Megnið af ráðstöfunartekjum öryrkja fer í húsnæðiskostnað
Eyjan14.10.2022
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) telur að kjör öryrkja fari hratt versnandi. Húsnæðiskostnaður sé að sliga marga og þeim fjölgi sem leiti til Umboðsmanns skuldara. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum könnunar sem Félagsvísindastofnun er að vinna fyrir ÖBÍ kemur fram að ætla megi að tíundi hver öryrki verji meira en 75% af ráðstöfunartekjum sínum í rekstur húsnæðis. Lesa meira