Össur sendir Jóni Baldvin væna sneið: „Hvaða utanríkisráðherra lét eftirfarandi orð falla á Alþingi um EES-samninginn ?“
EyjanÖssur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður og utanríkisráðherra Samfylkingarinnar, varpar fram gátu í færslu á Facebook í dag, sem virðist ætlað að hrista upp í umræðunni um þriðja orkupakkann. Össur spyr: „Hvaða utanríkisráðherra lét eftirfarandi orð falla á Alþingi um EES-samninginn: „Samstarf á sviði orkumála er að vísu ekki mjög umfangsmikið samkvæmt þessum samningi, en mun þó Lesa meira
Össur spáir í framtíðina og segir Guðmund Inga „grútmáttlausan umhverfisráðherra“
EyjanÖssur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður og utanríkisráðherra Samfylkingarinnar, setur sig í spámannsstellingar á Facebook og rýnir í framtíðina í heimspólitíkinni í kjölfar úrslita Evrópuþingkosninganna. Hann spáir að í Evrópu munu flokkar á borð við Miðflokkinn rísa upp og finna sameiginlegan óvin: „Í Bretlandi er Verkó orðinn “intolerant” flokkur og byrjað að reka eðalkrata sem í nýliðnum Lesa meira
Össur hneykslaður á orkupakkaorðbragðinu og kemur sjálfstæðiskonu til varnar
EyjanÖssur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra Samfylkingarinnar, tekur upp hanskann fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins og formann utanríkismálanefndar, á Facebook í kvöld. Áslaug, sem tók til máls um þriðja orkupakkann í umræðum um störf þingsins í dag, sagði það ekki koma sér á óvart að eftir því sem fólk kynnti sér málið betur, fjölgaði þeim er Lesa meira
Segir klofningshótanir Styrmis ótrúverðugar og dregur hann til ábyrgðar vegna hins„ógeðslega“ samfélags
EyjanEyjan greindi frá því í gær að Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, teldi næsta víst að Sjálfstæðisflokkurinn myndi klofna ef ráðherrar flokksins kysu ekki gegn þriðja orkupakkanum. Mátti skilja á orðum hans að hann sjálfur myndi standa fyrir því að kjúfa Sjálfstæðisflokkinn með stofnun annars sjálfstæðisfélags um fullveldi Íslands. Það er alltént skilningur Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi Lesa meira
Hörður segir Össur og verkalýðsforystuna hundsa varnarorð „gegn betri vitund“ fyrir „stundarvinsældir“
Eyjan„Hægt er að lýsa stöðunni á þessa leið: Atvinnulífinu er haldið í gíslingu vegna verkfalla og vinnudeilna,“ skrifar Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, í leiðara Fréttablaðsins í dag hvar hann dregur upp dökka mynd af ástandinu í þjóðfélaginu. Minnist hann á stöðu flugfélaganna, umskipti til hins verra í ferðaþjónustu og loðnubrest, sem þýði að þjóðarbúið verði af Lesa meira
Össur hjólar í Hörð Ægis: „Þar yrði hann vel geymdur innan um hina frjálshyggjubesefana“
EyjanÖssur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, tekur Hörð Ægisson, ritstjóra Markaðarins, viðskiptablaðs Fréttablaðsins, engum vettlingatökum í pistli sínum á Facebook í nótt. Leiðarar Harðar virðast Össuri ekki að skapi og blöskrar honum svo mikið, að hann leggur til að Hörður skipti um starf. Þá leyfir Össur sér að uppnefna Hörð og aðra sem aðhyllast Lesa meira
Össur: „Báðir urðu frábærir fjölmiðlamenn á RÚV og báða rak Sjálfstæðisflokkurinn úr starfi“
EyjanÖssur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, minnist tveggja fyrrverandi fjölmiðlamanna í stuttum pistli á Facebook í dag. Össur segir þá gerólíka, en eigi þó eitt sameiginlegt: „Í leiðindum mínum á skíðabrettinu í World Class runnu mér í hug tveir gagnmerkir en gerólíkir samferðamenn. Annar er Hallur Hallsson, ekta metall, hugsjónamaður af ofsa og á síðari árum Lesa meira
Össur um afmælishátíð VG: „Óneitanlega skondið – að ég ekki segi kaldhæðið“
EyjanÖssur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, skrifar um 20 ára afmæli VG og víkur sérstaklega að heiðursgestinum Ed Miliband, sem halda mun erindi á málþingi um „vinstrið“ um helgina. Össur byrjar þó á því að rifja upp sameiningu jafnaðarmanna fyrir 20 árum: „Á sínum tíma var Samfylkingin stofnuð sem söguleg tilraun til að sameina jafnaðarmenn. Allir Lesa meira