleikamerki. Það er ljóst að það er byrjað að hafa áhrif að þeir hafa ekki eins mikið af skotfærum og eldsneyti og þeir ættu að hafa.“ Þetta sagði Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingur við danska varnarmálaskólann, í samtali við B.T. um sókn Úkraínumanna í Kherson en þeir hófu gagnsókn þar á mánudag Lesa meira

Segir að þetta líti illa út fyrir Rússa

Segir að þetta líti illa út fyrir Rússa

Fréttir
07.09.2022

Nú eru rúmir sex mánuðir liðnir síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og á þessum tíma hefur þeim ekki tekist að ná neinum af markmiðum sínum. Þetta sagði Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, í breska þinginu á mánudaginn. CNN skýrir frá þessu og segir að Wallace hafi sagt að Rússar hafi ekki náð neinum af markmiðum sínum með Lesa meira

Graðir rússneskir hermenn gengu í gildru

Graðir rússneskir hermenn gengu í gildru

Fréttir
07.09.2022

„Rússarnir vilja alltaf ríða. Þeir senda „stelpunum“ fullt af viðbjóði því þeir vilja sanna að þeir séu sannir hermenn.“ Þetta sagði Nikita Knysh, úkraínskur tölvuþrjótur, að sögn Financial Times sem segir að greddan hafi reynst rússnesku hermönnunum dýrkeypt. Knysh kom að stofnun hóps úkraínsks hóps tölvuþrjóta, sem nú telur um 30 manns, sem nota hæfileika sína og kunnáttu til að Lesa meira

Skýrir frá hrollvekjandi áætlun Pútíns – „Hann lætur ekki staðar numið við Úkraínu“

Skýrir frá hrollvekjandi áætlun Pútíns – „Hann lætur ekki staðar numið við Úkraínu“

Fréttir
07.09.2022

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hafði í hyggju að sækja enn lengra vestur eftir að hafa lagt Úkraínu undir sig. Ætlunin var að ráðast á og hernema ríkin í Austur-Evrópu. Þetta segir Dr Yuri Felshtinsky, höfundur „Blowing up Ukraine: The Return of Russian Terror and the Threat of World War III“. Hann fæddist í Sovétríkjunum en yfirgaf þau Lesa meira

Óvænt gagnsókn Úkraínumanna í austur- og norðausturhluta Úkraínu

Óvænt gagnsókn Úkraínumanna í austur- og norðausturhluta Úkraínu

Fréttir
07.09.2022

Úkraínski herinn hóf í gær óvænta sókn í austur- og norðausturhluta landsins. Á mánudag í síðustu viku hóf hann löngu boðaða sókn í suðurhluta landsins en fáir áttu von á að sókn myndi hefjast á fleiri vígstöðvum. Oleksiy Arestovych, ráðgjafi Volodomyr Zelenskyy, forseta skýrði frá þessu á Telegram seint í gærkvöldi. Hann sagði að á næstu mánuðum megi reikna með Lesa meira

Fyrrum olígarki hvetur Rússa til að skemma stríð Pútíns

Fyrrum olígarki hvetur Rússa til að skemma stríð Pútíns

Fréttir
06.09.2022

Mikhail Khodorkovsky, sem er fyrrum olígarki, er í útlegð í Bretlandi. Hann er einarður andstæðingur Vladímír Pútíns, Rússlandsforseta, og stríðsrekstursins í Úkraínu. Hann hvetur nú landa sína, sem enn eru í Rússlandi, til að grípa til skemmdarverka með það að markmiði að gera Pútín erfitt fyrir við stríðsreksturinn og veikja ríkisstjórn hans. The Guardian skýrir frá þessu. Khodorkovsky sat í rússnesku fangelsi frá 2003 til Lesa meira

Pútín heiðraði fimmfaldan morðingja sem fór á vígvöllinn í Úkraínu

Pútín heiðraði fimmfaldan morðingja sem fór á vígvöllinn í Úkraínu

Fréttir
06.09.2022

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, sæmdi nýlega Ivan Neparatov rússnesku hugrekkisorðunni fyrir frammistöðu hans á vígvellinum í Úkraínu. Neparatov sat í fangelsi í Rússlandi þar til nýlega, afplánaði dóm fyrir fimm morð. Hann var einnig leiðtogi glæpagengis. Hann var látinn laus til að hann gæti gengið til liðs við Wagnerhópinn og barist með honum í Úkraínu. Wagnerhópurinn er einkafyrirtæki, rekið af góðvini Pútíns, sem útvegar rússneskum stjórnvöldum málaliða þegar Lesa meira

Rússneski herinn í vanda í Kherson – Hermenn illa á sig komnir andlega og mórallinn slæmur

Rússneski herinn í vanda í Kherson – Hermenn illa á sig komnir andlega og mórallinn slæmur

Fréttir
06.09.2022

Fyrir rúmri viku hófst sókn úkraínska hersins gegn rússneska hernámsliðinu í Kherson. Það sem er að gerast í héraðinu þessa dagana er mjög mikilvægt hvað varðar framhald stríðsins. Rússar hafa um 20.000 til 25.000 hermenn í strjálbýlu héraðinu en þeir eiga í vök að verjast gegn sókn Úkraínumanna sem leggja nú allt í sölurnar til að Lesa meira

Rússneskir hermenn sagðir hóta að skjóta þá sem reyna að flýja frá Kherson

Rússneskir hermenn sagðir hóta að skjóta þá sem reyna að flýja frá Kherson

Fréttir
06.09.2022

Talsmenn úkraínska hersins segja að rússneski herinn hafi bannað almennum borgurum að flýja frá borginni Kherson í Kherson héraði og segi að hermenn muni „skjóta til að drepa“ ef fólk brýtur gegn þessu banni. Sky News hefur eftir heimildarmönnum að það hafi færst í vöxt að íbúar borgarinnar reyni að flýja þaðan og er það rakið til Lesa meira

Úkraínskur eftirlaunaþegi sæmdur heiðursorðu fyrir hetjudáð – Skaut orustuþotu niður með riffli

Úkraínskur eftirlaunaþegi sæmdur heiðursorðu fyrir hetjudáð – Skaut orustuþotu niður með riffli

Fréttir
06.09.2022

Úkraínski eftirlaunaþeginn Valeriy Fedorovych hefur verið sæmdur heiðursorðu fyrir að hafa skotið rússneska Su-34 orustuþotu niður með riffli. Hann sá að sögn þegar þotunni var flogið yfir Chernhiv og greip riffil sinn og skaut á hana. Úkraínska landamæraeftirlitið skýrir frá þessu. Sagt er að hann hafi skotið á orustuþotuna, sem kostar um 12 milljarða króna Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af