Segir Vesturlöndum að undirbúa sig undir stigmögnun frá Pútín – Gæti gripið til kjarnorkuvopna
FréttirÁkvörðun Þjóðverja um að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu og heimila öðrum ríkjum að gera hið sama getur haft mikil áhrif á gang stríðsins. Bretar hafa einnig ákveðið að senda Challenger skriðdreka til Úkraínu og Bandaríkjamenn ætla að senda Abrams M1 skriðdreka. Jacob Kaarsbo, sérfræðingur í rússneskum málefnum hjá dönsku hugveitunni Tænketanken Europa, sagði í samtali við TV2 að ákvörðun Þjóðverja geti haft mikil áhrif á Lesa meira
Verður ný stórsókn síðasta tækifæri Rússa?
FréttirÍ Úkraínu og á Vesturlöndum er talið að Rússar séu með stórsókn í bígerð í Úkraínu og að ekki sé langt í að hún hefjist. Þegar veturinn brast á breyttist gangur stríðsins og það fraus eiginlega fast á margan hátt og herir stríðsaðilanna gátu ekki lengur sótt fram. Við tók gamaldags skotgrafahernaður, til dæmis í Bakhmut þar Lesa meira
Fyrrum toppdiplómat Pútíns varar Vesturlönd við úr útlegðinni – Búið ykkur undir hernaðarátök
FréttirBoris Bondarev var áður einn af helstu rússnesku diplómötunum. En ólíkt þeim flestum þá lét hann óánægju sína í ljós þegar Vladímír Pútín fyrirskipaði innrás í Úkraínu. Bondarev hætti og sótti um hæli í Sviss. Þar býr hann nú á leynilegum stað en það kemur ekki í veg fyrir að hann tjái sig um stríðið. TV2 segir að hann telji sjálfan sig ekki Lesa meira
Flótti Wagnerliða til Noregs vekur athygli – „Engum öðrum hefur tekist þetta að vetrarlagi“
FréttirGaddavírsgirðing, viðvörunarkerfi, myndavélar, næturmyndavélar og fjöldi landamæravarða. Þetta er það sem Andrei Medvedev þurfti að takast á við þegar hann flúði frá Rússlandi til Noregs. Það vakti mikla athygli þegar þessi 26 ára Rússi birtist skyndilega í Norður-Noregi fyrir um 10 dögum og sótti um hæli. Hann sagðist hafa verið meðlimur í hinum illræmda málaliðahópi Wagner og hafi barist með Lesa meira
Segir að Wagner-hópurinn hafi misst 40.000 menn
FréttirFrá upphafi stríðsins í Úkraínu hefur rússneski málaliðahópurinn Wagner fengið 50.000 rússneska refsifanga til liðs við sig. Nú eru aðeins 10.000 þeirra eftir. Þetta segir Olga Romanova. Hún er rússneskur blaðamaður. Að sögn Meduza heldur Romanova því fram að Wagner hafi misst 40.000 af föngunum. Þeir hafi fallið á vígvellinum, sé saknað eða hafi gerst liðhlaupar. Hún telur að Yevgeny Prigozhin, eigandi Wagner, haldi ekki saman upplýsingum Lesa meira
Hugvitssemi Úkraínumanna kemur Bandaríkjamönnum ánægjulega á óvart
FréttirSamkvæmt heimildarmönnum innan bandaríska hersins þá hefur hið hörmulega stríð í Úkraínu haft þær afleiðingar að hægt hefur verið að prófa ný vopn og bardagaaðferðir á vígvellinum. Þetta er eitthvað sem enginn vill segja upphátt því hin hörmulegi fylgifiskur stríðsins er að fólk deyr daglega. En heimildarmenn segja að það megi einnig sjá jákvæð áhrif Lesa meira
Framleiðandi Leopard skriðdrekanna er reiðubúinn til að afhenda Úkraínumönnum skriðdreka
FréttirÞýski vopnaframleiðandinn Rheinmetall segist nú vera reiðubúinn til að afhenda úkraínska hernum Leopard skriðdreka. RND skýrir frá þessu og segir að Rheinmetall geti afhent 29 Leopard 2A4-skriðdreka fyrir apríllok og 22 til viðbótar í lok árs. Þess utan getur fyrirtækið afhent Úkraínumönnum 88 Leopard 1-skriðdreka en það er eldri útgáfan af þessum fullkomnasta skriðdreka heims.
Enn virðist evrópskum vinum Rússlands fækka – „Í okkar augum eru Krím og Donbas úkraínsk“
FréttirÞað þarf ekki marga fingur þessa dagana til að telja þau Evrópuríki sem teljast vinir eða bandamenn Rússlands. Nú er ekki annað að sjá en að það sé hægt að fækka þeim fingrum, sem eru notaðir við þessa talningu, um einn því að undanförnu hefur Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, tekið afstöðu gegn Rússlandi og innrásinni í Úkraínu. Lesa meira
Margt bendir til að brestir séu komnir í samband Pútíns og „Kokksins“
FréttirHann er þekktur sem „Kokkur Pútíns“ og einn nánasti bandamaður forsetans. En nú bendir margt til að brestir séu komnir í samband þeirra félaganna. Að minnsta kosti virðist sem Pútín sé í auknum mæli farinn að taka afstöðu með andstæðingum „Kokksins“ en það er Yevgeny Prigozhin, eigandi Wagner-hópsins sem er málaliðafyrirtæki sem berst með rússneska hernum í Úkraínu. Bandaríska hugveitan Lesa meira
Rússneskir útsendarar sagðir hafa staðið á bak við bréfsprengjur í nóvember
FréttirÞað voru útsendarar rússneskra yfirvalda sem stóðu á bak við bréfsprengjur sem voru sendar á ýmis heimilisföng á Spáni í nóvember, þar á meðal til forsætisráðherra landsins. New York Times skýrir frá þessu. Sex bréfsprengjur voru sendar til heimilisfanga á Spáni í nóvember. Bréfin voru stíluð á heimili Pedro Sanchez forsætisráðherra, varnarmálaráðuneytið og úkraínska og bandaríska sendiráðið. New York Times segir að bandarískir og spænskir embættismenn telji að Lesa meira