Björn segir að Katrín hafi verið sú eina sem hringdi
FréttirBjörn Snæbjörnsson, eftirlaunaþegi og fyrrverandi formaður Starfsgreinasambandsins, hefur opinberað stuðning sinn við Katrínu Jakobsdóttur í komandi forsetakosningum. Björn gerir þetta að umtalsefni í aðsendri grein sem birtist á Vísi í morgun. Hann segir að þegar Guðni Th. Jóhannesson hafi lýst því yfir að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri hafi fólk farið að svipast um eftir Lesa meira
Svarthöfði skrifar: „Geislavirka“ fórnarlambið, Katrín Jakobsdóttir
EyjanFastir pennarSvarthöfði hjó eftir því í umræðuþætti forsetaframbjóðenda á Stöð 2 fyrir helgi að Katrín Jakobsdóttir virðist upplifa sig sem fórnarlamb í þessari kosningabaráttu. Hún sagði það áhyggjuefni að þátttaka hennar í stjórnmálum hafi gert hana „geislavirka“, sem væri ósanngjarnt. Vitaskuld er horft til starfsferils frambjóðenda til forseta þegar lagt er mat á þá. Í tilviki Lesa meira
Steinunn Ólína segist ekki vera að leggja Katrínu í einelti
EyjanSteinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi vísar því alfarið á bug að hún sé að leggja Katrínu Jakobsdóttur mótframbjóðanda sinn of fyrrverandi forsætisráðherra í einelti. Steinunn Ólína segist aðeins hafa viðhaft eðlilega gagnrýni á störf Katrínar. Þegar Steinunn Ólína var að hugleiða hvort hún byði sig fram gaf hún það hins vegar skýrt til kynna að hún Lesa meira
Orðið á götunni: Sægreifar kosta framboð Katrínar
EyjanEndaspretturinn er hafinn í baráttunni um Bessastaði, en nú eru innan við tvær vikur til kjördags. Frambjóðendur og bakhjarlar þeirra eru greinilega farnir að bretta upp ermar. Buddan hefur verið opnuð upp á gátt og bersýnilega vegur hún mismikið hjá frambjóðendum. Orðið á götunni er að þrír frambjóðendur hafi mest fé milli handanna, sem birtist Lesa meira
Orðið á götunni: Ný föt – sama röddin
EyjanOrðið á götunni er að haldi Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, að hún geti stigið vígamóð út úr daglegum stjórnmálum, yfirgefið sökkvandi skip ríkisstjórnar sinnar og flokks Vinstri grænna og látið kjósa sig forseta Íslands fáeinum vikum síðar, sé það mikill misskilningur. Kjósendur séu ekki eins vitlausir og sumir virðist halda. Landsmenn vilji velja forsetann sjálfir en Lesa meira
Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda
FréttirBjarni Már Magnússon prófessor og forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst ritaði fyrr í dag grein á Vísi þar sem hann lýsir yfir áhyggjum vegna þess að í kappræðum sex forsetaframbjóðenda á Stöð 2 í gærkvöldi hafi sumir þeirra opinberað að þeir telji ranglega að Ísland fylgi hlutleysissstefnu í alþjóðamálum. Bjarni segir sum forsetaefnin hafa einnig Lesa meira
Svarthöfði skrifar: Ríkismiðlarnir snúa saman bökum
EyjanFastir pennarÞað kom Svarthöfða á óvart í vikunni að svo virðist sem Morgunblaðið og Ríkisútvarpið hafi snúið bökum saman í umfjöllun sinni um komandi forsetakosningar, en ekki er betur vitað en að ritstjórnir ríkismiðlanna tveggja séu aðskildar, enn sem komið er hið minnsta. Mörgum þótti Stefán Einar Stefánsson, sem ku kalla sig siðfræðing, fara offari gegn Lesa meira
Katrín opnar sig um áfallið: „Afi var enn lifandi og missti báða syni sína á nokkrum mánuðum“
FréttirKatrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra, er í einlægu viðtali í nýjasta tölublaði Heimildarinnar sem kom út í dag. Í viðtalinu ræðir Katrín meðal annars um persónuleg málefni, þar á meðal andlát föður síns, Jakobs Ármannssonar, sem lést þegar hann var 57 ára. Katrín, sem er yngst fjögurra systkina, segist hafa átt góða æsku en Lesa meira
Sakar Katrínu um að svíkja börnin á Gaza – „Hennar skömm er sérstaklega mikil þar sem hún vissi betur“
FréttirSalvör Gullbrá Þórarinsdóttir, sviðslistakona, sakar Katrínu Jakobsdóttur forsetaframbjóðanda og fyrrverandi forsætisráðherra um að hafa svikið börnin á Gaza ströndinni. Þetta segir Salvör í aðsendri grein á Vísi í dag. „Stúdentar í Columbia-háskóla hafa nú mótmælt þjóðarmorðinu á Gaza dögum saman, mótmælin hafa breiðst út um háskóla um öll Bandaríkin, minna á mótmæli stúdenta gegn Víetnam-stríðinu. Lesa meira
Næstum 100 milljónir á síðasta ári frá ríkinu til fyrirtækisins sem aðstoðar Katrínu
EyjanÁ síðasta ári greiddi ríkið samskiptafyrirtækinu Aton JL næstum 100 milljónir fyrir auglýsinga- og ráðgjafarþjónustu. Fyrirtækið starfar nú fyrir forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur og tengiliður þess við framboð Katrínar er margfaldur trúnaðarmaður Vinstri grænna. Aton JL sér um útlit og hönnun fyrir framboðs Katrínar Jakobsdóttur til forseta. Eigandi þriðjungshlutar í Aton JL, Huginn Freyr Þorsteinsson, er tengiliður fyrirtækisins við forsetaframboðið. Lesa meira