Sáu „óvenjulegan lit“ við árbakkann – Brá mjög í brún þegar þeir sáu hvað þetta var
PressanBandarískir landamæraverðir voru á þriðjudaginn við eftirlit við Rio Grande nærri bænum Eagle Pass en hann er við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Þeir sigldu eftir Rio Grande og skyndilega sáu þeir „óvenjulegan lit“ á árbakkanum og fóru að sjálfsögðu nær til að kanna málið. Þeim brá mjög í brún þegar þeir komu nær og sáu að tvö lítil börn voru þar. Þau höfðu Lesa meira
Mexíkóskur eiturlyfjahringur hótar að drepa fréttaþul vegna „ósanngjarnrar“ umfjöllunar
PressanMeðlimir í mexíkóska eiturlyfjahringnum Jalisco New Generation hafa birt myndband þar sem þeir hafa í hótunum við Azucena Uresti, fréttaþul, og sjónvarpsstöðina Milenio Television. Í myndbandinu segjast menn, sem eru grímuklæddir, vera fulltrúar valdamesta eiturlyfjahrings landsins og hafi þeir gripið til þess óvenjulega ráðs að birta myndbandið og hóta að myrða Uresti vegna þess sem þeir telja vera ósanngjarna umfjöllun um eiturlyfjahringinn. Myndbandið var birt Lesa meira
Fundu 43 lík í Arizona
PressanÍ júní fundust 43 lík af ólöglegum innflytjendum sem voru á leið til Bandaríkjanna frá Mexíkó. Mánuðurinn var heitasti júnímánuður sögunnar í Phoenix en hitinn fór margoft yfir 43 gráður en það er svipaður hiti og er venjulega í Sonoraneyðimörkinni. The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að það séu samtökin Humane Borders sem hafi skráð líkfundina út frá gögnum frá réttarmeinafræðingum Lesa meira
Allt að 60% fleiri COVID-19 dauðsföll í Mexíkó en opinberar tölur segja til um
PressanMexíkósk yfirvöld hafa staðfest að rúmlega 200.000 manns hafi látist af völdum COVID-19 en í raun gæti talan verið allt að 321.000. þetta kemur fram í nýrri skýrslu. Mexíkó hefur farið illa út úr heimsfaraldrinum, sjúkrahús eru undir miklu álagi, skortur er á súrefni og ástandið er víða hræðilegt. Ofan á þetta bætist hugsanlega hafa Lesa meira
Smyglarar fylgjast vel með fólki sem fer frá Mexíkó til Bandaríkjanna – Látið bera armbönd
PressanAð sögn bandarískra embættismanna þá færist sífellt í vöxt að mexíkóskir eiturlyfjahringir og þeir sem smygla fólki frá Mexíkó til Bandaríkjanna fylgist með ferðum fólks með því að láta það bera armbönd þar sem ýmsar upplýsingar koma fram. The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að landamæraverðir verði í síauknum mæli varir við þetta. Á þessum armböndum Lesa meira
Örvæntingarfullir Mexíkóar bíða klukkustundum saman eftir súrefni
PressanÁlagið á sjúkrahús í Mexíkóborg er svo mikið að ekki er hægt að taka við fleiri COVID-19-sjúklingum og verða þeir því að takast á við sjúkdóminn heima hjá sér. Þetta veldur því að fólk stendur klukkustundum saman í röðum til að kaupa súrefni handa veikum ættingjum sínum. Dæmi eru um að fólk hafi eytt því Lesa meira
Mexíkó – Fundu 59 lík í nokkrum gröfum
PressanAð minnsta kosti 59 lík fundust í nokkrum gröfum í Guanajuato-ríki í Mexíkó fyrr í vikunni. Yfirvöld tilkynntu um þetta á miðvikudaginn. Karla Quintana, sem stýrir sérstakri rannsóknarnefnd yfirvalda, sagði að flest líkin virðist vera af ungu fólki, mjög ungu, jafnvel á unglingsaldri. Hún sagði að 10 til 15 af líkunum virðist vera af konum en það Lesa meira
Telja að miklu fleiri hafi látist af völdum COVID-19 í Mexíkó en skýrt hefur verið frá
PressanYfirvöld í Mexíkó hafa fram að þessu staðfest að 89.000 hafi látist af völdum COVID-19 þar í landi. En hin raunverulega dánartala er líklega mun hærri eða um 140.000. Heilbrigðisráðuneyti landsins viðurkennir þetta. Fram til 26. september voru dauðsföll í landinu 193.170 fleiri en þau hefðu átt að vera í venjulegu árferði. Þetta er reiknað út Lesa meira
Ótrúleg uppgötvun – „Þau fullkomnustu sem ég hef séð á ferlinum“
PressanÍ síðustu viku gerðu bandarískir toll- og landamæraverðir ótrúlega uppgötvun sem er sögð vera söguleg. Starfsmenn Homeland Security komu einnig að málinu. Um miðjan júlí uppgötvuðu lögreglumenn holu sem var að myndast á landamærunum við Mexíkó og hélt jarðvegurinn sífellt áfram að síga. Þann 27. júlí var því byrjað að bora niður við þess holu Lesa meira
Leit að tveggja ára barni leiddi lögregluna að húsi með 23 börnum sem hafði verið rænt
PressanLeit mexíkósku lögreglunnar að tveggja og hálfs árs gömlum dreng, sem hvarf frá markaði í suðurhluta Mexíkó fyrir þremur vikum, leiddi lögregluna að húsi í bænum San Cristobal. Þar fundu lögreglumenn 23 börn sem var haldið þar föngnum og neydd til að selja skartgripi á götum bæjarins. Þrjú barnanna voru á aldrinum 3 til 20 Lesa meira