Mynd

Nína Richter skrifar: Langanir ljóshærðrar konu

Líf okkar snýst að svo stóru leyti um langanir. Oft langar okkur í hluti sem við þurfum og stundum langar okkur í hluti sem skaða okkur. Fíklar biðja oft um líkn frá löngun á meðan aðrir biðja um eða bíða eftir löngun til þess að taka skrefið og byrja í ræktinni, hætta að drekka orkudrykki, taka kókaín eða fá heimsent áfengi á virkum dögum.