Stigið í VænGinn
Orðið á götunni er að gleymska geti oft komið mönnum í koll. Almenna kenningin er sú að mun meiri líkur séu á að viðkomandi gleymi því hvað hann sagði, eftir því sem lengri tími líður frá því að hann sagði það. Þetta virðist sérstaklega áberandi hjá þaulsetnum stjórnmálamönnum. Þeim er að vísu vorkunn, enda þurfa Lesa meira
Framtíðarhækkanirnar
Orðið á götunni er að prósentureikningur geti verið ansi skemmtilegur þegar tölurnar eru settar í samhengi. Ennþá skemmtilegra þegar tölurnar eru ákvarðanir kjararáðs. Þingfararkaupið og laun héraðsdómara hækkuðu um 45% í október 2016, fóru grunnlaunin þá úr 766 þúsund krónum í 1,1 milljón króna. Ef launin hækka aftur um 45% fara þau upp í 1,5 Lesa meira
Kvenmannsleysi
Orðið á götunni er að verkalýðshreyfingin þurfi að taka sig á þegar kemur að hlutfalli kynjanna innan æðstu raða ASÍ. Eftir að tillaga um að segja upp kjarasamningum var felld í gær, kom bersýnilega í ljós að baráttuöskur verkalýðsbaráttunnar er 100% bassarödd. Myndir af fundinum hafa vakið upp viðbrögð jafnréttissinna, þar sem allir talsmenn aðildarfélaga Lesa meira
Hafnfirsk Framsóknarbjartsýni
Orðið á götunni er að Framsóknarflokkurinn ætli sér stóra hluti í Hafnarfirði í komandi sveitastjórnarkosningum. Mun hann bjóða fram undir merkjum Framsóknar og óháðra, til að höfða til sem flestra og vera með sem breiðasta skírskotun. Ágúst Bjarni Garðarsson, aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngu- og sveitamálaráðherra, er sagður oddvitaefni Framsóknarmanna og óháðra. Þá er Bolvíkingurinn Lesa meira
Ó þið auðmenn Íslands
Orðið á götunni er að flest sé breytingum háð – og auðmenn eru þar ekki undanskyldir. Þetta rifjast upp þegar flett er bókinni Auðmenn Íslands eftir Jónas Sigurgeirsson og Pálma Jónasson sem kom út fyrir aldarfjórðungi. Þar eru nöfn sem yngri kynslóðin hefur aldrei heyrt minnst á, þó að þar séu góðkunningjar þeirra sem eldri Lesa meira
Byltingin étur börnin sín
Orðið á götunni er að Sjálfstæðismenn séu að fara í hættulegan leiðangur með því að setja Kjartan Magnússon og Áslaugu Friðriksdóttur til hliðar á framboðslista sínum í Reykjavík. Það er hins vegar löng og „góð“ hefð fyrir því hjá stjórnmálaflokkum að refsa ákveðnum frambjóðendum ef illa gengur í könnunum. Það eru ekki bara þeir sem Lesa meira
Þinginu bjargað
Orðið á götunni er að nokkrir röskir nemendur í MBA námi Háskóla Íslands séu komnir langleiðina með að leysa vandamál Alþingis varðandi aksturspeninga. Arnar Ægisson útskriftarnemi í MBA náminu segir að þau séu langt komnir með að hanna nýtt app sem hefur þá eiginleika að skrá í gegnum síma allar ferðir viðkomandi einstaklings. Þannig birtast Lesa meira
Skál í boðinu!
Þingmenn eiga að nota svokallaða kjördæmaviku til að heimsækja kjósendur sína og fara yfir mál líðandi stundar. Að þessu sinni bar örlítinn skugga á, þar sem aksturspeningamál einstakra þingmanna vildu trufla fundina. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins brugðu á það ráð að funda norður á Siglufirði. Flogið var norður í land (Ásmundur líka), ekið á Siglufjörð og munstrað Lesa meira
Titringur
Orðið á götunni er að aldrei sé jafn miklvægt og rétt fyrir kosningar að sýna pólitísk klókindi. Kusk á hvítflibbann er einfaldlega ekki í boði. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri virðist hafa gleymt þessum vísdómi þegar hann vísaði Eyþóri Arnalds á dyr á fundi í Höfða með forystumönnum í borginni með þingmönnum. Segja má að Dagur Lesa meira
Grjót úr steinhúsi Vigdísar
Orðið á götunni er að líf sé heldur betur farið að færast í borgarstjórnarkosningarnar með tilkomu Vigdísar Hauksdóttur á vígvöllinn. Sjálf segist hún hafa saknað stjórnmálanna og stefnir á að ná inn fjórum fulltrúm fyrir Miðflokkinn. Það hlýtur að teljast metnaðarfullt markmið, ekki síst þar sem flokkurinn mældist með 1,1% fylgi í borginni daginn áður Lesa meira