Gamanmyndahátíð Flateyrar frumsýnir 11 íslenskar gamanmyndir
FókusGamanmyndahátíð Flateyrar verður haldin í þriðja sinn, dagana 13.-16. september næstkomandi. Hátíðin í ár er sérstaklega glæsileg, þar sem hlátur og gleði er í fyrirrúmi, líkt og fyrri ár. Hátíðin fer að mestu fram í 80 ára gömlum bræðslutanki sem stendur á Sólbakka við Flateyri. Hátíðin hefst fimmtudaginn 13. september þegar leiksýningin Hellisbúinn verður sett Lesa meira
Rússneskir kvikmyndadagar haldnir í sjötta sinn í Bíó Paradís
FókusRússneskir kvikmyndadagar eru haldnir í sjötta sinn í Bíó Paradís dagana 13. – 16. september. Þessi sjötta útgáfa af Rússnesku kvikmyndadögunum er haldin af sendiráði rússneska sambandsríkisins á Íslandi í samstarfi við Production Centre NORFEST, Bíó Paradís og Northern Traveling Film Festival, með fjárstuðningi frá Menningarmálaráðuneyti Rússlands. Í ár er viðburðurinn tileinkaður 75 ára afmæli Lesa meira
Klæddu sig upp sem djöflanunnur
FókusStarfsfólk Sambíóanna klæddi sig upp sem djöflanunnur í tilefni sérstakrar miðnætursýningar á hryllingsmyndinni The Nun. Þó svo starfsfólkið væri uppklætt eins og djöflanunnur afgreiddi það og þjónaði viðskiptavini bíósins eins og venjulega. Gátu kvikmyndagestir tekið myndir af sér með nunnunum ásamt því að starfsfólkið átti til að birtast í salnum klætt sem djöflanunna. Kvikmyndin The Nun hefur ekki fengið of góða Lesa meira
Launmorðingjar næst á dagskrá hjá Elísabetu
FókusKlipparinn Elísabet Ronaldsdóttir hefur verið ráðin til starfa fyrir sjónvarpsseríuna Wu Assassins. Streymiveitan Netflix sér um framleiðsluna og mun Elísabet klippa fyrstu tvo þætti seríunnar, en þeir verða tíu samtals. Elísabet greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni, en hún er einn eftirsóttasti klippari landsins og hefur gert garðinn frægan upp á síðkastið með stórvinsælum kvikmyndum Lesa meira
Fyrsta kvikmyndin um björgun fótboltastrákanna á leið í tökur
FókusHvert kvikmyndafyrirtækið á eftir öðru hefur slegist um söguna af fótboltastrákunum sem festust í helli í Taílandi – og mögnuðu björgunaraðgerðirnar sem í kjölfarið fylgdu. Saga strákanna og þjálfara þeirra hélt heiminum í heljargreipum í sumar og að svo stöddu eru allt að sex útgáfur á forvinnslustigi. Á kvikmyndahátíðinni í Toronto var þó formlega tilkynnt Lesa meira
Lof mér að falla slær í gegn í Toronto – gagnrýnendur á einu máli
FókusLof mér að falla var heimsfrumsýnd á fimmtudagskvöld á kvikmyndahátíðinni í Toronto og voru viðbrögðin ótrúleg. Dómar eru farnir að birtast í Kanada eins og kom fram fyrr í vikunni og eru gagnrýnendur einróma í áliti sínu. „It has a sharp narrative that’s brutal and honest. Everything from the start to the end is a Lesa meira
Margrét hannaði búninga fyrir kvikmynd um Anders Breivik – „Þetta var svolítið mikið“
Fókus„Þetta er rosalega áhrifarík mynd og ég get ekki hætt að hugsa um hana,“ segir búningahönnuðurinn Margrét Einarsdóttir, en hún sá um 3.600 búninga fyrir kvikmyndina 22 July sem streymiveitan Netflix framleiðir. Kvikmyndin fjallar um fjöldamorð Anders Behring Breivik í Útey og var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á dögunum við frábærar viðtökur. Margrét var Lesa meira
Undir Halastjörnu heimsfrumsýnd á stærstu kvikmyndahátíð Asíu
FókusUndir Halastjörnu tekur þátt í World Cinema hluta Busan – stærstu kvikmyndahátíðar Asíu sem fram fer í Suður Kóreu 4. – 13.október og er þetta jafnframt heimsfrumsýning á myndinni. Tvær íslenskar myndir eru á hátíðinni en Lof mér að falla er í sama flokki. Undir Halastjörnu verður svo frumsýnd 12. október hér á landi en Lesa meira
Mesta slys í sögu rússneska sjóhersins – nýjasta verkefni Valdísar Óskarsdóttur
FókusSpennuþungin stikla hefur nú verið frumsýnd úr kvikmyndinni Kursk. Um er að ræða nýjustu myndina úr smiðju hins virta danska leikstjóra Thomasar Vinterberg (leikstjóra Festen og Jagten) og segir frá rússneska kafbátnum Kursk sem sökk í kjölfar sprengingar árið 2000. Þá upphófst leit í kappi við tímann til að bjarga 107 manna áhöfninni. Slysið er Lesa meira
Heimildarmyndin Söngur Kanemu – Sigurmynd Skjaldborgar 2018
FókusÍ kvöld kl. 20 verður frumsýnd í Bíó Paradís heimildamyndin Söngur Kanemu. Erna Kanema snýr plötum eftir sýninguna. Söngur Kanemu fjallar um leit hinnar söngelsku Ernu Kanemu að söngvum frá Sambíu, heimalandi föður síns. Erna öðlast um leið skilning á tónlistarhefð forfeðra sinna og tekur brot af henni með sér heim til Íslands. Kanema er 18 ára Lesa meira