Komin með nágrannann upp á arminn fjórum mánuðum eftir skilnaðinn sem skók Hollywood
FókusFyrrverandi eiginkona leikarans Kevin Costner, Christine Baumgartner, hefur fundið ástina að nýju, fjórum mánuðum eftir að hatrömmum skilnaði þeirra Costner lauk, en skilnaðurinn fór ítrekað fyrir dómstóla og var fjallað um hann í öllum miðlum. Nýji maðurinn er nágranni þeirra, Josh Connor, fjárfestir og framkvæmdastjóri. Greina miðlar vestanhafs frá því að þau hafi ferðast saman Lesa meira
Fyrrverandi dæmd til að greiða lögfræðikostnað Costner – Neyðist til að fá sér vinnu
FókusChristine Baumgartner, fyrrverandi eiginkona leikarans Kevin Costner hefur verið dæmd til að greiða lögfræðikostnað Costner. Hjónin fyrrverandi hafa staðið í ströngu með lögmönnum fyrir dómi þar sem tölur hafa flogið á milli á víxl yfir hvað Costner eigi að greiða fyrrverandi í framfærslu hennar og þriggja barna þeirra. Síðustu vendingar í málinu eru þær að Lesa meira
Fyrrverandi heimtar meiri pening – Lífsstíllinn þarf að vera sambærilegur þeim sem Costner lifir
FókusFyrrverandi eiginkona leikarans Kevin Costner, Christine Baumgartner, hefur nú farið fram á aukið framlag vegna þriggja barna þeirra, en skilnaðardeila hjónanna sem voru gift í 18 ár hefur farið fram fyrir dómstólum og í sviðsljósinu síðan þau tilkynntu um skilnað sinn í maí. Það var Baumcartner sem óskaði eftir skilnaði og hefur hún síðan krafist Lesa meira
Hatrammi Hollywood-skilnaðurinn – Sakar stórleikarann um að ljúga um raunverulegt virði sitt
FókusNýlega sást til leikarans Kevin Costner stíga út úr einkaþotu sinni, sem þykir nokkuð kaldhæðnislegt í ljósi þess að eiginkona hans Christine Baumgartner hefur sakað hann um að leyna gögnum um fjármál sín. Hjónin eiga sem stendur í hatrömmum skilnaði sem hefur vakið töluverða athygli, ekki síst fyrir þá staðreynd að um hjónaband þeirra gildir Lesa meira
Harðvítugar meðlagskröfur – Costner segist blankur en dæmdur til að greiða helmingi meira en hann vildi
FókusLeikarinn Kevin Costner hefur verið dæmdur til að greiða meira en tvöfalt hærri meðlagsupphæð en hann var viljugur til að greiða, til fyrrverandi eiginkonu hans Christine Baumgartner. Samkvæmt dómsskjölum sem fjölmiðlar vestanhafs fjalla um úrskurðaði dómari í gær að Costner skyldi greiða 129.755 dali (um 17,2 milljónir króna) mánaðarlega til að framfleyta þremur börnum hans Lesa meira
Skilnaðurinn sem skekur Hollywood – Hver á að borga brúsann fyrir börnin?
FókusEins og alþjóð veit er hatrammasti skilnaður Hollywood um þessar mundir skilnaður leikarans Kevin Costner og Christine Baumcartner. Frúin sótti um skilnað eftir 19 ára hjónaband, en hjónin eiga saman þrjú börn á aldrinum 15 – 12 ára en fyrir átti Costner fjögur börn, þrjú með fyrrum eiginkonu sinni Cindy Silva og eitt með Bridget Lesa meira
Hatrammi skilnaðurinn harðnar – Yfirgengileg meðlagskrafa afhjúpuð og meintur friðill neitar
FókusÞað er ekki nóg fyrir okkur að fylgjast með stjörnunum í Hollywood á þeim starfsvettvangi sem þau hafa kosið sér. Nei svo sannarlega ekki. Með því að sækjast í frægðina hafa þau gerst opinberar manneskjur og þá er úti um einkalífið, ef svo má komast að orði. Vissulega fer þetta í taugarnar á mörgum stjörnum, Lesa meira
Hatrammur skilnaður í Hollywood – Eiginkonan hústökukona í tveggja milljarða lúxushöll og sökuð um fjárkúgun
FókusLeikarinn Kevin Costner er skilinn að borði og sæng. Svona gerist víst á bestu bæjum enda eru sambönd stundum með best fyrir dagsetningu alveg eins og mjólkurfernurnar, og geta að sama bragði súrnað ef farið er fram yfir þann tíma. Að venju við slíkan skilnað slíta hjón samvistum, annar eða bæði flytja út af heimilinu Lesa meira
Segja að krafa eiginkonunnar um skilnað hafi komið Kevin Costner í opna skjöldu
FókusSú ákvörðun Christine Baumgartner að óska eftir skilnaði við kvikmynda- og sjónvarpsstjörnuna Kevin Costner kom flestum tengdum þeim í opna skjöldu – þar á meðal Costner sjálfum. Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greinir frá þessu en greint var frá því í gær að Baumgartner hefði óskað eftir skilnaði eftir 18 ára hjónaband. Opinberlega brást Costner við með Lesa meira
Eiginkona Kevin Costner fer fram á skilnað eftir 19 ára hjónaband
FókusChristine Baumgartner, eiginkona Kevin Costner, hefur óskað eftir skilnaði frá kvikmyndastjörnunni en parið gifti sig fyrir 19 árum síðan. Erlendir miðlar greina frá því að Baumgartner hafi sett leikaranum afarkosti fyrir hálfu ári síðan að hann myndi hætta að leika í sjónvarpsþáttunum Yellowstone, sem hafa slegið í gegn um allan heim. Ástæðan var vinnuálag leikarans Lesa meira