Nýr lögreglustjóri, Gerald Ford, skattar
EyjanNú les ég að Stefán Eiríksson, fyrrverandi skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, sé orðinn lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. Þetta fór framhjá mér þegar ég var úti í sumar. Maður man aðallega eftir Stefáni sem aðalgaurnum í Falun Gong málinu hérna um árið. Þá fannst manni hann fara langt út fyrir verksvið sitt – eins og honum þætti sérstaklega mikið Lesa meira
Útrásarvíkingar, Manuela, Dunkleosteus
EyjanÍ stjórn Straums-Burðaráss sitja allir helstu útrásarvíkingarnir, Björgólfur Thor, Jón Ásgeir, Hannes Smárason, Eggert Magnússon. Það gefur mjög ákveðin skilaboð þegar þeir ákveða að skipta úr krónunni yfir í evrur. Davíð Oddsson er fjarskalega móðgaður yfir þessu, gat ekki leynt gremju sinni á blaðamannafundi á fimmtudag. Sagði að þótt fjármálastofnanir hefðu leyfi til að gera Lesa meira
Dauðaþoka, síðasti geirfuglinn, evrupælingar
EyjanÞað berast fréttir af mikilli þoku í London. Maður leiðir hugann að gömlu Lúndúnaþokunni sem var sífellt verið að tala um í æsku minni. Þokan var eitt tákn Lundúna – í kvikmyndum sem áttu að gerast þar var gjarnan þoka. Jack the Ripper kom út úr þokunni; Vivian Leigh og Robert Taylor kvöddust á Waterloo Lesa meira
Undirheimablaðamennska, Byrgið og kristindómurinn
EyjanNú verða menn í bransanum háheilagir og segjast aldrei hafa greitt fyrir fréttir. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei stundað undirheimablaðamennsku – væri sjálfsagt ekki góður í því – en þar eru öll mörk mjög óljós. Hvernig ætla menn að fá dópista eða róna til að tala án þess að gefa þeim í Lesa meira
30. mars
EyjanÍ Reykjavíkurbréfi leggur Styrmir Gunnarsson út af bók eftir Ásgeir Pétursson, fyrrverandi sýslumann og bæjarfógeta. Ég hef gluggað í þetta rit – Ásgeir mun hafa verið mikill trúnaðarmaður margra forystumanna í Sjálfstæðisflokknum. Styrmir rekur frásögn Ásgeirs af atburðunum 30. mars 1949 þegar brutust út miklar óeirðir á Austurvelli, grjóti og mold var kastað í Alþingishúsið Lesa meira
Fjalakötturinn endurvakinn
EyjanÉg les í blaði að Hrönn Marinósdóttir ætli að fara að stofna kvikmyndaklúbb – vilji endurvekja nafnið Fjalaköttinn sem Friðrik Þór Friðriksson notaði á kvikmyndaklúbb sem starfaði í Tjarnarbíói á árunum 1975 til 1980. Ég segi bara eins Mogginn á hátíðarstund – það væri fagnaðarefni. Ég var fastagestur í kvikmyndaklúbbnum hjá Frikka. Þarna fékk maður Lesa meira
Látið börnin í friði!
EyjanÉg hef verið að reyna að skýra út fyrir Kára hvernig lífið hérna var fyrir svona hundrað árum, þegar langaafi hans var að alast upp í torfbæ þar sem fæddust ellefu systkini. Þessi bær er löngu horfinn, maður sér móta fyrir þústum á bökkum Norðurár – svona er um ótal bæi allt í kringum landið, Lesa meira
Framboð „eldri borgara“
EyjanÞegar fólk nær ákveðnum aldri fer því að berast póstur frá einhverju sem heitir Félag eldri borgara. Það biður ekki um póstinn. Kannski vilja sumir ekki ganga í þetta félag, jafnvel þótt þeir verði hundrað og fimmtíu ára. Ekki fremur en ég myndi ganga í félag miðaldra fólks. Gamalt fólk er hópur sem á ekki Lesa meira
Flokkseigendafélagið, smjörklípa og Kárahnjúkaslys
EyjanPaul Nikolov er slíkur heiðursmaður að hann ætlar ekki að krefjast þess að kynjakvóta sé beitt við uppstillingu hjá Vinstri grænum eins og reglur kveða þó á um. Þetta þýðir að Álfheiður Ingadóttir fær annað sætið í einhverju kjördæmanna þriggja á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að Paul viti ekki að Álfheiður hefur verið í pólitík síðan Lesa meira
Spilling, einkavæðing og olía
EyjanGömul einokunarfyrirtæki eiga í vök að verjast. Varla hægt að segja að maður beri hlýjar kenndir til þeirra. Íslenskir aðalverktakar sátu einir að hermanginu um árabil, þar grasseraði ótrúleg spilling, og kannski ekki nema við hæfi að fyrirtækinu hafi síðan verið komið til einkavina stjórnarflokkanna með dyggri aðstoð ráðherra. Sagan segir að í Framsókn hafi Lesa meira