fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024

Rússland

Rússar sagðir reyna að fá afganska hermenn til liðs við sig

Rússar sagðir reyna að fá afganska hermenn til liðs við sig

Fréttir
27.10.2022

Eftir því sem Foreign Policy segir þá eru Rússar að reyna að fá afganska hermenn til liðs við sig til að berjast í Úkraínu. Um sérsveitarmenn er að ræða sem fengu þjálfun hjá bandarískum og breskum hermönnum. Á milli 20.000 og 30.000 afganskir sérsveitarmenn komust ekki frá Afganistan þegar Bandaríkjaher yfirgaf landið á síðasta ári.

Segir Rússa neyðast til að „afdjöflavæða“ Úkraínubúa

Segir Rússa neyðast til að „afdjöflavæða“ Úkraínubúa

Fréttir
27.10.2022

Á fundi öryggisráðs SÞ á þriðjudaginn sagði Aleksei Pavlov, fulltrúi Rússa í öryggisráðinu, að Rússar neyðist til að „afdjöflavæða“ Úkraínubúa. Sky News skýrir frá þessu. Þarna kveður við nýjan tón í röksemdafærslu Rússa fyrir innrásinni en Vladímír Pútín, forseti, hefur ítrekað sagt að með innrásinni eigi að „afnasistavæða“ Úkraínu. Pavlov sagði að Úkraínubúar hefðu gefið gildi rétttrúnaðarkirkjunnar upp á bátinn. Hann sagði Lesa meira

Segir Rússa undir miklum þrýstingi – Líklegt að þeir grípi til aðgerða gegn fleiri ríkjum en Úkraínu

Segir Rússa undir miklum þrýstingi – Líklegt að þeir grípi til aðgerða gegn fleiri ríkjum en Úkraínu

Fréttir
27.10.2022

„Það getur verið erfitt að leggja mat á hversu miklar líkur eru á að Rússar muni telja stuðning Vesturlanda við Úkraínu sem raunverulega ógn við fullveldi landsins og muni bregðast við því.“ Þetta sagði Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur hjá Dansk Institut for Internationale Studier, í samtali við Ekstra Bladet.  Hann sérhæfir sig í alþjóðaöryggismálum og heimssýn. Hann sagði að Rússum finnist þeir vera undir Lesa meira

Rússar lögðu allt að veði til að ná „lítt mikilvægri borg“ á sitt vald – Nú eru þeir á byrjunarreit

Rússar lögðu allt að veði til að ná „lítt mikilvægri borg“ á sitt vald – Nú eru þeir á byrjunarreit

Fréttir
27.10.2022

Úkraínskar hersveitir sækja fram í suðurhluta Kherson-héraðs og á sama tíma hafa Rússar lagt allt að veði í blóðugri og örvæntingarfullri tilraun til að brjótast í gegnum varnarlínur Úkraínumanna við borgina Bakhmut. Þrátt fyrir að hafa lagt mikið undir þá hafa Rússar aðeins náð litlum árangri við Bakhmut og margt bendir til að stríðsgæfan þar sé nú að snúast Lesa meira

Pólverjar íhuga að reisa múr á landamærunum að Rússlandi

Pólverjar íhuga að reisa múr á landamærunum að Rússlandi

Fréttir
26.10.2022

Pólverjar íhuga nú að reisa múr á landamærunum að Rússlandi til að koma í veg fyrir að förufólk og flóttafólk frá Afríku og Asíu komist til landsins frá Rússlandi. Telja pólsk yfirvöld að Rússar geti gripið til þess ráðs að beina förufólki og flóttafólki til Póllands og væri það liður í blendningshernaði þeirra gegn Vesturlöndum. Múrinn, eða Lesa meira

Segir harða bardaga fram undan í Kherson

Segir harða bardaga fram undan í Kherson

Fréttir
26.10.2022

Harðir bardagar eru fram undan í Kherson-héraðinu í suðurhluta Úkraínu. Þetta sagði Oleksii Artetovych, ráðgjafi Volodymyr Zelenskyy forseta, í gærkvöldi. Hann sagði að engin merki séu um að Rússar séu að undirbúa sig undir að yfirgefa Kherson-borg þrátt fyrir að rússneskar hersveitir hafi að undanförnu verið hraktar aftur á bak og eigi á hættu að króast af við ána Dnipro. Hann Lesa meira

Embættismenn í Kreml sagðir setja sig leynilega í samband við Vesturlönd og þrýsta á samningaviðræður

Embættismenn í Kreml sagðir setja sig leynilega í samband við Vesturlönd og þrýsta á samningaviðræður

Fréttir
26.10.2022

Fregnir hafa borist af því að í Kreml sitji menn nú og bruggi hver öðrum launráð. Þar á meðal hefur verið nefnt að staða Vladímír Pútíns, forseta, sé nú orðin veik og að ákveðnir aðilar bruggi honum nú launráð. Er staða Pútíns sögð hafa veikst mjög eftir „innlimun“ fjögurra úkraínskra héraða í Rússland, héruð sem Rússar eru ekki einu sinni með Lesa meira

Ekki koma heim segir úkraínskur ráðherra við samlanda sína

Ekki koma heim segir úkraínskur ráðherra við samlanda sína

Fréttir
26.10.2022

Fólk sem flúði frá Úkraínu í kjölfar innrásar Rússa í landið ætti að halda sig fjarri Úkraínu í vetur. Þetta sagði Iryna Vereshchuk, varaforsætisráðherra Úkraínu, í gær og vísaði til þess að Rússar hafi valdið svo miklu tjóni á orkuinnviðum landsins að rafmagn og hiti séu af skornum skammti. Hún hvatti fólk til að halda sig erlendis Lesa meira

Úkraínumenn skýra frá „ótrúlega háum“ tölum um mannfall Rússa – Ekki alveg óraunhæfar segir sérfræðingur

Úkraínumenn skýra frá „ótrúlega háum“ tölum um mannfall Rússa – Ekki alveg óraunhæfar segir sérfræðingur

Fréttir
26.10.2022

Í gær birtu úkraínsk stjórnvöld nýjar tölur yfir tap Rússa í stríðinu. Samkvæmt þeim hafa 68.420 rússneskir hermenn fallið í stríðinu. Ef þessar tölur eru réttar, þá þýðir það að mannfallið fram að þessu er fimm sinnum hærra en opinberar tölur um mannfall sovéska hersins í Afganistan frá 1979 til 1989. Þessar tölur Úkraínumanna hafa Lesa meira

Segir að þessir vilji fá forsetastól Pútíns

Segir að þessir vilji fá forsetastól Pútíns

Fréttir
26.10.2022

Það eru margir kandídatar sem bíða þess að taka við forsetaembættinu í Rússlandi af Vladímír Pútín. Þetta er mat Kyrylo Budanov, yfirmanns leyniþjónustu úkraínska hersins. Í viðtali við úkraínska Pravda skýrði hann frá hverjir berjast um að taka við af Pútín, að hans mati. Sky News skýrir frá þessu. Valdabarátta stendur yfir í Kreml og fór Budanov yfir hverjir eiga séns og hverjir geta gleymt því að komast í Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af