fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024

Óflokkað

Það vantar fleiri gosbrunna

Það vantar fleiri gosbrunna

Eyjan
04.11.2005

Gamall skólabróðir minn Þorgrímur Þráinsson bað mig um að setja saman tíu hugmyndir um Ísland framtíðarinnar, þetta birtist svo í Toyota-blaðinu sem var borið út í morgun. Ég lét fylgja með svohjóðandi formála: Þessar hugmyndir fjalla allar um Reykjavík og mótast af því að ég er upprunninn í vesturhluta borgarinnar. Sumt af þessu er draumórakennt, Lesa meira

Flensupistill

Flensupistill

Eyjan
02.11.2005

Þegar ég var lítill strákur var ég heillaður af bókinni Árin sem aldrei gleymast eftir rithöfundinn Gunnar M. Magnúss; það var sérstaklega kaflinn sem fjallaði um árið 1918 sem mér fannst bæði hræðilegur og heillandi. Þarna var sagt frá ógurlegum frostavetri þegar lá hafís yfir Faxaflóa og hægt var að ganga milli Reykjavíkur og Akraness Lesa meira

Algjörlega siðlaust

Algjörlega siðlaust

Eyjan
01.11.2005

Viss flökurleiki grípur mann yfir afkomutölum bankanna; í landi þar sem tíðkast viðurstyggilegir okurvextir. Þetta er ekki sniðugt lengur – einn bankastjórinn kom svo brosandi í fréttunum áðan og sagði að það væri voða eðlilegt að hann fengi árslaun 200 gjaldkera í aukaþóknun. Síðast þegar þetta gerðist fór Davíð Oddsson í KB-banka og tók út Lesa meira

Að leika á kerfið

Að leika á kerfið

Eyjan
31.10.2005

Í þættinum hjá mér í gær var fjörug umræða um örorku- og sjúkdómavæðingu. Menn hafa reynt að skýra stórkostlega fjölgun öryrkja á síðustu árum með því að vinnumarkaðurinn sé svo miklu harðari en áður. Það gengur ekki alveg upp. Er ekki líklegt að það sé partur af skýringunni að auðveldara er að komast á bætur? Lesa meira

Borgríkið Ísland

Borgríkið Ísland

Eyjan
30.10.2005

Ágúst Einarsson hagfræðiprófessor var í viðtali í þættinum hjá mér í dag, umræðuefnið var ný bók eftir hann sem nefnist Rekstrarhagfræði. Í svipmyndum sem birtast í bókinni reifar Ágúst ýmis mál og setur fram skoðanir sem eflaust þykja djarfar sumar hverjar. Í einum kaflanum hvetur hann til dæmis til þess að Íslendingar verði þrjár milljónir Lesa meira

Gömlu dagana gefðu mér

Gömlu dagana gefðu mér

Eyjan
29.10.2005

Ég segi bara – take me back, gömlu dagana gefðu mér. Var að horfa á Dalalíf eftir Þráin Bertelsson í sjónvarpinu, frá sirka 1983. Þetta er stórkostleg heimild, allavega fyrir okkur sem lifðum þennan tíma. Þarna er veitingahúsið Óðal með sínum kúrekainnréttingum, gamla flugstöðin í Keflavík, Sveinbjörn Beinteinsson, Hrafnhildur Valbjörnsdóttir með ber brjóstin, ótrúlega púkaleg Lesa meira

Nokkrar grillur

Nokkrar grillur

Eyjan
27.10.2005

Einhver þrálátasta og kannski með varasamari grillum samtímans er að sami rassinn sé undir öllum stjórnmálamönnum – þeir séu allir siðlausir og sjálfsdýrkandi eiginhagsmunaseggir. Í samræmi við þetta er talað um stjórnmálamenn af djúpri fyrirlitningu; það er sífellt verið að klifa á að völdin séu að færast frá þeim yfir í viðskiptalífið. Stjórnmálamenn eru hæddir Lesa meira

Rétt verð?

Rétt verð?

Eyjan
26.10.2005

Fyrir venjulegt fólk úti í bæ virka kaup Flugleiða á Sterling gjörsamlega óskiljanlega. Það hafa heldur ekki verið veittar neinar almennilegar skýringar á því hvers vegna fyrirtæki sem er keypt á 4 milljarða er stuttu síðar selt á 15 milljarða. Markaðurinn, viðskiptarit Fréttablaðsins, birtir stórfurðulegan leiðara um að þessar hugmyndir byggi á þeirri villu að Lesa meira

Kvennafrí – Jeppamenning

Kvennafrí – Jeppamenning

Eyjan
25.10.2005

Það er auðvelt að vera vitur eftir á (besserwisser), en ef ég hefði verið spurður fyrir svona viku hversu margir myndu koma í bæinn á kvennafrídaginn hefði ég sagt svona 50 þúsund. Ef ég hefði verið spurður á sunnudagskvöldið hefði ég líklega hækkað töluna og sagt 70 þúsund. Það var mikill mannfjöldi, en fyrri talan Lesa meira

Allt fyrir frægðina

Allt fyrir frægðina

Eyjan
21.10.2005

"Er einhvers staðar hjólhýsagarður hérna sem ég vissi ekki um?" spurði kona sem ég þekki eftir að hafa horft á bæði Íslenska bachelorinn og Ástarfleyið.

Mest lesið

Ekki missa af