Höskuldur aftur í lögmennsku
Höskuldur Þórhallsson fv. alþingismaður. Orðið á götunni er að Höskuldur Þór Þórhallsson, fyrrverandi alþingismaður, sé genginn til liðs við Íslensku lögfræðistofuna. Fyrir á stofunni eru Haukur Örn Birgisson hrl., Arnar Kormákur Friðriksson hdl., Eggert Páll Ólason hdl. og Ómar Örn Bjarnþórsson hdl. sem eru eigendur stofunnar. Höskuldur Þór útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið Lesa meira
Lífið er dásamlegt
Orðið á götunni er að lífið sé dásamlegt í pólitíkinni á landi hér. Nú klóra þingmenn og stjórn þingsins sér í höfðinu yfir kosningu í bankaráð Seðlabankans sem Þorsteinn Víglundsson jafnréttisráðherra hefur sagt að eigi að kjósa í aftur vegna kynjamála. Það verður snúið. Kosningin er gild samkvæmt lögum sem gilda um Seðlabanka Íslands. Því Lesa meira
Yfirlögregluþjónn í stjórn RÚV
Orðið á götunni er að innanflokksátökin í Framsóknarflokknum haldi áfram, nú síðast með kosningu Alþingis í dag á nýrri stjórn Ríkisútvarpsins ohf. Guðlaugur Sverrisson, sem verið hefur formaður stjórnar undanfarin ár, var ekki endurkjörinn en í hans stað kemur yfirlögregluþjónninn á Sauðárkróki, Stefán Vagn Stefánsson (Guðmundssonar fv. alþingismanns) sem fulltrúi Framsóknarflokksins. Stefán Vagn er vinsæll Lesa meira
Raðast í bankaráð
Orðið á götunni er að nokkur slagur sé innan stjórnarflokkanna um formennsku í bankaráði Seðlabankans, sem kosið verður fljótlega. Forsætisráðuneytið hefur meira um Seðlabankann að segja en fjármálaráðuneytinu þykir skemmtilegt og auðveldar það ekki lausn mála. Inn í þetta blandast hefðbundnar hrókeringar innan stjórnmálaflokkanna, sem gerir dæmið enn flóknara. Þannig vill Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr Lesa meira
Flokkur í krísu
Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar. Orðið á götunni er að tilvistarvandi Samfylkingarinnar sé flestum kunnur, enda hefur flokkurinn beðið afhroð tvennar kosningar í röð og þurrkaðist út á Suðvesturhorninu sl. haust — fékk engan þingmann kjörinn í Kraganum eða höfuðborginni. Ýmsir innan flokks og utan hafa komið með skýringar á fylgisleysi Samfylkingarinnar, staðnæmast þar margir við Lesa meira
Titringur í verkalýðshreyfingunni
Ragnar Þór Ingólfsson. Orðið á götunni er að verkalýðshreyfingin leiki á reiðiskjálfi eftir tíðindi dagsins þar sem Ragnar Þór Ingólfsson bar sigur úr býtum í kosningu til formanns Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Sitjandi formaður, Ólafía B. Rafnsdóttir, beið afgerandi ósigur og segir nýr formaður í fjölmiðlum framboð sitt hafa verið vantraustsyfirlýsingu á forystu ASÍ. Ekki ríki traust Lesa meira
Fer Gunnar í borgina?
Gunnar bæjarstjóri Einarsson. Orðið á götunni er að sjálfstæðismenn í Reykjavík séu farnir að setja sig í stellingar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Núverandi minnihluti Sjálfstæðisflokks og framsóknar og flugvallarvina hefur ekki náð vopnum sínum í stjórnarandstöðu gegn fjögurra flokka meirihluta Dags B. Eggertssonar og félaga og hafa áhrifamenn í Valhöll miklar áhyggjur af því að Dagur Lesa meira
Stefnubreyting nýs ráðherra
Benedikt Jóhannesson. Orðið á götunni er að mörgum hafi bruðið í brún þegar fréttir birtust um viðræður erlendis milli fulltrúa íslenskra stjórnvalda og nokkurra vogunarsjóða. Eftir mörg ár hafta bíða landsmenn þess óþreyjufullir að losna við höftin. Þau skerða lífsgæði til lengri tíma litið og draga úr tækifærum. Vel tókst að leysa úr málum slitabúa Lesa meira
Úlfar næsti stjórnarformaður
Úlfar Steindórsson í Toyota. Orðið á götunni er að Úlfar Steindórsson, aðaleigandi og forstjóri Toyota á Íslandi, verði að líkindum næsti stjórnarformaður Icelandair Group, en aðalfundur félagsins verður haldinn á næstunni. Blásið hefur um félagið á markaði að undanförnu og Sigurður Helgason tilkynnti í dag að hann sækist ekki eftir endurkjöri í stjórn. Sigurður hefur Lesa meira
„Ótrúleg atburðarás“
Orðið á götunni er að margir í hópi sjómanna og samningamanna þeirra kunni Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur litlar þakkir fyrir framgöngu hennar undanfarna daga. Sagt er að ráðherrann hafi veifað frumvarpi að lögum á verkfallið fyrir framan samninganefndir sjómanna og útgerðarmanna og þannig neytt menn til samninga. Verkalýðsfrömuðurinn Vilhjálmur Birgisson á Akranesi var í samninganefnd sjómanna Lesa meira