Hví þarf þetta að vera öðruvísi hér?
EyjanSíðunni hefur borist svohljóðandi bréf frá gömlum vini, Finnboga Rúti Arnarsyni, sem er búsettur í París: „Ég les af mikilli athygli heimsósómaskrif þín um miðbæinn. Sumt les ég tvisvar og athuga hvort ég er ekki örugglega á réttri síðu, svo forn þykja mér viðhorfin og ólík því sem var. Til dæmis fögnuður þinn yfir því Lesa meira
Stærri en Nokia-forstjórinn
EyjanMaður er eiginlega orðinn ónæmur fyrir svona fréttum – en þetta virkar samt eins og lélegt grín.
Er Geir að meina þetta?
EyjanGeir Haarde segir enga þörf á á gjaldmiðilsbreytingu nú. Veit hann ekki betur eða – það sem jafnvel er líklegra – telur hann sér skylt að tala svona til að valda ekki óróa? Geir er jú með varkárustu mönnum. Horfum á staðreyndir málsins: Stýrivextir eru 13,3 prósent og enginn veit hvernig á að fara að Lesa meira
Innflytjendum hlýtur að fjölga
EyjanÞað vantar starfsfólk á leikskóla, lögreglumenn, kennara, hjúkrunarfólk. Mér skilst að vanti líka fólk til að vinna í verslunum eins og IKEA. Og svo er mér sagt að sárvanti verkfræðinga og tæknimenntað fólk. Þenslan í þjóðfélaginu er varla að minnka neitt að ráði. Á meðan er reyndar stór hluti unga fólksins í viðskiptanámi í háskólum Lesa meira
Skrítnar skepnur
Eyjan„Pabbi, það er geitungur í stiganum. Ég þori ekki niður.“ „Jú, jú, það er allt í lagi. Hann stingur þig ekki.“ „Eða kannski er þetta rostungur?“
Krónan, vinstristefna og þjóðernishyggja
EyjanGetur einhver sagt mér hvað er vinstri eða grænt við að halda með íslensku krónunni í gegnum þykkt og þunnt? Ég skrifaði að þeir sem vildu halda í krónuna þyrftu að fara að rökstyðja mál sitt almennilega – við höfum heyrt rök evrusinnanna ansi oft undanfarið. Æ fleiri eru farnir að aðhyllast þau leynt og Lesa meira
Guðlaugur tekur til í ráðuneytinu
EyjanDavíð Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, hefur löngum verið valdamesti maðurinn í heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga. Ráðherrar hafa ekki átt neitt í þennan embættismann. En nú hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, nýr heilbrigðisráðherra, tekið sig til og skutlað Davíð út úr ráðuneytinu. Hann er kominn í sérverkefni fyrir utanríkisráðuneytið. Margir anda léttar í heilbrigðiskerfinu. Í framhaldi af því Lesa meira
Auglýsing Símans
EyjanGerið eins mikið grín að trúarbrögðunum og þið getið! Hvort sem það heitir kristni eða íslam! Húmor er besta ráðið gegn ofstæki. Annars er þetta besta útlegging á auglýsingu Símans sem ég hef séð. Ég skil ekki hvernig biskupinn og kirkjan nenna að eltast við þetta.
Ég hata Ikea
EyjanRak augun í þetta og fannst ég þurfa að taka fram að ég hata IKEA. Ég vil ekki sjálfur þurfa að setja saman húsgögn sem ég kaupi. Held líka að það sé hættulegt heilsunni að reyna að skrúfa saman draslið sem kemur í pörtum frá IKEA.