Voru að taka í hurðarhúna í Vallahverfinu í Hafnarfirði
FréttirLögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir í Vallahverfinu í Hafnarfirði í nótt. Það er um tvo menn sem gengu á milli húsa og tóku í hurðarhúna. Í skýrslu lögreglu er ekki greint frá því hvort þeir fundust eða ekki. Hins vegar var maður handtekinn í hverfinu vegna líkamsárásar og vistaður í fangaklefa. Nokkuð Lesa meira
Ísland tók þátt í stórri aðgerð Interpol – Lögðu hald á mikið magn af stinningarlyfjum
FréttirTollgæslan, Lyfjastofnun og alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra tóku þátt í stórri aðgerð sem skipulögð var af alþjóðalöggæslustofnuninni Interpol. Mikið magn af stinningarlyfjum voru haldlögð. Aðgerðin heitir Pangea og er haldin í sextánda sinn, en Pangea er vísun til risameginlandsins sem var til fyrir um 250 milljón árum síðan. Þegar allt land var eitt meginland. 89 ríki tóku þátt í aðgerðinni sem stóð Lesa meira
Eiríkur fyrirgefur hattaþjófinum – „Þá stóð lögreglan í dyrunum með hattinn“
FréttirRithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl lenti í óskemmtilegri lífsreynslu þegar hattinum hans var stolið í sundklefa á Egilsstöðum. Betur fór en á horfðist því að hattinum var skilað í miðjum bókaupplestri. Eiríkur er þessa dagana í heilmikilli upplestrarferð um landið, næstum 40 stopp á tæpum mánuði, til að kynna nýja veglega skáldsögu, Náttúrulögmálin. Hann er búinn Lesa meira
Lögregla hættir rannsókn á dauða hestsins – Sárið hugsanlega eftir annað dýr
FréttirLögreglan á Austurlandi hefur hætt rannsókn á dauða tólf vetra hestsins Snæfinns frá Finnsstaðakoti. Bráðabirgðarannsókn sýnir að hesturinn hafi ekki verið skotinn eins og grunur lék á um. „Hann var ekki skotinn. Það er það sem liggur fyrir. Þar með líkur okkar rannsókn,“ segir Hjalti Bergmann Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Austurlandi. DV og fleiri miðlar greindu Lesa meira
Hélt hnífi upp að hálsi pilts við grunnskólann á Borgarnesi og sparkaði í klof lögreglumanns
FréttirTveir ungir piltar hafa verið ákærðir fyrir ofbeldi og hnífaárásir á Akranesi og Borgarnesi. Annar þeirra er ákærður fyrir að hafa haldið hnífi upp að hálsi pilts við grunnskólann á Borgarnesi. RÚV sagði fyrst frá. Aldur piltanna er ekki uppgefinn í ákæru en sumir gerenda og brotaþola eru undir 18 ára aldri. Í ákærunni eru Lesa meira
Lögregla leitar að hestadrápara – „Þetta virðist ekki hafa verið slysaskot“
FréttirTólf vetra hestur var skotinn nálægt Egilsstöðum um helgina. Lögreglan á Austurlandi rannsakar málið en dýralæknir hefur staðfest að skot úr byssu hafi orsakað dauða hestsins. Mannlíf greindi fyrst frá málinu. „Þarna lá hann bara,“ segir Marietta Maissen, tamningamaður og eigandi hestsins. En hrossið fannst við inngang stórrar girðingar. „Ég hélt fyrst að hann væri Lesa meira
Vopnaður ræningi tæmdi peningaskáp í Breiðholti
FréttirVopnað rán var framið í verslun í Breiðholti í morgun. Þetta kemur fram í skýrslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynningin barst klukkan 9:30 í morgun í hverfi 109 (Breiðholti). Ræninginn tæmdi peningaskáp sem hafði að geyma uppgjör gærdagsins. Samkvæmt lögreglunni er málið í rannsókn. Í miðborginni var tilkynnt um innbrot, þjófnað og skemmdarverk í bifreið. Gerandinn er ókunnur Lesa meira
Tíu í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnainnflutnings – Fíkniefnamál orðin 58 í ár á Suðurnesjum
FréttirÁ síðasta ári rannsakaði lögreglan á Suðurnesjum 69 mál vegna smygls á fíkniefnum, peningaþvættis og flutningi á reiðufé úr landi. Það sem af er þessu ári eru málin orðin 58. Í þessum málum voru sakborningar handteknir á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins eða handteknir vegna gruns að vera með illa fengið fé á leið úr Lesa meira
Mannslátið á laugardagskvöld – Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir konunni
FréttirLögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir konu, sem fædd er árið 1981, vegna láts karlmanns á sextugsaldri á laugardagskvöldið. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir konunni rennur út í dag en krafist er áframhaldandi varðhalds á grundvelli rannsóknarhagsmuna til miðvikudagsins fjórða október. Ævar Pálmi Pálmason yfirlögregluþjónn segir í samtali við DV að krufning hafi enn ekki Lesa meira
Mannslátið á laugardagskvöld – Konan sem situr í gæsluvarðhaldi með refsidóma á bakinu
FréttirKonan sem situr í gæsluvarðhaldi vegna láts manns á sextugsaldri síðastliðið laugardagskvöld er fædd árið 1981. Hún hefur í það minnsta fjóra refsidóma á bakinu, er sá elsti frá árinu 2006 og sá nýjasti frá árinu 2021. Allir dómarnir varða fíkniefnabrot. Samkvæmt óstaðfestum heimildum DV er talið ólíklegt að konan hafi orðið manninum að bana Lesa meira