fbpx
Sunnudagur 21.júlí 2024

Rússland

Úkraínskir hermenn komnir að rússnesku landamærunum – Hafa náð nær öllu Kharkiv á sitt vald

Úkraínskir hermenn komnir að rússnesku landamærunum – Hafa náð nær öllu Kharkiv á sitt vald

Fréttir
12.09.2022

Úkraínskir hermenn eru komnir að rússnesku landamærunum í Kharkiv-héraði og hafa náð öllu héraðinu á sitt vald. Rússar hafa hörfað frá héraðinu og reyna nú að stöðva sókn Úkraínumanna við nýjar varnarlínur. Síðdegis í gær náðu úkraínskir hermenn bænum Kozacha Lopan á sitt vald en hann er um tvo kílómetra frá rússnesku landamærunum. Bandaríska hugveitan Institute Lesa meira

Segir að Pútín eigi fjóra kosti núna

Segir að Pútín eigi fjóra kosti núna

Fréttir
12.09.2022

Úkraínumenn hafa sótt fram af krafti síðustu sólarhringa og hrakið Rússa frá stórum landsvæðum og hafa náð fjölda bæja og borga á sitt vald í Kharkiv. Þeir sækja einnig fram í Kherson en mun hægar enda var sú sókn hugsuð sem blekkingaraðgerð til að lokka Rússa frá Kharkiv og það tókst. Ef sigurganga Úkraínumanna heldur áfram þá verður Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, að Lesa meira

Segja Rússa vera að hefna sín – Réðust á rafstöðvar

Segja Rússa vera að hefna sín – Réðust á rafstöðvar

Fréttir
12.09.2022

Rússar gerðu flugskeytaárásir á rafstöðvar og spennistöðvar í Kharkiv í Úkraínu í gærkvöldi. Úkraínumenn segja að um hefnd Rússa sé að ræða vegna hrakfara þeirra í Kharkiv síðustu sólarhringa en Úkraínumenn hafa hrakið þá frá stóru landsvæði og náð mikilvægum bæjum og borgum á sitt vald. Rafmagnslaust er í stærsta hluta Kharkiv og einnig vatnslaust. Lesa meira

Eftir sex áratugi spiluðu Rússar síðasta trompinu sínu út – Skjóta sig kannski í fótinn með því

Eftir sex áratugi spiluðu Rússar síðasta trompinu sínu út – Skjóta sig kannski í fótinn með því

Fréttir
09.09.2022

Áratugum saman var þetta eitt aðaltromp Sovétríkjanna og síðustu 30 árin hefur það gagnast Rússlandi jafn mikið. En í síðustu viku ákváðu ráðamenn í Kreml að spila þessu síðasta trompi sínu út og brjóta þar með reglu sem hefur verið næstum heilög í Kreml síðan Vladímír Pútín, forseti, var á grunnskólaaldri. Með tilkynningu um að Rússar muni ekki hefja dælingu gass Lesa meira

Úkraínumenn komu Rússum á óvart – Skyndisókn í Kharkiv og 700 ferkílómetrar lands frelsaðir úr höndum Rússa

Úkraínumenn komu Rússum á óvart – Skyndisókn í Kharkiv og 700 ferkílómetrar lands frelsaðir úr höndum Rússa

Fréttir
09.09.2022

Síðdegis í gær tilkynnti úkraínski herinn að hann hefði sótt allt að 50 km fram á vígvellinum í Kharkiv og hafi náð 700 ferkílómetrum lands úr höndum Rússa. Á þessu svæði er fjöldi þorpa og bæja. Sókn Úkraínumanna virðist hafa komið Rússum í opna skjöldu. Hún hófst fyrir nokkrum dögum og stendur enn yfir. Úkraínskar hersveitir hafa Lesa meira

Vara við hættunni á rússneskri kjarnorkuárás

Vara við hættunni á rússneskri kjarnorkuárás

Fréttir
08.09.2022

Valeriy Zaluzhnyi, æðsti yfirmaður úkraínska hersins, segir hættu á að Rússar muni beita kjarnorkuvopnum í Úkraínu. Það muni hafa í för með sér hættu á „takmörkuðu“ kjarnorkustríði þar sem fleiri ríki dragast inn í átökin. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum sem úkraínska ríkisfréttastofan Ukrinform birti. Tilkynningin hefur vakið athygli því Zaluzhnyi tjáir sig mjög sjaldan í smáatriðum um Lesa meira

Breti pyntaður og drepinn af Rússum

Breti pyntaður og drepinn af Rússum

Fréttir
08.09.2022

45 ára breskur hjálparstarfsmaður var handsamaður af Rússum í austurhluta Úkraínu og pyntaður og drepinn. Lík hans hefur verið afhent Úkraínumönnum en nokkra líkamshluta vantar á það. Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, skýrði frá þessu á Twitter í nótt. „Rússar hafa afhent lík breska hjálparstarfsmannsins Paul Urey sem þeir tóku höndum í apríl og sögðu síðar að hefði látist af völdum Lesa meira

Pútín segir Rússland hafa hagnast á innrásinni en ekki tapað

Pútín segir Rússland hafa hagnast á innrásinni en ekki tapað

Fréttir
08.09.2022

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, sagði í gær að Rússland væri sterkara en áður í sinni sjálfstæðu stefnu sem myndi endurnýja áhrif landsins á alþjóðavettvangi. Hann sagði einnig að Rússland hafi hagnast, en ekki tapað, á að ráðast inn í Úkraínu. Þetta sagði hann þegar hann ávarpaði árlega efnahagsráðstefnu í Vladivostok. Hann sagði að Rússland hafi ekki misst Lesa meira

Rússar kaupa mikið magn skotfæra frá Norður-Kóreu að sögn Bandaríkjamanna

Rússar kaupa mikið magn skotfæra frá Norður-Kóreu að sögn Bandaríkjamanna

Fréttir
07.09.2022

Bandarískir embættismenn segja að Rússar eigi í vandræðum með að verða sér úti um flugskeyti og önnur skotfæri til að nota í Úkraínu. Af þeim sökum eru Rússar nú að sögn að semja við Norður-Kóreu um kaup á fjölda flugskeyta og skotfæri í fallbyssur. Þetta herma upplýsingar sem bandarískar leyniþjónustustofnanir hafa aflað. The Guardian skýrir frá þessu og Lesa meira

Einn af ofurstum Pútíns ráðinn af dögum með bílsprengju

Einn af ofurstum Pútíns ráðinn af dögum með bílsprengju

Fréttir
07.09.2022

Bardin Artem Igorevich, ofursti, var útnefndur af Vladímír Pútín og ráðamönnum í Kreml til að stýra úkraínsku borginni Berdyansk sem er í Zaporizhzhia héraðinu. Í gær var hann ráðinn af dögum með bílsprengju í borginni. Upptaka, sem hefur gengið á  samfélagsmiðlum, sýnir bíl ofurstans í ljósum logum örskömmu eftir að sprengjan sprakk. Igorevich var fluttur á sjúkrahús í skyndinu en lést þar af völdum áverka sinna að sögn Yaroslav Trofimov, Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af