fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024

Rússland

Vestrænar vopnageymslur eru að tæmast vegna stríðsins í Úkraínu

Vestrænar vopnageymslur eru að tæmast vegna stríðsins í Úkraínu

Fréttir
07.11.2022

Eftir átta mánaða langt stríð í Úkraínu eru vestrænar vopnageymslur farnar að tæmast. Það getur að lokum orðið til þess að Úkraínumenn hafi færri vopn til að berjast með gegn rússneska innrásarhernum. Meðal þeirra vopna sem Úkraínumenn notuðu til að koma í veg fyrir að Rússar næðu Kyiv á sitt vald voru Javelin skriðdrekavarnarflaugar. Eftir nokkurra vikna tilraunir til Lesa meira

Litháar hafa áhyggjur af hugsanlegri innrás Rússa

Litháar hafa áhyggjur af hugsanlegri innrás Rússa

Pressan
06.11.2022

Í Litháen, og víðar, hafa margir áhyggjur af að ef Vladímír Pútín ákveði að herða stríðsreksturinn í Úkraínu gæti hann gripið til þess ráðs að láta rússneskar hersveitir, sem eru beggja megin við Suwalki gatið svokallað, ráðast fram samtímis úr austri og vestri og þannig einangrað Litháen, Lettland og Eistland frá öðrum NATO-ríkjum. Þetta kemur Lesa meira

Fundu 34 pyntingarklefa á svæðum sem Rússar hafa verið hraktir frá

Fundu 34 pyntingarklefa á svæðum sem Rússar hafa verið hraktir frá

Fréttir
04.11.2022

Úkraínska lögreglan hefur fundið 34 pyntingarklefa og fangelsi á svæðum sem rússneskar hersveitir höfðu á valdi sínu en hafa nú verið hraktar frá. Þetta segir óháða úkraínska fréttastofan Hromadske International. Hefur fréttastofan þessar upplýsingar frá úkraínsku lögreglunni. Law enforcement officers have already found 34 torture chambers and prisons arranged by the Russian occupiers in the de-occupied territories of Ukraine, Lesa meira

Milljónir án rafmagns eftir nýjar árásir

Milljónir án rafmagns eftir nýjar árásir

Fréttir
04.11.2022

Rússar létu flugskeytum rigna yfir innviði í Úkraínu í gær og í gærkvöldi var rafmagnslaust í tíu héruðum vegna þessara árása. Um 4,5 milljónir landsmanna voru án rafmagns í nótt. CNN skýrir frá þess og segir að samkvæmt því sem Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, hafi sagt þá hafi 4,5 milljónir landsmanna verið án rafmagns. Hann sagði einnig að Lesa meira

Segir að Pútín hafi spilað of djarft – Blekkingin var afhjúpuð

Segir að Pútín hafi spilað of djarft – Blekkingin var afhjúpuð

Fréttir
04.11.2022

„Á laugardaginn gerðu Úkraínumenn árás á rússnesk herskip úti fyrir höfninni í Sevastopol á Krímskaga. Rússnesk yfirvöld hafa staðfest að einn tundurduflaslæðari hafi skemmst. Auk þess bendir allt til að freigátan Makarov aðmíráll hafi skemmst. Ekki liggur enn fyrir hversu miklar skemmdir urðu á skipunum.“ Svona hefst grein eftir Jacob Kaarsbo, sérfræðing hjá hugveitunni Europa í Danmörku og fyrrum sérfræðing hjá leyniþjónustu Lesa meira

Segir þetta vera mestu hættuna sem stafar af Pútín

Segir þetta vera mestu hættuna sem stafar af Pútín

Fréttir
03.11.2022

Hamish De Bretton-Gordon, fyrrum yfirmaður efnavopnadeildar breska hersins, segir að ekki sé hægt að ganga út frá því sem vísu að Vladímír Pútín muni ekki grípa til einhverskonar kjarnorkuárásar í Úkraínu. Hann sagði að taka þurfi þetta mjög alvarlega. Í samtali við Sky News sagði hann að það sé ólíklegt að Pútín beiti vígvallarkjarnorkuvopnum en hann haldi áfram að gera það ólíklega. „Ég held því Lesa meira

Segir að rússneskir herforingjar hafi rætt það sem sé óhugsandi

Segir að rússneskir herforingjar hafi rætt það sem sé óhugsandi

Fréttir
03.11.2022

Háttsettir rússneskir herforingjar funduðu nýlega og ræddu um hvernig Rússar geta beitt vígvallarkjarnorkuvopnum í Úkraínu. Vladímír Pútín, forseti, var ekki á fundinum sem snerust um slæmt gengi rússneska hersins í stríðinu. The New York Times skýrir frá þessu og hefur eftir háttsettum bandarískum embættismönnum. Þessar viðræður herforingjanna eru sagðar hafa valdið áhyggjum í Washington því þær benda til að orðaskak Pútíns og annarra háttsettra rússneskra Lesa meira

Pútín búinn að koma ofurvopnum fyrir í Hvíta-Rússlandi

Pútín búinn að koma ofurvopnum fyrir í Hvíta-Rússlandi

Fréttir
02.11.2022

Miðað við það sem sést á gervihnattarmyndum þá eru Rússar búnir að koma ofurhljóðfráum flugskeytum og orustuþotum fyrir í Hvíta-Rússlandi. Þetta kemur fram í umfjöllun norska miðilsins Faktisk Verifiserbar sem byggir þetta á gervihnattarmyndum frá Planet Labs. Á myndunum sjást þrjár rússneskar MiG-31K orustuþotur en Hvítrússar eiga ekki slíkar þotur. Þær eru staðsettar í Machulischchi-flugstöðinni sem er sunnan við höfuðborgina Minsk. Við hlið vélanna eru gámar Lesa meira

Segir að stríðið í Úkraínu geti staðið yfir áratugum saman

Segir að stríðið í Úkraínu geti staðið yfir áratugum saman

Fréttir
02.11.2022

Michael Clarke, prófessor og sérfræðingur í varnarmálum, segir að stríðið í Úkraínu geti „blossað upp og dáið út í heila kynslóð“. Þetta sagði hann í samtali við Sky News og átti þar við að stríðið geti staðið yfir í líftíma heillar kynslóðar. Hann sagði útilokað að sjá fyrir sér að stríðið muni halda áfram af núverandi krafti að eilífu, Lesa meira

Pútín heimilar hernum að stela úkraínskum listaverkum og menningararfi

Pútín heimilar hernum að stela úkraínskum listaverkum og menningararfi

Fréttir
02.11.2022

Samkvæmt tilskipun sem Vladímir Pútín, Rússlandsforseti, hefur skrifað undir fá rússneskar hersveitir heimild til að „fjarlægja“ úkraínsk listaverk og menningararf frá þeim svæðum sem Rússar hafa „innlimað“. The Art Newspaper skýrir frá þessu og líkir framferði Rússa við þjófnað nasista á listaverkum í hernumdum löndum í síðari heimsstyrjöldinni. Úkraínskir fjölmiðlar segja að Rússar hafi nú síðast tekið listaverk úr söfnum Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af