Vigdís vægast sagt ósátt við fegrunaraðgerðir borgarstjóra – „???“ -Myndir
EyjanNú standa yfir miklar framkvæmdir vegna endurskipulagningar á þremur torgum í Reykjavík undir nafninu „Þingholt, torgin þrjú“, þar sem um 300 milljónum er varið til þess að gera upp Baldurstorg, Freyjutorg, og Óðinstorg, en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri býr við Óðinstorg. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er ekki par sátt við útkomuna, ef marka má færslu Lesa meira
Segir Félagsbústaði vera rekna eins og banka: „Þessi breyting er með eindæmum ómanneskjuleg“
EyjanKolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram tillögu á fundi velferðarráðs um að Félagsbústaðir sæju sjálfir um að innheimta skuld á leigu og greiðsludreifingu skulda hjá leigjendum sínum, líkt og áður hafi verið gert. Nýlega varð breyting á hjá Félagsbústöðum á þessu, þar sem félagið fékk Mótus til að sjá um innheimtu skulda fyrir sig, Lesa meira
Segir viðbúið að verkefnið fari fram úr áætlun – „Ekki nema von að menn spyrji sig spurninga“
EyjanEyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir óvissuna varðandi fjármögnun samgöngusáttmálans sem borgarstjóri ræddi í Kastljósinu í gær: „Dagur B Eggertsson staðfesti í Kastljósi kvöldsins að fjárhagsáætlanir „samgöngupakkans“ væru á frumstigi. Hann staðfesti ennfremur að ekki liggur fyrir hver eigi að borga þegar verkefnið fer fram úr áætlun.Sem er viðbúið. Stærsti hluti fjármögnunarinnar upp á Lesa meira
Heimilislausum fjölgað um 95% á fimm árum í Reykjavík – Reykjavíkurborg heldur málþing
EyjanMálþing verður haldið um heimilisleysi á alþjóðlegum degi heimilisleysis (worldhomlessday.org) 10. október næstkomandi. Þingið er haldið í samvinnu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Geðhjálpar, SÁÁ og Velferðarvaktarinnar og er yfirskrift þess Samfélag fyrir alla – ábyrgð allra, samkvæmt frétt á vef Reykjavíkurborgar. Á málþinginu verður kynnt vinna velferðarsviðs Reykjavíkur um endurskoðun á stefnu borgarinnar í málefnum heimilislauss fólks. Einnig Lesa meira
Borgin kveður dagforeldra með þögn!!
EyjanHalldóra Björk Þórarinsdóttir, dagforeldri og formaður Barnsins félags dagforeldra í Reykjavík ritar: Nú líður að lokum okkar starfstéttar. Dagforeldrar hafa liðsinnt borginni í langan tíma og veitt foreldrum ungra barna daggæslu með 5 börnum og veitt þeim persónulega og nána þjónustu, sem ung börn þurfa. Það er alveg ótrúlegt að Reykjavíkurborg, sem áður trónaði á Lesa meira
Er þetta besta lausnin við umferðarvandamálinu í Reykjavík ? – „Geggjuð hugmynd að vestan“
EyjanAð ráðast á orsök vandans er inntakið í grein þeirra Hallgríms Sveinssonar bókaútgefanda, Guðmundar Ingvarssonar, fyrrverandi stöðvarstjóra Pósts og síma á Þingeyri og Bjarna G. Einarssonar, fyrrverandi útgerðarstjóra KD á Þingeyri, í Morgunblaðinu í dag. Vandamálið sem þeir félagar vilja leysa er umferðarteppan í Reykjavík, sem þeir líkja við neyðarástandi, enda hafi vandamálinu verið leyft Lesa meira
Reykjavíkurborg segist hafa yfirsýn yfir rykfallna bíla sína en stofnar samt starfshóp um þá – „Grátlega fyndið“
EyjanÁ fundi borgarráðs í gær lagði meirihlutinn fram drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um farartækjaflota Reykjavíkurborgar. Hlutverk hópsins er að „gera tillögur varðandi rekstrarfyrirkomulag, stjórnun og þjónustu fyrir bíla í eigu eða leigu Reykjavíkurborgar.“ Líkt og Eyjan greindi frá í vikunni höfðu voru bílar í eigu Reykjavíkurborgar, sem ekki höfðu verið í notkun í á Lesa meira
Dagur skrifar undir ókynntan samgöngusamning: „Dæmi um einræðið og harðstjórnina í Reykjavík“
Eyjan„Við erum fjölskipað stjórnvald og borgarstjóra ber skylda til að kynna okkur þennan samning,“ segir Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins við Eyjuna, um samkomulag ríkis og sveitarfélaganna um uppbyggingu samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu sem borgarstjóri hyggst undirrita fyrir hönd Reykjavíkurborgar nú klukkan 16. Samningurinn hefur þó ekki verið kynntur borgarfulltrúum til fulls, þar sem hann hefur breyst Lesa meira
Segir allt logandi vegna svikinna loforða: „Formaður skipulagsráðs svífst einskis í þessu máli“
EyjanGreint var frá því í gær að hluti Laugavegar, Skólavörðustígs og Vegamótastígs yrði gerður að varanlegum göngugötum, samkvæmt tillögu að nýju deiliskipulagi sem samþykkt var í auglýsingu í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar, en tillagan verður tekin fyrir í borgarráði í dag. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, segir að með þessu hafi meirihlutinn svikið gefin loforð Lesa meira
Yfirgefnir og rykfallnir bílar Reykjavíkurborgar valda íbúum óþægindum – „Ekki batnar ástandið í rekstri borgarinnar“
EyjanVigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, birti í dag mynd af rykföllnum bíl í almennu bílastæðahúsi í Bryggjuhverfi. Segist hún hafa fengið ábendingu um að tveir bílar í eigu borgarinnar hafi staðið þar óhreyfðir á annað ár, íbúum til ama og óþæginda. Samkvæmt ökutækjaskrá eru báðir bílarnir í eigu Eignarsjóðs Reykjavíkurborgar. Þeir eru báðir af Lesa meira