Afrek
EyjanFór í gærkvöldi í Borgarnes, í Landnámssetrið, að sjá Mr. Skallagrimsson, sýningu Benedikts Erlingssonar. Þetta er tær snilld hjá Benna, hvernig hann heldur athyglinni fanginni í tvo klukkutíma, dregur fram lífið og húmorinn í Egilssögu. Afrek. Snorri Sturluson á raunar nokkurn heiður skilinn líka – ef við trúum því að hann sé höfundur Eglu. Það Lesa meira
Inn og CNN
EyjanMér varð það á að kalla sjónvarpsstöðina hans Ingva Hrafns „Inn“. Svona eins og „komdu inn“. En svo var mér sagt að þetta væri rangt. Stöðin heitir Ínn. Í-n-n. Eins og CNN. Ingvi Hrafn verður ekki sakaður um að hugsa smátt.
Framfarir á tíma Maós
EyjanÍ grein eftir Sverri Jakobsson Lesbók Morgunblaðsins í dag finnur hann ævisögu Maós eftir Jung Chang og Jon Hallliday flest til foráttu. Meðal annars kvartar Sverrir undan því að ekki sé fjallað um stórfellda iðnvæðingu í Kína á tíma Maós. Og að ungbarnadauði hafi minnkað í tíð hans. Á tíma Stalíns var líka stórkosleg iðnvæðing. Lesa meira
Dagur í Silfrinu
EyjanBorgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, verður gestur í Silfri Egils á sunnudag. Gestalistinn er að skýrast en meðal annarra sem nefna má eru Gunnar Smári Egilsson, Reynir Traustason og Jón Kristinn Snæhólm. Fleiri eiga að sjálfsögðu eftir að bætast við.
Gáfur
EyjanGamall kunningi minn var eitt sinn við nám í raunvísindum í frægum háskóla í Bandaríkjunum. Hann kom heim í jólafrí. Ég hitti hann á Laugaveginum og spurði: „Hvernig gengur í skólanum?“ „Mjög vel,“ svaraði hann. „Ég er efstur.“ „Nú,“ sagði ég. „Það er flott hjá þér.“ „Fyrir utan auðvitað alla Asíubúana, Kínverjana og Japanina, þeir Lesa meira
Afneitunarsinnar
EyjanEitt sinn var talað um villutrúarmenn. Svo komu endurskoðunarsinnar og þóttu ekki síður slæmir. Nú er talað um afneitunarsinna. Það eru þeir sem gleypa ekki hráan allan áróðurinn um loftslagsbreytingar, afleiðingar þeirra og aðferðir við að takast á við þær. Sjá stríðsfyrirsögn í Morgunblaðinu þar sem stendur Fljótum að feigðarósi og hugsa – getur þetta Lesa meira
Hvað gerðist á Valhallarfundinum?
EyjanSíðunni hefur borist eftirfarandi bréf sem segir frá fundi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. „Var einn af fjölmörgum Sjálfstæðismönnum sem boðaður hafði verið á fund í Valhöll í kvöld til að fara yfir málefnin í borginni undanfarna daga. Við spjölluðum á meðan að við biðum eftir að fundurinn hæfist. Allt í einu sprettur framkvæmdastjóri flokksins á fætur Lesa meira
Dramatík
EyjanFréttirnar um tilræðið við Benazir Bhutto eru hrikalega dramatískar. Ef maður væri rithöfundur í Pakistan myndi maður varla hika við að setjast niður og skrifa stóra skáldsögu um þetta. Fólkið bíður með öndina í hálsinum eftir leiðtoganum sem kemur úr útlegð og svo þetta. Samt var búið að loka vegum og senda sprengjusveitir á vettvang. Lesa meira
Líka Nonni
Eyjan16. nóvember er 200 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar. Maður vonar að okkur beri gæfa til að hafa þetta ekki alltof leiðinlegt – því leiðinlegur er Jónas ekki. Á tvöhundruð ára afmæli H.C. Andersen héldu Danir mikla hátíð og buðu Tinu Turner og nokkrum strákahljómsveitum að syngja. Það var allt heldur smekklaust. Eftir þessa hátíð sitja Lesa meira
Ekki Miðjarðarhafsmenning
EyjanÞað verður spennandi að sjá hvaða brautargengi frumvarp sautján þingmanna um aukið frelsi í áfengisverslun hlýtur í þinginu. Eins og sjá má í athugasemdum hér á síðunni er málið býsna umdeilt. Um það ríkir heldur ekki einhugur í neinum stjórnmálaflokki – helst að manni detti í hug að Vinstri græn ætli öll að vera á Lesa meira