fbpx
Sunnudagur 21.júlí 2024

Rússland

Pútín rak hershöfðinga eftir aðeins 16 daga – Ósigurinn í austurhluta Úkraínu er ástæðan

Pútín rak hershöfðinga eftir aðeins 16 daga – Ósigurinn í austurhluta Úkraínu er ástæðan

Fréttir
13.09.2022

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, er sagður hafa rekið Roman Berdnkov, hershöfðingja, úr starfi eftir niðurlægjandi ósigur Rússar í Kharkiv um helgina. Berdnikov var skipaður yfirmaður rússneska hersins í vesturhluta Úkraínu þann 26. ágúst. Daily Mail skýrir frá þessu. Segir miðillinn að Berdnikov sé sagður hafa brugðist í að halda yfirráðum Rússa yfir stórum úkraínskum landsvæðum  í Kharkiv. Skyndisókn Úkraínumanna í Kharkiv virðist hafa komið Lesa meira

Vaxandi ókyrrð í Rússlandi – 18 stjórnmálamenn krefjast afsagnar Pútíns

Vaxandi ókyrrð í Rússlandi – 18 stjórnmálamenn krefjast afsagnar Pútíns

Fréttir
13.09.2022

Leiðtogar 18 stjórnsýsluhverfa í Moskvu, St Pétursborg og Kolpino hafa skrifað undir kröfu um að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, segi af sér embætti. Þetta sést á mynd af listanum sem var birt á Twitter í gær af Ksenia Thorstrom, leiðtoga Semenovsky hverfisins í St Pétursborg. CNN skýrir frá þessu. Fram kemur að í yfirlýsingunni segi meðal annars að aðgerðir Pútíns séu „skaðlegar fyrir Rússland og framtíð íbúa landsins“. Bæjarstjórnin í Lomonovsky-hverfinu í Moskvu skrifaði einnig að stefna Pútíns sé „algjörlega Lesa meira

Segir að sigurinn í Kharkiv sé aðeins fyrsti hluti af snjallri hernaðaráætlun – Gæti verið upphafið að endinum

Segir að sigurinn í Kharkiv sé aðeins fyrsti hluti af snjallri hernaðaráætlun – Gæti verið upphafið að endinum

Fréttir
13.09.2022

„Um helgina áttu sögulegir atburðir sér stað á úkraínskum vígvöllum. Á fjórum dögum náðu Úkraínumenn næstum öllu Kharkiv-héraðinu í austurhluta landsins á sitt vald. Samkvæmt síðustu tilkynningum frá Úkraínumönnum hafa þeir endurheimt um 6.000 ferkílómetra landsvæði. Óháðir sérfræðingar telja að landsvæðið sé enn stærra.“ Svona hefst grein eftir Jacob Kaarsbo, sérfræðing hjá hugveitunni Tænketanken Europa og fyrrum sérfræðing hjá leyniþjónustu Lesa meira

Segja að svona undirbúi Rússar sig undir vetrarstríð

Segja að svona undirbúi Rússar sig undir vetrarstríð

Fréttir
13.09.2022

Veturinn nálgast í Úkraínu eins og annars staðar á norðurhveli jarðar. Leyniþjónusta úkraínska hersins hefur skýrt frá því á Telegram hvernig rússneski herinn undirbýr sig fyrir stríð í Úkraínu í vetur. Byggist þetta á upplýsingum sem leyniþjónustan segist hafa aflað sér. Ef marka má það sem Úkraínumenn segja þá vinna Rússar að því hörðum höndum að undirbúa Lesa meira

Zelenskyy segir að Rússar hafi verið hraktir frá 6.000 ferkílómetrum lands

Zelenskyy segir að Rússar hafi verið hraktir frá 6.000 ferkílómetrum lands

Fréttir
13.09.2022

Það sem af er september hafa úkraínskar hersveitir hrakið rússneskar hersveitir frá um 6.000 ferkílómetrum lands og frelsað það úr höndum innrásarliðsins. Þetta segir Volodomyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, að sögn AFP og Reuters. Þessi árangur hefur náðst í norðaustur- og suðurhluta landsins. Bandarísk yfirvöld telja að Rússar hafi hörfað frá nær öllum þeim svæðum sem þeir höfðu á sínu valdi Lesa meira

Rússar flúðu með skottið á milli lappanna – Skildu tugi ökutækja eftir

Rússar flúðu með skottið á milli lappanna – Skildu tugi ökutækja eftir

Fréttir
13.09.2022

Þegar úkraínski herinn braust í gegnum varnarlínur Rússa í austurhluta landsins lá rússneskum hermönnum mikið á að flýja, svo mikið að þeir skildu mikið magn vopna og skotfæra eftir. Eða eins og úkraínski herinn sagði í hæðnislegri færslu á Twitter: „Rússneski herinn er orðinn stærsti vopnabirgir okkar“. Á myndum sem hafa birst frá austurhluta landsins má Lesa meira

Stríðið gagnrýnt í rússnesku sjónvarpi – „Fyrirgefðu, hverju erum við að bíða eftir?“

Stríðið gagnrýnt í rússnesku sjónvarpi – „Fyrirgefðu, hverju erum við að bíða eftir?“

Fréttir
13.09.2022

Gangur stríðsins í Úkraínu setur mark sitt á rússneska fjölmiðla. Þeir sæta hörðum skilyrðum um hvað má segja og hvað má ekki segja og liggja þungar refsingar við brotum á þeim reglum sem ráðamenn í Kreml hafa sett til að geta stýrt fréttaflutningi til þjóðarinnar. En á sunnudaginn kom til harðra orðaskipta á sjónvarpsstöðinni NTV. Stjórnmálamaður sagði þá Lesa meira

Æðsti yfirmaður úkraínska hersins boðar stórorustu um Krím

Æðsti yfirmaður úkraínska hersins boðar stórorustu um Krím

Fréttir
12.09.2022

Óhætt er að segja að Úkraínumenn hafi komið Rússum, og jafnvel umheiminum, á óvart síðustu daga með óvæntri sókn sinni í Kharkiv. Þeir hafa náð öllu héraðinu á sitt vald og hrakið Rússa á flótta. Svo virðist sem sóknin hafi komið Rússum algjörlega í opna skjöldu og virðast þeir hafa átt fótum fjör að launa, Lesa meira

Skyndisókn Úkraínumanna afhjúpar veikleika rússneska hersins

Skyndisókn Úkraínumanna afhjúpar veikleika rússneska hersins

Fréttir
12.09.2022

Skyndisókn Úkraínumanna í Kharkiv hefur borið góðan árangur og þeir hafa sótt langt fram og náð að frelsa héraðið úr klóm Rússa. Rússneskir hermenn eru á flótta og hafa skilið eftir mikið af hergögnum og skotfærum. Sérfræðingar segja að skyndisóknin og sá góði árangur sem hún hefur borið afhjúpi veikleika rússneska hersins. Ef Úkraínumönnum tekst að halda Lesa meira

Gagnrýni á stríð Pútíns kraumar í Rússlandi – „Þetta er því auðvitað slæm staða fyrir Pútín“

Gagnrýni á stríð Pútíns kraumar í Rússlandi – „Þetta er því auðvitað slæm staða fyrir Pútín“

Fréttir
12.09.2022

Eftir gagnsóknir Úkraínumanna í Kherson og Kharkiv hefur gagnrýni á stríð Pútíns færst í aukana á þeim samfélagsmiðlum sem Rússar hafa enn aðgang að. Í rússneskum fjölmiðlum, sem sæta harðri ritskoðun, er hin opinbera skýring á ósigrum rússneska hersins sú að verið sé að „endurskipuleggja“ herdeildir og því hafi þær verið kallaða frá þeim svæðum í Kherson og Kharkiv sem Úkraínumenn hafa náð á sitt Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af