fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024

Rússland

Pólverjar ræða hvort senda eigi skriðdreka til Úkraínu

Pólverjar ræða hvort senda eigi skriðdreka til Úkraínu

Fréttir
10.01.2023

Andrzej Duda, forseti Póllands, fundaði í gær með forsætisráðherra landsins og nokkrum ráðherrum um öryggismál tengd stríðinu í Úkraínu. Eitt af umræðuefnunum var hvort Pólverjar eigi að láta Úkraínumönnum nokkra Leopard 2 skriðdreka í té. Þetta eru þýskir skriðdrekar en Pólverjar eiga nokkra slíka. Sky News skýrir frá þessu. Úkraínumenn hafa hvatt Vesturlönd til að senda þunga skriðdreka til landsins en þau hafa Lesa meira

Bendir á „mjög, mjög vanmetinn þátt“ varðandi stríðslok í Úkraínu

Bendir á „mjög, mjög vanmetinn þátt“ varðandi stríðslok í Úkraínu

Fréttir
10.01.2023

Augu heimsbyggðarinnar hafa beinst að átökunum í Úkraínu á þeim tæpu ellefu mánuðum sem eru liðnir síðan Rússar réðust inn í landið. Það er mjög skiljanlegt að augu fjölmiðla og heimsbyggðarinnar beinist að stríðinu að sögn Friis Arne Petersen. Hann starfaði árum saman sem stjórnarerindreki á vegum danskra stjórnvalda og var meðal annars sendiherra í Kína, Bandaríkjunum og Lesa meira

Úkraínumenn skjóta flesta dróna og flugskeyti Rússa niður

Úkraínumenn skjóta flesta dróna og flugskeyti Rússa niður

Fréttir
10.01.2023

Eftir því sem hefur liðið á stríðið í Úkraínu hafa Úkraínumenn náð betri tökum á því að svara þeirri ógn sem að þeim steðjar í formi rússneskra flugskeyta og ódýrra íranskra Shahed-dróna. Meðal þess sem hefur áhrif á þessu sviði er að Úkraínumenn hafa fengið sjálfvirkar Gepard-loftvarnabyssur frá Þýskalandi og þurfa því ekki að nota dýr flugskeyti til Lesa meira

Rússneskir hermenn verða að klofa yfir lík félaga sinna

Rússneskir hermenn verða að klofa yfir lík félaga sinna

Fréttir
10.01.2023

Nú geisa mjög harðir bardagar um bæinn Soledar, sem er lítill bær nærri Bakhmut í Donets. Úkraínskar hersveitir verjast þar hörðum árásum Wagnerhópsins, sem er málaliðahópur sem starfar fyrir rússnesk yfirvöld. Þetta segja úkraínskir embættismenn. Soledar er um átta kílómetra norðaustan við Bakhmut sem Rússar hafa reynt að ná á sitt vald mánuðum saman. Það hefur þeim ekki tekist en mikið mannfall hefur Lesa meira

Segir að helstu ríkisstjórnir hafi viðurkennt hver sé besta leiðin til að stytta stríðið

Segir að helstu ríkisstjórnir hafi viðurkennt hver sé besta leiðin til að stytta stríðið

Fréttir
10.01.2023

„Víglínurnar í Úkraínu eru enn harðlæstar en þrátt fyrir það verður upphafið á 2023 mjög mikilvægt fyrir þróunina á vígvellinum næstu mánuði. Úkraínumenn ná árangri á stífbónuðum gólfunum og fá þessa dagana stóra vopnapakka. Þetta er vísbending um að raunhæft sé að Úkraínumenn geti sótt fram að herteknu svæðunum og náð árangri.“ Svona hefst grein Lesa meira

Morðin sem gerðu Pútín að forseta

Morðin sem gerðu Pútín að forseta

Fréttir
10.01.2023

Þegar Vladímír Pútín var valinn til að verða arftaki Boris Jeltsín sem forseti Rússlands var eitt stórt vandamál uppi. Pútín var mjög óvinsæll. Það var þann 9. ágúst 1999 sem Jeltsín útnefndi Pútín sem forsætisráðherra til bráðabirgða og við það tilefni sagði hann að hann vildi gjarnan að Pútín yrði forseti þegar fram liðu stundir. En það var þetta stóra vandamál með óvinsældir Pútíns.             Lesa meira

„Kokkur Pútíns“ varpar ljósi á af hverju hann vill ná Bakhmut

„Kokkur Pútíns“ varpar ljósi á af hverju hann vill ná Bakhmut

Fréttir
09.01.2023

Í rúmlega fimm mánuði hafa Rússar reynt að ná bænum Bakhmut á sitt vald. Úkraínumenn hafa varist af krafti og hefur orustunni um borgina oft verið líkt við orustur fyrri heimsstyrjaldarinnar því um skotgrafahernað er að ræða með gríðarlegu mannfalli. Hefur stundum verið talað um að rússneskir hermenn séu sendir í hakkavélina í Bakhmut. Málaliðar úr Wagnerhópnum hafa verið áberandi Lesa meira

Segja gríðarlega umfangsmikla herkvaðningu yfirvofandi í Rússlandi

Segja gríðarlega umfangsmikla herkvaðningu yfirvofandi í Rússlandi

Fréttir
09.01.2023

Leyniþjónusta úkraínska hersins segir að Rússar séu nú að undirbúa nýja herkvaðningu og að nú verði 500.000 menn kallaðir til herþjónustu til viðbótar við þá 300.000 sem voru kvaddir til herþjónustu í haust. The Guardian skýrir frá þessu. Andriy Chernyak, fulltrúi leyniþjónustu úkraínska hersins, sagði í samtali við þýska fjölmiðilinn T-Online að herkvaðningin hefjist 15. janúar. Jacob Kaarsbo, sem er danskur sérfræðingur Lesa meira

Rússar segjast hafa fellt 600 úkraínska hermenn í flugskeytaárás – Fréttamenn á staðnum hafa aðra sögu að segja

Rússar segjast hafa fellt 600 úkraínska hermenn í flugskeytaárás – Fréttamenn á staðnum hafa aðra sögu að segja

Fréttir
09.01.2023

Talsmaður rússneska varnarmálaráðuneytisins skýrði frá því í gær að rúmlega 600 úkraínskir hermenn hefðu fallið í flugskeytaárás á tvær bækistöðvar úkraínska hersins í bænum Kramatorsk aðfaranótt sunnudags. Sagði talsmaðurinn að úkraínsku hermennirnir hefðu verið sofandi í svefnsölum herstöðvanna. Hann sagði að árásin hefði verið hefnd fyrir árás Úkraínumanna á rússneska bækistöð á gamlárskvöld en þá Lesa meira

Á þriðja tug látnir – „Dularfullur morðfaraldur“

Á þriðja tug látnir – „Dularfullur morðfaraldur“

Fréttir
09.01.2023

Hrap út um sjúkrahúsglugga, hjartaáfall, hrap niður fjallshlíð, hrap niður stiga og sjálfsvíg. Þetta eru bara nokkrar af þeim dánarorsökum sem hafa verið gefnar upp fyrir rúmlega 20 rússneska olígarka sem hafa látist síðasta árið. Við þetta má bæta dauðsföllum háttsettra herforingja. Flestir olígarkanna lifðu í velmegun og voru með gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu  og lífvörslu. Þetta eykur Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af