Mynd
Lögreglan á Suðurnesjum viðurkennir mistök - Máttu ekki fyrirskipa eyðingu myndbands af því þegar kviknaði í manni
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur sent frá sér ákvörðun í máli sem hún tók upp að eigin frumkvæði. Varðar það alvarlegt atvik sem varð í gamla kirkjugarðinum í Keflavík að morgni dags í maí síðastliðnum. Þá kviknaði í manni sem lögreglumenn höfðu afskipti af en hann mun hafa verið í andlegu ójafnvægi.